Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 24
24
Bretland:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
Níu farast í
lestarslysi
Lockington, Englandi, AP.
NÍU MENN biðu bana og þrjátíu
og níu manns slösuðust á Eng-
landi á laugardag þegar járn-
brautarlest keyrði á sendiferða-
bifreið á mótum vegar og
jámbrautarteina. Enginn vörður
var á mótunum. Tveir menn vom
í sendiferðabifreiðinni. Ökumað-
urinn slasaðist lífshættulega og
ellefu ára fóstursonur hans lést
af sárum sínum á sunnudag. Tíu
manns liggja í lifshættu í sjúkra-
húsi eftir slysið.
Veður
víða um heim
L»gst Haest
Akureyri 8 skýjað
Amsterdam 15 24 skýjað
Aþena 24 35 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskírt
Berlín 14 28 skýjað
Bríissel 10 21 heiðskirt
i Chicago 17 31 skýjað
i Dublln 11 18 rigning
1 Feneyjar 28 heiðakírt
! Frankfurt 17 25 heiðskírt
| Genf 14 17 heiðskírt
Helsinki 18 27 helðskirt
Hong Kong 28 31 heiðakfrt
Jerúsalem 20 34 heiðskfrt
Kaupmannah. 11 22 heiðskirt
Las Pslmas 26 léttskýjað
Ussabon vantar
London 21 rigning
LosAngeles 17 alskýjað
Lúxemborg 24 hálfskýjað
Malaga vantar
Mallorca 28 léttskýjað
Miami 25 31 rigning
Montreal 18 léttskýjað
Moskva 13 28 heiðskirt
NawYork 21 30 skýjað
Osló 15 18 skýjað
París 18 28 heiðskirt
Peking 22 28 heiðskírt
Reykjavík 12 léttskýjað
RíódeJaneiro 14 28 skýjað
Rómaborg 18 33 v helðskfrt
Stokkhólmur 17 25 heiðskírt
Sydney 4 13 rigning
Tókýó 25 32 heiðsklrt
Vlnarborg 16 24 heiðskírt
Pórshöfn 12 skýjað
Þrír vagnar voru í lestinni þegar
áreksturinn varð. Lestin fór gegn
um bflinn og splundraðist hann í
marga hluta. Lestarvagnamir fóru
út af sporinu og valt einn þeirra.
Lestin var á leið frá Briddlington
til Hull og voru um tvö hundruð
manns um borð í henni þegar slys-
ið átti sér stað í smáþorpinu
Lockington.
Ekki er enn vitað hvað olli slys-
inu, en brautarsporið verður opnað
aftur í dag. Ljósin, sem eru á mót-
um sporsins og vegarins, virtust
vera í fullkomnu lagi við athugun
eftir slysið. Ljósin eru skoðuð viku-
lega og voru þau síðast athuguð á
miðvikudag.
Þorpsbúar segja að ljósin hafi oft
brugðist og hafí þá ýmist kviknað
rautt ljós á umferð bfla, þegar eng-
in lest var væntanleg eða lestimar
bmnað í gegn án þess að ljósin virk-
uðu.
*
Norður-Irland:
Myrtuþrjá
lögreglumenn
Newry, AP.
HRYÐJUVERKAMENN úr flokki
IRA myrtu síðastiiðinn laugardag
þijá lögreglumenn í borginni
Newry á Norður-írlandi. Morðin-
gjamir vom dulbúnir sem slátrar-
ar.
Lögreglumennimir voru staddir í
bíl sínum í miðborg Newry, þegar
morðingjamir gengu upp að bflnum
og hófu skothríð. Aður en byssumenn-
imir hurfú af vettvangi, fleygðu þeir
handsprengju inn í bflinn, en hún
sprakk ekki. IRA hefur lýst ábyrgð á
hendur sér.
Seamus Mallon, varaformaður jafn-
aðarmannafíokksins, en félagar hans
eru aðallega kaþólikkar, fordæmdi
morðin og sagði þetta einhver „skelfi-
legustu ofbeldisverk, sem unnin hefðu
verið í landinu".
