Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
Forsætisráðherra Tyrk-
lands í Sovétríkjunum
Moskva, Ankara, Karabuk, AP.
TURGUT Ozal, forsætísráð-
herra Tyrkja, og fjölmennt
- fylgdarlið hans kom á mánudag
í 5 daga heimsókn tíl Sovétríkj-
anna.
Nikolai Ryzhkov, forsætisráð-
herra, og Eduard A. Shevardnad-
ze, utanríkisráðherra, tóku á móti
Ozal á flugvellinum. Heimsóknin
er liður í bættri sambúð ríkjanna
og sagði Ozal við brottförina frá
Tyrklandi, að hann væri vongóður
um að meðal þess sem til lykta
yrði leitt í ferðinni yrði samkomu-
lag um gerð leiðslu er flytja ætti
gas frá Síberíu til Tyrklands og
’ ætti leiðslan að liggja um Búlg-
aríu. Einnig verður rætt um fólk
af tyrkneskum uppruna í Búlgaríu,
fiskveiðar í Svartahafí, flugstjóm
yfír Svartahafí, Kýpurvandamálið
| o.fl.
Daginn áður hafði Bulent Ece-
vit, fyrrverandi forsætisráðherra
Tyrkja, sem bannað hefur verið
að taka þátt í stjómmálum eins
og öðrum fyrrverandi stjómmála-
mönnum, haldið ræðu á 4.000
manna fundi í Karabuk í Zonguld-
ak-héraði í Norðvestur-Tyrklandi.
Gagnrýndi hann ríkisstjóm Ozal
harðlega og líkti henni við stjóm
Jean-Claude Duvalier, sem nýbúið
er að reka frá völdum á Haiti.
Vinstri lýðræðisflokkurinn sem
stofnaður var í nóvember sl. og
kona Ecevit, Rahsan, veitir for-
ystu, stóð fyrir fundinum er
markaði upphaf kosningabaráttu,
TVÆR sovéskar konur efndu
til mótmæla á Pushkin-torgi í
Moskvu sl. laugardag, þar sem
einn ættingi þeirra hafði verið
hnepptur í fangelsi og annar
settur á geðveikrahæli.
Ludmilla Yevsukova og móðir
hennar bám borða þar sem því var
mótmælt að Serafím, bróðir Lud-
millu, var dæmdur í þriggja ára
fangelsi nýlega fyrir að reyna að
komast hjá herþjónustu. Hann
en aukakosningar fara fram í
þessu héraði, sem áður var kjör-
dæmi Ecevit, í september nk.
Bulent Ecevit kom nýlega fyrir
rétt sakaður um stjómmálaþátt-
töku og má hann eiga von á eins
til þriggja ára fangelsisdómi ef
hann verður sekur fundinn.
hafði áður setið í fangelsi fyrir
sömu sakir í tvö og hálft ár. Ejöl-
skyldan hefur verið að reyna að
fá leyfí til að flytja úr landi síðan
árið 1978. Faðir Serafím og nafni
var handtekinn sl. laugardag er
hann var á leið til Pushkin-torgs,
þar sem fjölskyldan hefur efnt til
mótmælastöðu undanfama laugar-
daga. Ludmilla sagði að faðir
hennar væri á geðveikrahæli, hann
hefði verið neyddur tii að láta
sprauta sig og að taka inn töflur.
Sovétríkin:
Einn í fangelsi,
annar á geðveikrahæli
Moskva, AP.
5
j
Til foma leystu höfðingjar þjóðarinnar
ágreiningsmál sín á Þingvöllum.
!ótt nútímamenn noti aðrar og oftast friðsamlegri aðferðir
til að leysa sín mál eru
Þingvellir enn sem fyrr viðeigandi umhverfi fyrir
viðskiptafundi.
Bjóddu viðskiptavinum þínum næst í viðskiptaverð
á
Hótel Valhöll,
það tekur aðeins 40 minútur að aka þangað frá Reykjavík.
Sannaðu til, þar komist þið að góðri niðurstöðu.
Hótel Valhöll
Þingvöllum
sími 99-2622
Keppinautar flattir út
Eitt frægasta eðalsteinafyrirtæki í heimi, Cartíer i New York,
hefur lengi orðið að sætta sig við að á markaðinn flæði í sifellu
hræódýrar eftirlíkingar af Cartíer-armbandsúrum. Skaðabótamál
virðast ekki hrífa. Til að vekja athygli á neyðarástandinu tók
fyrirtækið það til bragðs að leigja valtara tíl að aka yfir 2.000
eftirlikingar frá Hong Kong.
