Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 29555 Skoðum og verðmetum eignir samdægurs 2ja herb. ibúðir Vesturberg. 2ja herb. 65 fm vönduö íb. á 6. hæð. Laus nú þegar. Efstaland. 2ja herb. 50 fm íb. á jarðhæð. Sér garður. Verð 1850 þús. Langholtsvegur. 2ja herb. 60 fm íb. á 1. hæð. Verð 1700 þús. 3ja herb. íbúðir Mávahlíð. 3ja-4ra herb. 90 fm ib. í kj. Verð 2,1 millj. Einarsnes. 3ja herb. mikið end- um. íb. á 1. hæð. V 1900 þús. Lindargata. 3ja-4ra herb. 80 fm efri hæö. Sérinng. Verð 1850 þ. Hringbraut. 3ja herb. 85 fm endaíb. á 1. hæð. Verð 1850 þús. Ásbraut. 3ja herb. 85 fm íb. á 3. hæð. Góðar innr. V. 1850 þ. 4ra herb. og stærri Álfhólsvegur. 4ja herb. 100 fm íb. á efri hæð. Sérinng. Verð 1950 þús. Skólabraut. 4ra herb. 85 fm risíb. Eignin er öll sem ný. Verð 2,2-2,3 millj. Leifsgata. Vorum að fá í sölu 4ra-5 herb. íb. sem er 137 fm á 1. hæð ásamt 40 fm bílsk. Verð 2,8-2,9 millj. Bergstaðastræti. Vorum að fá í sölu 4ra herb. 106 fm íb. á 2. hæð í nýl. húsi. Leirubakki. 4ra herb. 110 fm íb. á 3. hæð. Sérþvh. í ib. Verð 2,4-5 millj. Mögul. skipti á 3ja herb. Æsufell. Vorum að fá í sölu 4ra herb. 110 fm íb. á 4. hæð. Mikið endum. eign. Eignask. mögul. Miðleiti. Vorum að fá í sölu 110 fm íbúð nettó á 1. hæð. Stórglæsileg eign. Bílskýli. Mik- il sameign, m.a. með sauna og líkamsræktaraðstöðu. Engjasel. 4ra herb. 110 fm íb. á 1. hæð. Bflsk. Æskil. sk. á raðh. Nesvegur. 4ra herb. ca 100 fm íb. í kj. Lítið niðurgrafin. Sér- inng. Verð 2,3 millj. Hverfisgata. 4ra herb. 86 fm íb. á 2. hæð. Mikið endurn. eign. Verð 1850 þús. Kelduhvammur. 4ra herb. 137 fm íb. á 2. hæð. Bílskréttur. Verð 3,1 millj. Lindargata. 4ra herb. 100 fm íb. á 1. hæð. Sérinng. 50 fm bflsk. Verð 2,5 millj. Raðhús og einbýli Grundarás. 240 fm raðh. ásamt 40 fm tvöf. bilsk. Eignask. mögul. Flúðasel. Til sölu 226 fm raðh. á þremur hæðum ásamt 28 fm bílsk. Verð 4,5 millj. Akurholt. Til sölu 150 fm einb. allt á einni hæö ásamt 30 fm bílsk. Verð 4,7 millj. Víðigrund Kóp. Nýl. 130 fm einbh. Falleg ræktuð lóð. Arinn í stofu. Verð 4,8 millj. Kleifarsel. 2 x 107 fm einbhús ásamt 40 fm bflsk. Verð 5,2 millj. Móabarð. Til söiu 126 fm ein- býíish. á einni hæð. Stór ræktuð lóð. Verð 3,8-4 millj. Völvufell. Vorum að fá í sölu 136 fm raðhús ásamt 26 fm bflsk. Verð 3,5 millj. Hverfisgata Hf. 120 fm einbhús á tveimur hæðum. Eignaskipti möguleg. Stekkjarhvammur. 200 fm endaraöh. á tveimur hæðum. Eignask. mögul. Gamli bærinn. Vorum að fá í sölu mikið endurn. einbýlish. á þremur hæðum samtals ca 200 fm. Verð 3,2 millj. Þingholtin. Vorum aö fá í sölu ca. 260 fm einb.hús á þremur hæðum ásamt 25 fm bflsk. Góð 3ja herb. séríb. á jarðhæð. Á 1. og 2. hæð er góð 6 herb. íb. Eignask. mögul. Vogar Vatnsleysuströnd. 110 fm parhús ásamt rúmgóðum bílskúr. Verð 2,2 millj. Pylsuvagn. Vorum að fá í sölu pylsuvagn við göngu- götu með öllum leyfum. Bólstaðarhlíð 6, 105 Reykjavik. Símar 29555 — 29558. Hrólfur Hjaltason, viðskiplafræðingur. Hávaðinn í óreglunni Úr Pacific Inferno. Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Porquettas frá Finnlandi sýndi í Borgarskála: Pacific Inferno. Leikendur: Ann Yrsa Falenius og Ida Lotta Backmann Leiksfjórn: Laura Jantti Leikmynd: Curt Hillfon Tónlist: Ari Taskinen í leikskrá N’art um þessa sýn- ingu segir að hún sé samin út frá skáldsögu Michaels Toumiers um Robinson og Fijádag. Bætt er við „leikverkið er stundarlöng sjón- ræn ferð til eylands þess sem manneskjan er. í þrengingum á milli andstæðra afla leitar hún jafnvægis reglu og óreglu. Óút- reiknanlegt skapferli náttúruaflanna berst við striðandi einstaklinginn sem reynir að skapa reglu í sinni mynd.