Austur-þýskir landamæraverðir og bandariskir herlögreglumenn skoða verksummerkin eftir spreng-
ingu við Berlínarmúrinn i gærmorgun. Hægri öfgamenn í Vestur-Þýskalandi eru taldir bera ábyrgð á
verknaðinum.
Sprengdu gat á
Berlínarmúrinn
Berlín, AP.
HÆGRI öfgamenn eru taldir
bera ábyrgð á sprengingu við
Berlínarmúrinn í gærmorgun.
Gat kom á múrinn og rúður
brotnuðu í nærliggjandi húsum.
Engin slys urðu á mönnum.
Að sögn lögreglunnar í Berlín
var notað sprengiefni svipað því
sem notað er þegar sprengt er fýr-
ir húsgrunnum. Lögreglan í Vest-
ur-Berlín ásamt yfírvöldum í eystri
hluta borgarinnar vinnur nú að
rannsókn málsins. Enn hefur eng-
inn lýst ábyrgðinni á hendur sér.
Austur-þýskir landamæraverðir
og lögreglumenn frá Vestur-Berlín
skoðuðu verksummerkin í samein-
ingu.
Landamæraverðir frá Austur-
Þýskalandi sem flúið hafa vestur
gagnrýndu þá sem stóðu að spreng-
ingunni og sögðu hana stuðning við
þann áróður sem stjómvöld í Aust-
ur-Þýskalandi reka nú í tilefni þess
að 25 ár eru liðin frá því að múrinn
var reistur. Alls hafa verið gerðar
30 sprengjuárásir á Berlínarmúrinn
frá því er Austur-Þjóðveijar hófu
byggingu hans 13. ágúst 1961 til
að hefta straum flóttamanna til
vesturs.
Fundur Einingarsamtakanna:
Reagan fordæmdur fyrir
andúð gegn blökkumönnum
— Sir Geoffrey svartsýnn á lausn mála
OPEC-ríkin funda í Genf:
Leita samkomu-
lags um nýtt fram-
leiðsluhámark
Genf, AP.
OLÍUMÁLARÁÐHERRAR aðildarríkja OPEC, samtaka olíuútflutn-
ingsríkjanna, komu saman í Genf í gærmorgun til fundar um nýjar
tillögur um samdrátt í olíuframleiðslunni í von um að fá olíuverð í
heiminum til að hækka á ný. Eftir að fundurinn hafði staðið í 90
minútur, var honum frestað til morguns. Ekkert samkomulag náðist
þar um nýja kvótaskiptingu milli aðildarríkjanna, en aðeins sagt,
að umræður um hana væru byijaðar.
James Audu, talsmaður OPEC, framleiðslukvótum þeirra hvers fyr-
Pretorfu og Addis Ababa, AP.
Einingarsamtök Afríku hófu á
mánudag 22. leiðtogafund sinn.
Aðgerða gegn Bretlandi var
krafist og Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti fordæmdur sem
kynþáttahatari og „andstæðing-
ur Afríku“.
Sir Geoffrey Howe sagði á
mánudag að hann væri svartsýnn
á lausn mála í Suður-Afríku, þar
sem allar tilraunir strönduðu á
stjórninni í Pretoríu.
Mengistu forseti Eþíópíu, setti
fund Einingarsamtakanna í Addis
Ababa og krafðist aukins þrýstings
gegn Bretlandi, t.d. með því að taka
ekki þátt í íþróttamótum þar. Hann
sagði Bandaríkin og Bretland hafa
tekið afstöðu „gegn Afríku", með
því að neita að beita Suður-Afríku
refsiaðgerðum. Mengistu sagði
þetta m.a. stafa af því að Reagan
Ortega í New York
Ncw York, AP.
DANIEL ORTEGA, forseti Nicaragua, kom til New York á laugar-
dag til þess að tala á þingi Sameinuðu þjóðanna. Hann predikaði í
mótmælendakirkju í New York á sunnudag, þar sem sóknarprestur-
inn kynnti hann sem „bróður Ortega“.
í kirkjunni hvatti Ortega banda- varði aðgerðir sínar gegn kaþólsku
rísku þjóðina til þess að beita
Ronald Reagan þrýstingi, til þess
að hann hætti stuðningi við and-
spymuhreyfínguna í Nicaragua.