Viðræður ísraela og Egypta um Taba:
Samkomulag undir-
ritað innan skamms
Tel Aviv, ísrael, AP.
SHIMON Peres, forsætisráð-
herra ísraels, og Hosni Mubarak,
forseti Egyptalands, munu að
öllum likindum koma saman tíl
Hollywood:
Leikarar
í verkfall
Los Angeles, AP.
FÉLAGAR i báðum stéttarsam-
böndum leikara i Bandaríkjunum
hafa samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta að boða til
verkfaUs, að því er talsmenn
þeirra upplýstu á sunnudaginn.
Samband kvikmyndaleikara og
Bandalag sjónvarps- og útvarps-
leikara hafa samaniagt um 30
þúsund félaga. Tíu vikna verkfall
þeirra árið 1980 mun hafa kostað
skemmtanaiðnaðinn um 40 milljónir
dala.
Leikaramir krefjast 22% launa-
hækkunar er dreifíst á næstu þrjú
ár, ennfremur greiðslna fyrir endur-
sýningar á sjónvarpsþáttum og
hærri greiðslna fyrir vídeósnældur.
Framleiðendur hafa boðið 9% launa-
hækkun og vilja einnig afnema
ýmsar aukagreiðslur til leikara.
Verkfallið mun ekki hafa áhrif á
auglýsingamyndir og fréttaþætti.
fundar eftir rúma viku tíl að
undirrita samkomulag um lausn
á landamæradeilu ríkjanna, að
því er ísraelska blaðið Jerusalem
Post sagði á mánudag. George
Bush, varaforsetí Banda-
ríkjanna, verður viðstaddur
fundinn.
Talsmenn ísraelska forsætis-
ráðuneytisins vildu ekkert segja um
sannleiksgildi fréttarinnar, en emb-
ættismaður í stjómarráðinu sagði,
að Egyptar yrðu að senda sendi-
herra sinn til ísraels á nýjan leik,
áður en af samningum gæti orðið,
auk þess sem komast þyrfti að sam-
komulagi um alþjóðlegan sátta-
semjara til að útkljá málið.
Deilan varðar svokallað Taba-
svæði á Sínaí-skaganum, um eins
ferkílómetra strandlengju meðfram
Rauðahafí. ísraelar fara þar með
stjóm nú.
Egyptar kölluðu sendiherra sinn
í ísrael heim árið 1982 í kjölfar
innrásar ísraela í Líbanon.
Blaðið sagði, að nefndir viðræðu-
aðila mundu hittast í dag, þriðju-
dag, og var fundarstaðurinn sagður
í landamæraborginni Eilat í Suður-
ísrael, skammt frá Taba.
Peres, sem nýlega átti fund með
Hassan Marokkókonungi II, hefur
sagt, að samkvæmt friðaráætlun
sinni sé næst.á dagskránni að vinna
að bættum samskiptum við Egypta.
Thailand:
Lýðræðisflokkurinn sigur-
vegari kosninganna
Bankok, AP.
Lýðræðisflokkurinn, stærsti
flokkurinn í fráfarandi ríkis-
stjórn Tailands, varð sigurvegari
kosninganna á sunnudag, hlaut
100 sæti af 347 í neðri deild
þingsins, að því er opinberar töl-
ur hermdu á mánudag.
Þingmennimir 347 velja forsæt-
isráðherra og þarf hann ekki að
sitja á þingi. Búist er við að fyrir
valinu verði Prem Tinsulanonda,
fyiTum herforingi, er verið hefur
forsætisráðherra síðan 1980. Lýð-
ræðisflokkurinn, sem er stærsti og
elsti flokkur landsins, myndar
væntanlega kjama hinnar nýju
ríkisstjómar. Allir formenn helstu
flokkanna náðu þingsætum í kosn-
ingunum, sem 61,4% atkvæðis-
bærra manna tóku þátt í og er það
mesta kjörsókn þar í landi til þessa.
Aðalmál kosninganna vom efna-
hagsmál, en verðfall hefur orðið á
ýmsum útflutningsvömm lands-
manna að undanfömu. Til átaka
kom á nokkmm stöðum á kjördag
og sögðu lögregluyfírvöld að fjórir
hefðu verið skotnir til bana í suður-
hluta landsins.