“ Þakka má fyrir þessa vísbend- ingu, enda dreg ég stórlega í efa, að ég hefði áttað mig á hvað ég var að horfa á ef ekki hefðu verið línur lagðar fyrir mig fyrirfram. Samt náði skynjunin ekki þessari leit og þessari miklu baráttu. Leikkonumar tvær hafa sjálfsagt lotið fyrirmælum leikstjóra og ugglaust er einhvers staðar mein- ing í þessu. En „leitin" varð og farsakennd, óp og óhljóð og enda- laus þeytingur fram og aftur um sviðið skiluðu ekki áhrifum öðmm en þeim að áheyrendur hefðu þurft að fá eymatappa. Leit manneskjunnar hlýtur að mega túlka á hljóðlátari hátt, að ég nú ekki tali um að listræn ögun hefði ekki sakað. Sagan um Soares Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Hans Janitschek: Mario Soares, Portrait of a Hero Formálsorð skrifar: Edward Kennedy Útg. Weidenfeld & Nicolson 1986 Hans Janitschek er austurrískur blaðamaður, búsettur í New York. Hann var framkvæmdastjóri Al- þjóða sambands jafnaðarmanna á ámnum 1969 til 1976. Janitschek virðist hafa haft náin kynni af Mario Soares og þessi bók er ekki ævisaga í hefðbundum skilningi, heldur er bmgðið upp myndum af baráttu Mario Soares fyrr og síðar. Og stiklað á stóm. Eiginkona hans, Maria, og böm hans, Isabel og Joao, svo og nokkrir vinir hans tjá sig um hann. Að ógleymdum Spinola, fyrrverandi forseta og einn forvígis- manna nellikubyltingarinnar 1974. Þessi bók er skrifuð áður en for- setaframboð Mario Soares var opinberlega staðfest, en án efa hef- ur höfundi ekki þótt saka að bókin kæmi út um það leyti sem kosninga- baráttan var í algleymi. Hér er sem sagt megináherzlan lögð á persónuna Mario Soares, hugrekki hans þegar hann barðist gegn einræðisöflunum í Portúgal sem ungur maður. Var hvað eftir annað hnepptur í fangelsi, ellegar sendur í útlegð vegna óhlýðni við fasistana sem landinu réðu. Sagt er frá samskiptum Soares við aðra forystumenn jafnaðarmanna vítt um veröld, en einkum í Evrópu og sérstaklega er gerð skil því vináttu- og handleiðslusambandi sem ríkti milli Soares og Olofs Palme, og Bmno Kreisky. Raunar em allir forystumenn jafnaðarmanna á áram áður nefndir til sögunnar utan sá íslenzki. Eftir að Mario Soares sneri heim úr útlegð í Frakklandi eftir bylting- una var honum fagnað sem hetju og að verðleikum. Hann varð utanríkisráðherra í fyrstu stjóminni sem var mynduð eftir byltinguna, en þá fór í hönd mikill reynslutími. Þegar frelsis- og lýðræðisvíman var mnnin af þorra manna, kom í ljós að Portúgalar kunnu lítt með lýðræði að fara og var ugglaust skiljanlegt, eftir að hafa búið við kúgun í nær hálfa öld. Smám saman sölsuðu kommún- istar undir sig völd, en kommúnista flokkurinn var eini flokkurínn sem þrátt fyrir allt hafði starfað í leyn- um og var þrautskipulagður. Mario Soares var ekki einn um það að sæta ofsóknum „heita sumarið 1975“. Allir þeir sem ekki vom fylgjandi kommúnistunum áttu á hættu að verða fyrir áreitni, nótt sem nýtan dag. Soares átti drýgstan þátt í að snúa þessari þróun við og þegar honum tókst að komast á snoðir um samsæri vinstri manna í nóvember til að taka völdin endan- lega, mátti varla tæpara standa. Síðan hefur staða lýðræðisins von- andi ekki verið í vemlegri hættu í Portútral. Hljómplötur Sigurður Sverrisson Pétur & Bjartmar Þá sjaldan maður lyftir sér upp Aldrei fór það svo að Pétur Kristjánsson sneri ekki aftur úr útlegðinni en eftir á að hyggja er ég þeirrar skoðunar að hann hefði ekki átt að gera það í fylgd Bjart- mars Guðlaugssonar. Ekki svo að skilja að Bjartmar sé ekki ágætur á sinn hátt, en þessir tveir fara ekki vel saman á plötu. Lögin á plötunni Þá sjaldan mað- ur lyftir sér upp em fjögur og ákaflega ólík innbyrðis; Tvö þau betri, Draumadísin og Ástar óður, era erlend. Annað