Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.07.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 17 l Islensk svæða- skipan, Alþingi og persónukjör eftir Jónas Pétursson Á allmörgum síðustu árum voru að mótast í huga mér þau úrræði, sem eg tel nauðsyn til að bjarga því íslandi, sem eg eitt sé I huga mér, eitt, sem eg sætti mig við að sjá i framtið. Sú sýn er grund- völlur byggðahreyfingarinnar. Breytingar á stjórnskipan, sem færir valdið yfir meginhluta þeirra samfélagsumsvifa er snerta, segjum daglega, hvern mann. Færa það vald til sveitar- félaganna, sem efld verða til þeirrar stjórnsýslu. Til þess er nauðsyn að festa svæðaskipan í fylki eða þing. I þau svæði þarf yfirstjórn, ákveðinn fjölda, sem kosinn er úr hópi allra sveitar- stjórnarmanna svæðisins af öllum kjósendum svæðisins. Ekki með venjulegum hætti hlutfalls- kosninga, heldur með persónu- kjöri, sem felur hlutfallsréttinn í sér. Hver kjósandi kýs aðeins þijá menn, þijú nöfn þeirra manna, er hann ber mest traust til að búi yfír þeim hyggindum og réttlætiskennd til farsæls mannlífs, að óskum fólksins, sem byggir landsvæðið, sem fijálsir menn. En lengra er hugsað. Deilan um atkvæðisréttinn er viðfangsefni er leysa þarf. Eg hefí verið að reyna að gefa tóninn, með skipan yfír- stjómar sveitarfélaga á svæðum. Einhvem veginn virðist mér að listakosning, og þá flokka til nokk- urs „réttlætis", sé eina leiðin, er fólk eygir, til að virða rétt minni- hluta. Virðist þessi „réttlætis"- hugsun vera „frosin föst“ í heilabúum æði margra. En valdið áttar sig auðveldlega á hvemig þessi aðferð veltir „lýð- ræðinu" í fang þess. Að fenginni þeirri skipan, sem hér að framan er lýst, er mín hug- mynd á þessa leið: Alþingi verði ein málstofa. Þingmenn 45. Eitt kjör fyrir allt landið. Framboð, tilnefning, í hópum, listum, verð- ur að sjálfsögðu, og hverjum hópi flokka eða samtaka, raðað í stafrófsröð. En hver kjósandi á landinu, hvar sem hann býr, kýs aðeins þtjú nöfn, þijú nöfn þeirra, sem á listunum standa og skrifar nöfn þeirra og númer á kjörseðil, sem hann fær hjá kjör- stjórn. Listi aldrei kosinn, aðeins þijú nöfn. Mega að sjálfsögðu vera af sama lista. Kjami málsins er: algjört per- Jónas Pétursson „Kjarni málsins er: al- gert persónukjör og atkvæðisréttur jafn, hver kjósandi, hvar sem er á landinu, velur þrjú nöfn.“ sónukjör og atkvæðisréttur jaín, hver kjósandi, hvar sem er á landinu, velur þijú nöfn. Reyna þarf á lýðræðið. Skilyrði þess í mínum huga er að meginþættir samfélagsmálanna verði færðir heim til fólksins um hinar dreifðu byggðir í fylkjum eða þingum og tryggð sé tekjuskipting úr núver- andi ríkistekjum, sem samsvarar verkefnum, valdi og ábyrgð. Og að undirstöðu lífsgildanna verði að fullu notið þar sem þau skapast. Þetta er nokkuð skýr mynd af kosningaformi, sem eg hefí stað- næmst við, út úr ógöngum núver- andi „Iýðræðis". Þeim vanskapnaði, sem flokksræði hlutfallskosninga- formsins hefur leitt til. Án persónu- kjörs er ekki um lýðræði að tala, sem stendur undir nafni, þótt stigs- munur sé á austrænu og vestrænu lýðræði. Eg kynnti þessa hugmynd á fundi byggðahreyfíngarinnar á Egilsstöð- um 6. maí í vor. Hún er þess virði að þeir, sem ekki hafa asklok fyrir himin, hugleiði. Þess vegna bið eg Morgunblaðið að birta. Vonast til að geta bætt við nánari hugleiðingum. Höfundur er fyrrverandi alþingis- maður. Pétur og Bjartmar senda frá sér plötu PÉTUR Kristjánsson og Bjart- mar Guðlaugsson hafa nú gefið út plötuna „Þá sjaldan maður lyftir sér upp.“ Platan geymir 4 lög, tvö eftir Bjartmar og tvö erlend lög. AUir textarnir eru eftir Bjartmar. Pétri og Bjartmari til aðstoðar eru valinkunnir menn. Eiríkur Hauksson syngur bakraddir, Jó- hann Ásmundsson annast bassa- leikinn, Gunnlaugur Briem sér um trommu- og ásláttarleik, Kristján Edelstein leikur á gítar og hljóm- borð og raddar að auki og loks er það Eyþór Gunnarsson sem leikur á hljómborð í einu lagi. Lögin sem þeir félagar flytja eru: Fimmtán ára á föstu, Ástar-óður, Draumadísin og Eg mæti. Upptökur fóru fram í Hljóðrita og önnuðust þeir Sigurður Bjóla og Sveinn Kjartansson hljóðritunina. Sveinbjöm Gunnarsson sá um útlit- ið, en Bjami Jónsson tók myndimar. Alfa pressaði og Prisma sá um prentverkið. Þeir Pétur og Bjartmar munu fylgja plötunni eftir með hljómleika- haldi og annarri spilamennsku á næstunni. Auk plötunnar kemur út kassetta með lögum Péturs og Bjartmars á annarri hliðinni, en §órum lögum eftir Greifana á hinni hliðinni. Útgefandi er Steinar hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.