Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 1

Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 1
64SIÐUR B STOFNAÐ 1913 167. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins JAFNTEFLI í FYRSTU SKÁKINNI Jafntefli varð í fyrstu skákinni í heimsmeistaraeinvigi þeirra Ana- tolys Karpov og Garris Kasparov, sem hófst í London í gær. Karpov, sem tefldi með hvítu, lék fram drottningarpeði í fyrsta leik, en Kasparov svaraði með Griinfeldsvörn. Það kom nokkuð á óvart þar sem slíkt hefur ekki gerzt í fyrri viðureignum þeirra. Svo fór að keppendumir tókust i hendur og sömdu um jafntefli í 21. leik. Sjá nánar á bls. 25, þar sem skákin er skýrð og birt í heild. Gorbachev kallar sex herfylki frá Afganistan Vestrænir hernaðar- sérf ræðingar láta sér fátt um finnast Moskvu, AP. MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi So vétríkjanna, sagði í gær að hann hefði aldrei heitið því að annar leiðtogafundur yrði haldinn og ítrekaði að næsta skref Sovét- manna í afvopnunarmálum ylti á þvi hversu viljugur Ronald Reag- an, Bandaríkjaforseti, væri til miðla málnm varðandi geim- varaaáætlunina. Gorbachev tilkynnti einnig í ræð- unni, sem haldin var í Vladivostok og sjónvarpað um Sovétríkin, að með tímanum yrði hafnarborgin opnuð fyrir útlendingum og gerð að al- þjóðlegri hafnarborg. Um hálf milljón manna býr í Vladivostok og er borg- in oft og tíðum kölluð höfuðborg austursins í Sovétríkjunum. Gorbachev sagði í ræðunni að sex sovéskar hersveitir yrðu kvaddar brott frá Afganistan í lok þessa árs. Talsmaður japönsku stjórnarinnar: Kaupum ekkí hval- kjöt af Islendingum — ef Bandaríkjasljórn álítur veiðarnar stríða gegn alþjóðareglum Tókýó, AP. JAPANIR munu hætta að kaupa hvalkjöt af íslendingum ef það verður niðurstaða Bandaríkja- manna, að hvalveiðar á íslandi striði gegn hertum alþjóðaregl- um um hvalveiðar, að því er haft var eftir embættismanni jap- önsku ríkisstjóraarinnar á mánudag. „Ef Bandaríkjamenn era þeirrar skoðunar, að hval- veiðar íslendinga bijóti í bága við reglur Alþjóða hvalveiðiráðs- ins, munu Japanir ekki kaupa kjötið,“ sagði Amohiro Mae, full- trúi i japönsku Fiskveiðistofnun- Japanir, sem eru stærstu inn- flytjendur hvalkjöts í heiminum, fluttu inn meira en 3.000 tonn af hvalkjöti frá íslandi á síðasta ári. Þeir flutt þá inn um 13.000 tonn frá öðrum þjóðum, aðallega Sov- étríkjunum og Suður-Kóreu. Viðskiptaráðherra Banda- ríkjanna, Malcolm Baldridge, hefur sagt að hann muni í þessari viku taka afstöðu til þess hvort íslend- ingar hafa farið nægilega eftir viðmiðunarreglum Alþjóða hval- veiðiráðsins. Bandaríkjastjóm fylgist með hvalveiðum hvarvetna í heiminum og ef hún kemst að þeirri niðurstöðu að alþjóðareglum hafi ekki verið fylgt er viðskipta- ráðuneytinu, samkvæmt lögum, skylt að leggja til að forsetinn ann- að hvort stöðvi innflutning á fisk- afurðum viðkomandi lands eða skerði rétt þess til að veiða innan bandarískrar efnahagslögsögu. í fréttaskeyti AP er minnt á að íslendingar hafi á föstudag ákveðið stöðva hvalveiðar í þijár og hálfa viku, vegna hótana Bandaríkja- manna um viðskiptabann, á meðan reynt verði að koma aftur á viðræð- um við Bandaríkjastjóm vegna þessa máls. Talsmaður Hafrannsóknarstofn- unar Bandaríkjanna í Washington sagði, að ákvörðun íslendinga um að stöðva hvalveiðamar, gæti haft áhrif á ákvörðun Bandaríkjamanna í þessu máli. Sjá fréttaskýringu á bls. 32 og samtöl við starfsmenn Hvals hf. á bls. 4-5. Hann sagði ekki um hversu marga hermenn væri hér að ræða, en haft er eftir vestrænum heimildarmönn- um að um sex þúsund hermenn séu í þessum herdeildum. Talið er að um hundrað þúsund sovéskir hermenn séu nú í Afganistan. Gorbachev sagði að hersveitimar yrðu sendar þangað, sem þær voru staðsettar áður og hér væri um að ræða eina vélahersveit, tvær stórskotaliðssveitir og þtjár loftvamarsveitir. Vestrænir hemað- arsérfræðingar láta sér fátt um þessa yfírlýsingu sovéska leiðtogans fínnast og segja að hér sé einfaldlega um áróðursbragð að ræða. Gorbachev kvaðst einnig reiðubú- inn til að semja um að fækka hermönnum í Austuriöndum §ær til að bæta samskipti við Kínveija. Hann sagðist vera að fara yfír bréf frá Reagan um afvopnunarmál, sem barst til Moskvu á laugardag, og hann bætti við að svar sitt yrði að hluta reist á afstöðu Reagans til geimvamaáætlunarinnar. í bréfínu er svar Bandaríkjaforseta við tillögum Sovétmanna um af- vopnun, sem lagðar voru fram í júní. Líbanon: 32 látast og 140 sær- ast í sprensnutilræði Beirút, AP. OFLUG bílsprengja sprakk í fjölmennu íbúahverfi í hinum kristna hluta Beirút með þeim afleiðingum að 32 menn létust og 140 særð- ust. Sprengjunni var komið fyrir í hvítri Mercedes-bifreið og er þetta öflugasta bUsprengja sem sprangið hefur i Beirút á þessu ári. Enn hefur enginn lýst ábyrgðinni á hendur sér. Sprengjan sprakk að morgni til á mesta annatímanum í Ein Rum- maneh-hverfínu. Að sögn lögreglu var sprengjan að minnsta kosti 250 kíló að þyngd. Eldur kviknaði í §ór- um íbúðarhúsum í nágrenninu og tókst slökkviliðsmönnunum að bjarga 50 manns sem hrópuðu á hjálp ofan af þökum húsanna. Út- varpsstöðvar skoruðu hvað eftir annað á fólk að gefa blóð. Talsmaður kristinna manna sak- aði Sýrlendinga um sprengjutilræð- ið og sagði það lið í herferð þeirra gegn Gemayel forseta Líbanons. Sýrlendingar hafa neitað allri aðild að verknaðinum. Þetta er í annað skiptið á fímm mánuðum sem bflsprengja springur í Ein Rummaneh-hverfínu. 12. febr- úar sprakk sprengja í nágrenni skrifstofu falangista-flokksins og létu tveir llfíð. Alls hafa sjö bflsprengjur sprungið í Líbanon á þessu ári og hafa 98 menn látið lífið í þeim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.