Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
3
„Ekki sannfæring
fyrir því að þetta
væru hagstæð kaup“
segir Davíð Oddsson um afstððu borgarráðs
Medal atriða á lokahátíð N’Art ’86 á sunnudaginn var flugdrekahátið við tjaldið á Háskólavellinum.
Þar brugðu krakkar á Ioft drektim sem þau höfðu sjálf búið til. Morgunbiaðið/Árni Sœberg
„Hátíðin tókst mjög vel“
— segir Birgir Edvardsson framkvæmdastjóri N’ART
Norrænu menningar- og’ lista-
hátíðinni, N’ART, lauk nú um
helgina. Að sögn Birgis Edvards-
sonar, framkvæmdastjóra
N’ART, tókst hátíðin mjög vel.
Hátíðin stóð í tíu daga og var
boðið upp á flestar tegundir listar
og skemmtiatriða. Má þar nefna
myndlist af ýmsu tagi, leikhúsverk
úr öllum áttum, sirkus og tónleika,
bæði sígilda tónlist, nútímatónlist,
rokk og fleira.
Birgir sagði að aðstandendur
N’ART væru harðánægðir með há-
tíðina í heild og undirtektirnar sem
Þrotabú Þörunga-
vinnslunnar
á Reykhólum:
Heimamenn
hafa gert
tilboð
hún hefði fengið. „Við reyndum að
bjóða upp á gæðadagskrá við sem
flestra hæfi og það hefur sýnt sig
að Reykvíkingar eru opnir fyrir
nýungum og hafa tekið hátíðinni
mjög vel.
„ÞAÐ var ekki sannfæríng fyrír
því í borgarráði að þetta væru
hagstæð kaup fyrir Landsvirkj-
un, en þó vildi borgarráð ekki
að öðru leyti taka efnislega af-
stöðu til málsins heldur taldi það
vera verkefni stjómar Lands-
virkjunar að gera þetta upp við
sig,“ sagði Davíð Oddsson, borg-
arstjóri, um afstöðu borgarráðs
til fyrirhugaðra kaupa Lands-
virkjunar á eignum Jarðvarma-
veitu ríkisins í Bjamarflagi.
Eins og greint var frá í frétt
Morgunblaðsins á sunnudag eru
líkur á að stjóm Landsvirkjunar
muni á næstunni taka ákvörðun um
umrædd kaup, en samkvæmt fyrir-
liggjandi samningsdrögum er
kaupverð um 120 milljónir króna,
sem greiðist á 15 árum. Stjóm
Landsvirkjunar óskaði eftir að
eignaraðilar að fyrirtækinu létu í
ljós afstöðu til kaupanna. Bæjarráð
Akureyrar samþykkti fyrir sitt leyti
kaupin, en borgarráð Reykjavíkur
samþykkti að mæla ekki með þeim,
en taldi að stjóm Landsvirkjunar
bæri að afgreiða málið endanlega.
Davíð Oddsson, sem á sæti !■
stjóm Landsvirkjunar, kvaðst gera
ráð fýrir að hann myndi sitja hjá
við atkvæðagreiðslu um málið.
Hver ók á
mann og konu?
LÖGREGLAN í Reykjavík
óskar eftir að fá upplýsingar
um slys sem varð á Vatnsmýr-
arvegi gegnt BSÍ á sunnudag,
en þar var ekið á mann og
konu.
Það var um áttaleytið á
sunnudagskvöld að maður og
kona stigu út úr strætisvagni
við Vatnsmýrarveg og urðu
bæði fyrir bifreið. Ekki urðu
meiðsli þeirra mikil, en konan
ræddi við ökumann bifreiðarinn-
ar um stund. Slysarannsóknar-
deild lögreglunnar vill nú
gjaman ræða við konu þessa og
ökumanninn til að fá nánari
upplýsingar um málavöxtu.
EIGNIR þrotabús Þörunga-
vinnslunnar á Reykhólum hafa
veríð auglýstar til sölu, en verk-
smiðjan er nú starfrækt af
heimamönnum sem hafa hxma á
leigu til 1. september.
Að sögn Haraldar Blöndal, bú-
stjóra þrotabúsins, hefúr tilboð
borist frá heimamönnum í eignir
þrotabúsins. Þrotabúið á helming
Þörungaverksmiðjunnar en hinn
helmingurinn er í eigu ríkisábyrgð-
arsjóðs. Einn aðili annar mun hafa
sýnt áhuga á að kaupa eignir þrota-
búsins með það fýrir augum að
reka verksmiðjuna áfram.
Um skuldir þrotabúsins gat Har-
aldur ekki tjáð sig að svo stöddu
þar sem kröfulýsingarfrestur er
nýmnninn út og höfðu kröfur ekki
verið teknar saman. Tilboðsfrestur
í þrotabú Þörungavinnslunnar á
Reykhólum rennur út 31. ágúst.
Vestur-Húnavatnssýsla:
Höfðaverk átti
lægsta tilboðið
í vegagerð
TILBOÐ f styrkingu og malar-
slitlög á vegi í Vestur-Húnavatns-
sýslu voru opnuð hjá Vegagerð
ríkisins í gær. Kostnaðaráætlun
hljóðar upp á 4.760.000 krónur.
Lægsta tilboðið átti Höfðaverk
hf. á Hvammstanga, 3.518.050
krónur, eða 73,9% af áætlun.
Um er að ræða 18 km kafla, og
eiga að fara í hann 30.000 rúm-
metrar af efni. Fimm verktakar
gerðu tilboð í vegargerðina. Henni
skal lokið fyrir 30. september í
haust.
Hjá Sláturfélaginu
færðu allt í grillveisluna
og að auki fylgja hér
nokkur heilræði
um steikingu á teini
Þú færð allar tegundir af góðu kjöti á grillið, vínar- og
medisterpylsumar okkar vinsælu, kol, grillolíu, ótal
tegundir af kryddi, grænmeti og öðru meðlæti sem
þarf til að útbúa gimilega grillveislu.
Hellræði um steikingu á teini
Allt kjöt, fisk, brauð og grænmeti má glóða á teini, en
það er ekki sama hvemig það er gert. Best er að
smyrja teininn vel áður en þiætt er á hann. Grænmetið
er gott að skera í aðeins stærri bita en kjötið svo það
verði ekki ofsteikt þegar kjötið er tilbúið. Teinamat á
Ifka alltaf að pensla áður en hann er settur á grillið -
annars ofþomar hann og skorpnar. Best er að nota
griliolfu eða kryddlög. Lögurinn gerir matinn meyran
og bragðgóðan, og hann er tilvalið að nota sem sósu
á eftir. Varast ber að stinga í kjötið á teininum - þá
lekur gómsætur safinn úr, og ekki er ráðlegt að strá
salti á kjötið fyrr en eftir að steikingu er lokið.
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
GOTT FÓLK / SÍA