er úr smiðju Shu-bi-dua og textinn fylgir því að hálfu. Eitthvað hefur hann farið fyrir bijóstið á útvarpsfólki því lag- ið er aldrei leikið. Lögin hans Bjartmars em mjög í hans anda, ágæt sem slík, en falla í skuggann af erlendu lögunum. Lagið Draumadísin, sem er dæ- migert „Europopp", er vel flutt af Pétri sem og Ástar óður. Þar sýnir gamla brýnið að hann hefur engu gleymt. Bæði lögin ættu að falla vel í kramið hjá landanum. Hin em meira fyrir einlæga aðdáendur Bjartmars. Etið með „stæl“ Dave Lee Roth Eat’em and smile Ég segi það og skrifa: Dave Lee Roth er yndislegur. Sannkallaðir „karakterar" í rokkinu em ekki margir en Roth er svo sannarlega einn þeirra. Þessi atburðarrás verður yfir- borðskennd í meðfömm Janitschek og óneitanlega hefði það gert frá- söguna á allan hátt fyllri og hrein- lega merkilegri, ef höfundur leyfði fleimm en Soares að koma við sögu. Ótrúlega lítið er vikið að þætti Ramahlo Eanes, fyrrv. forseta, og forðast að rifja upp deilur Soares og Eanes, sem vom þó afdrifarík- ar. Þó að vikið sé að því þegar Soares sagði af sér formennsku í mótmælaskyni við stuðnings Sósía- listaflokksins við Eanes er það ósköp ógreinileg frásögn og ekki neitt á henni að græða umfram það sem vitað er. En þetta er ákaflega hlý og elskuleg bók. Soares er óumdeilan- leg hetja. Hann er aukin heldur geðslegur maður og góður heimilis- faðir, menningarlega sinnaður og ber hag Portúgala fyrir bijósti. Og hann er lýðræðissinni fram í flngur- góma. Snyrtileg og ljúf bók hjá Janit- schek að minnsta kosti svo langt sem hún nær. Þessi nýja plata hans er að mér flnnst frábær þótt vissulega sé gengið vasklega í smiðju Van Hal- en. Hér er að finna hvert þmsurokk- lagið á fætur öðm meistaralega flutt af skotheldum kvartett. Steve Vai, fyrrnrn í Alcatrazz, leikur á gítar eins og sá sem allt getur og þeir Billy Sheehan á bassa og Greg Bissonotte á trommur gefa honum lítið eftir. Fyrir þá sem heilluðust af Roth er hann sló í gegn með hinu gamla góða „Just a gigolo" í fyrra em hér tvö gömul lög í þeim anda, I’m easy og That’s life. Bæði pottþétt sem og annað á þessari plötu. Stjörnugjöf: ★ ★★★ Útbrunninn kappi Ted Nugent Little miss dangerous Ted gamli Nugent er enn að þrátt fyrir að frægðarsól hans fari nán- ast lækkandi með hverri plötunni sem hann sendir frá sér. Eftir að hafa slegið rækilega í gegn með plötunni Free for all 1975 hefur Nugent verið ótrúlega iðinn við plötuútgáfu en ekki alltaf haft er- indi sem erfiði, sér í lagi hin síðari ár. Þrátt fyrir langan feril er þó enn kraftur í Nugent, það verður ekki af honum skaflð. Little miss dan- gerous markar þó ekki nein tímamót á ferli hans, fjarri því. Inn á milli em samt lög sem gaman er að, t.d. Little red book (hraustleg útsetning á lagi eftir Bacharach), Savage dancer og High heels in motion. Þau duga samt ekki til að lyfta plötunni upp úr meðalmennsk- unni. Stjömugjöf: ★ ★ Verkstæði — málmiðnaðarfyrirtæki Til sölu lítið verkstæði og málmiðnaðarfyr- irtæki. Verkfæri til blikksmíða, rafiðnaðar og sprautunar. Til afhendingar fljótlega. Heildverslun — smásala Til sölu þekkt gjafa- og leikfangaverslun sem verslar einnig með barnaföt. Verslunin er í ódýru leiguhúsnæði í miðborginni. Mörg góð umboð fylgja. Gott tækifæri fyrir áhuga- samt fólk. Tískuvöruverslun Til sölu tískuvöruverslun í nýlegu leiguhús- næði við eina mestu verslunargötu borgar- innar. Eigin innflutningur. Góð umboð. Ártúnshöfði — iðnaðarhúsnæði Mjög gott og vandað iðnaðar- eða verslunar- húsnæði til sölu á góðum stað. EignahöHin sF“'rr9sl,ipasala Hilmar Victorsson viðskiptafr. HverfisgötuTB Blendin upplyfting
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.