Kirkjugestir, sem voru um 400,
fögnuðu Ortega ákaflega. Ortega
kirkjunni og stjómarandstöðunni.
Á þriðjudag mun Ortega hvetja
Sameinuðu þjóðimar til þess að
neyða Bandaríkjastjóm til þess að
hlíta úrskurði Alþjóðadómstólsins.
Bandaríkjaforseti bæri illan hug til
blökkumanna.
í Pretoríu sagði Sir Geoffrey
Howe að hann væri svartsýnn á að
áfram miðaði, þar sem suður-afrísk
stjómvöld heyktust á að hefja við-
ræður við svarta um framtíðarskip-
an mála í landinu.
Howe sagði ennfremur að fyrr
eða síðar myndi einhver ríkisstjóm
Suður-Afríku taka spor í rétta átt,
og að núverandi ríkisstjóm mætti
vera það fullljóst að umheimurinn
fylgdist grannt með þróun máia.
En hann bætti við að stjóminni
væri illa við öll afskipti af sínum
málum, og að hann vissi ekki hve-
nær henni yrði ljóst, að brýna
nauðsyn bæri til breytinga nú þeg-
ar.
Howe ræddi við tvo leiðtoga
heimalanda svartra, þá Enos
Mabuza og Mangosuthu Buthelezi,
en hann er leiðtogi um 7 milljóna
Zulu-manna. Buthelezi varað Sir
Geoffrey við því að beita Suður-
Afríku refsiaðgerðum, þar sem það
hefði meiri áhrif á nágrannaríki
svartra en hina hvítu íbúa Suður-
Afríku.
skýrði svo frá, að olíumálaráðherrar
allra aðildarríkjanna 13 hefðu gert
grein fyrir sjónarmiðum ríkisstjóma
sinna varðandi nýtt framleiðsluhá-
mark og nýja kvótaskiptingu og
hefðu viðhorf þeirra jrfírleitt verið
„mjög jákvæð". Sagði hann, að ráð-
herramir myndu nota daginn til
viðræðna sín í milli, en koma síðan
saman til sameiginlegs fundar ár-
degis í dag, þriðjudag.
Hinar nýju tillögur em byggðar
á minni heildarframleiðslu OPEC-
ríkjanna og því jafnframt á minni
ír sig. Er Ahmed Zaki Yamani,
olíumálaráðherra Saudi-Arabíu,
sem er mesta olíuframleiðsluríki
heims, var spurður að því fyrir fund-
inn, hvort mikill ágreiningur væri
uppi innan OPEC, svaraði hann
aðeins: „Það mun koma í ljós.“
Mana Saeed Otaiba, olíumálaráð-
herra Sameinuðu furstadæmanna,
var aftur á móti afdráttarlausari
og sagði, að OPEC stæði eftir sem
áður frammi fyrir „óleysanlegu
verkefni".
Óeirðir í kjölfar
víga á Indlandi
Nýju-Delhl, AP.
OFBELDISVERKUM í Nýju-
Delhí linnir ekki enn, og er talið
að a.m.k. sex hafi fallið og um
100 manns særst i óeirðum, sem
sigldu í kjölfar ódæðisverksins á
föstudag, en þá féllu 14 hindúar,
þegar langferðabifreið þeirra
var gerð fyrirsát. Talið er víst
að herskár hópur síka hafi staðið
að árásinni.
Hermenn eru nú á verði víðsveg-
ar um höfuðborgina og hafa
skipanir um að skjóta fyrst og
spyija svo. Hvaðanæva berast
fregnir um óeirðir og morðárásir.
Hafa bæði hindúar og síkar fallið
í þeim átökum.
Ýmis starfsemi hefur stöðvast
víða um Indland af völdum verk-
falls, sem hinn hægrisinnaði
Janata-flokkur hvatti til. Verkfallið
er ætlað til þess að mótmæla
hryðjuverkinu á föstudag.
Þessar óeirðir eru hinar verstu á
Indlandi síðan Indira Gandhi var
vegin, en í þeim óeirðum féllu 2.717
manns.