Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR Zð. JÚLÍ 1986 53 SAMGONGUR Mikið annríki var hjá Hafsteini Sveinssyni sl. sunnu- dag en hann sér um allar samgöngur við lýðveldið Viðey á báti sínum Skúlaskeiði. Það eru ekki bara fólksflutningar heldur vöru- og póstflutningar einn- ig. Hér á myndinni sjást m.a. starfsmenn „sam- gönguráðuneytisins" koma með tómar matarkerrur á land í Sundahöfn sem fylla þurfti á nýjan leik fyrir mótsgesti. Annir í Iðnaðar- banka Viðeyinga í útibúi Iðnaðarbankans í Við- ey var ösin svo mikil að blaða- maður komst hvergi nærri afgreiðsluborðinu. I bankanum geta mótsgestir geymt á bók þá peninga sem þeir ekki hafa þörf fyrir þann daginn og tekið síðan út eftir vild. Var ekki annað að sjá en það mæltist vel fýrir. Einnig fara fram hjá bank- anum nauðsynleg gjaldeyrisvið- skipti fyrir erlenda skáta. Á neyðarsjúkra- „Meiðsl eru yfir- leitt smávægileg“ - segja skátar úr hjálparsveitinni, sem reka sjúkrahús lýðveldisins húsi Hjálpar- sveitarinnar var lítið að gera og menn nutu veð- urblíðunnar. Á innfelldu mynd- inni sést hvar verið var að búa umfinguráað- gerðastofu sjúkrahússins, en á stofunni er all- ur búnaður til fyrstu hjálpar. VIÐ heimsóttum sjúkrahús lýð- veldinsins sem rekið er af Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Sem betur fer var þar lítið að gera og flestir starfsmenn í ró- legheitum að njóta veðurblíðunn- ar. „Þetta er hluti af neyðarsjúkra- húsi Hjálparsveitarinnar, því full- komnasta sinnar tegundar á landinu og erum við með aðstöðu til að taka á móti því helsta sem getur komið hér uppá. Björgunar- bát höfum við tilbúinn við bryggj- una svo enga stund er verið að koma fólki í land ef þörf krefur. Annars eru meiðsli yfirleitt smá- vægileg, hrufl, skrámur og eitthvað um tognanir eins og gengur og gerist hjá tápmiklu fólki. Þá höfum við gert sérstakar ráðstafanir til að fá hingað smyrsl við sólbruna sem við getum átt von á í þessu góðviðri því ekki er víst að allir átti sig á því í golunni hvað sólin er sterk. Sveitin mun auk sjúkra- gæslu sjá um öiyggisgæslu á mótinu og viðð komum til með að hafa tvo báta meðfram ströndinni þegar dagskrá er í fjörunni." Hjálparsveit skáta í Reykjavík var stofnuð 1932 og er stærsta hjálparsveit á landinu. Hundrað og tíu félagar eru á aðalskrá sveitar- innar og eru þar af sjötíu og fimm í stöðugri þjálfun. Sagði Bjöm að sveitin hefði séð um sjúkragæslu á öllum stærri mannamótum í fjölda ára og notað til þess neyðarsjúkra- hús sitt sem er búið því besta sem völ er á til fyrstu hjálpar, þó tjöldin séu frá stríðstímum. Sagði hann að nú væri sveitin að kanna kaup á fullkomnara neyðarsjúkrahúsi sem taka má í þyrlu og nota við náttúru- hamfarir, en slíkt sjúkrahús sagði hann vanta í landinu. „Við grömsum nú ekkert I farangri________________“ sagði Lára tollstjóri. „Tilbreyting að starfa í útilegupósthúsi“ — segja starfsmenn Pósts og síma í miklu tjaldi upp við Skúla- stofu hefur verið komið upp útibúi Pósts og síma eða útilegu- pósthúsi eins og starfsmenn þess, Soffia Jónsdóttir og Anna Bjamadóttir, kölluðu það. „Okkur líst vel á að vera hér á þessum sögufræga stað og er allur póstur héðan' stimplaður með sér- stökum stimpli lýðveldisins," sögðu þær. „Við höfum náttúrulega aldrei starfað undir þessum aðstæðum áður en þetta er góð tilbreyting." Póstmeistarinn í Viðey, Gís'.i Jón Sigurðsson, kom nú aðvífandi, rétt mátulega til að vera með á mynd- inni. „Vakt í tollstöðinni allan sólarhringinn“ — segir Lára Hálfdánardóttir, tollstjóri A BRYGGJUNNI í Sundahöfn hittum við Láru Hálfdánardóttur tollstjóra lýðveldisins í Viðey. Tollstöðin er tii húsa í rauðum vinnuskúr á hafnarbakkanum, þaðan sem Hafsteinn Sveinsson flytur fólk og vaming út í eyjuna á bát sínum Skúlaskeiði. „Við erum með vakt á stöðinni alian sólarhringin og er ég með §óra í vinnu hjá mér,“ sagði Lára. „Hér fer fram farmiðasala og vega- bréfaeftirlit meðan báturinn er í ferðum. En við erum nú ekkert að gramsa í farangri." Lára er 18 ára gömul og hefur verið skáti í tíu ár og er nú starfs- maður hjá Bandalagi íslenskra skáta. Sagðist hún alltaf vera á spani í útilegum og færi það ekkert eftir veðri. Hún fór til Noregs á skátamót þegar hún var áfanga- skáti og á landsmótið í Kjamaskógi á Akureyri. í fyrra fór hún svo á mót til Kanada í boði kvenskáta þar og í júní á þessu ári var hún í skátaferð á Grænlandi og gekk þar á fjöll og skoðaði sig um. t „ r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.