Morgunblaðið - 29.07.1986, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
13
Frá opnun sýningarínnar. Páll Guðmundsson (t.v.) og Theo Hauber
bankastjóri ræðast við.
Páll Guðmundsson frá Húsa-
felli sýnir í Þýskalandi
Páll Guðmundsson frá Húsa-
felli hefur stundað nám í vetur
í myndlistarháskólanum í Köln.
Nýlega var honum boðið að halda
sýningu í stórum banka í ná-
grenni Kölnar og voru þar sýnd
20 verk eftir Pál. Þessi sýning
vakti töluverða athygli. Hún var
opnuð hátíðlega að viðstöddu
fjölmenni. Bankastjórinn hélt
ræðu, bauð gesti velkomna, rakti
feril Páls á Islandi og bauð gest-
um veitingar. Að því loknu hélt
Haukur Ólafsson sendiráðsritari
opnunarræðu í fjarveru Hannes-
ar sendiherra.
Ljósmyndari og listgagnrýnandi
voru við opnunina og 15. júlí birtist
grein í Rhein — Sieg Rundschau,
en það er stórt dagblað og þar sagði
meðal annars:
„Búlduleit böm, órakaðir kjama-
karlar, kræklótt tré í drungalegu
landslagi em í gegnheilli samstill-
ingu. Þannig koma fyrir myndir
Páls Guðmundssonar sem sýnir í
Troisdorfer Raiffeisenbanka og
miðlar áhrifum frá heimkynnum
sínum.
Sýningin á vatnslitamyndum,
olíumálverkum og pastellmyndum
er ekki stór en einstök í sinni röð.
Það er ekki á hveijum degi sem
list frá íslandi er sýnd og af tilvilj-
un hefur Raiffeisenbankinn fært
hana hingað. Listamaðurinn 27 ára
gamall lærir höggmyndagerð við
listaháskólann í Köln, en hann er
nú þegar þekktur í heimalandi sínu.
Um list hans var sagt í íslensku
dagblaði: „Þama er að verki sterk
skapgerð". Stíll hans ber einkenni
hans sjálfs: „kraftmikill og eðlileg-
ur“ þetta á líka við um heimkynni
hans, andlitin mótast af víðáttunni,
einmanaleikanum, frelsinu og
æðruleysi.
ísland er ekki lengur háð Dönum
og fyrsti sendiráðsritari íslendinga
í Bonn opnar sýninguna og íslend-
ingar eiga sína eigin list og Páll
Guðmundsson er fulltrúi hennar".
Sex eininga Salix hillusamstæða frá VIÐJU á kr. 23.800,-
Hvít með bláum eða rauðum skúffum og skápahurðum.
20% UTBORQUM
12 MÁMAÐA QREIÐ5LUKJÖR
HUSGAGNAVERSLUNIN
VIÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
Þar sem
góðu kaupin
gerast
Um hval-
friðun og
mannfriðun
eftir Hafstein
Blandon
Vegna þeirrar deilu, sem upp er
komin milli Islendinga og Banda-
ríkjamanna um hvalfriðunarmál vil
ég koma á framfæri eftirfarandi
tillögu, sem ætti að geta leyst deilu
þessa þannig, að allir sem raun-
verulegan áhuga hafa á friðunar-
málum geti vel við unað.
Tillagan er sú að íslendingar
gangi að kröfu Bandaríkjamanna
um að allar afurðir hvala skuli nýtt-
ar af íslendingum sjálfum en ekki
fluttar út í ágóðaskyni. Á móti komi
frá Bandaríkjamönnum að þeir
gangi að kröfu okkar í mannfriðun-
armálum, sem sé sú að öll vopn
framleidd í Bandaríkjunum verði
einungis notuð af Bandaríkjamönn-
um sjálfum en ekki flutt út í
ágóðaskyni.
Rökin fyrir hvoru tveggja eru þau
sömu, þ.e. að skera á hagsmuna-
tengslin milli dráps og ágóða í því
skyni að draga úr útrýmingarhættu
stofnanna. Ekki eru allir sammála
um hve útrýmingarhætta hvalstofn-
anna sé mikil. Flestir virðast hins
vegar sammála um að útrýmingar-
hætta mannstofnsins sé veruleg
vegna óhóflegrar vopnaframleiðslu,
og ætti það atriði því ekki að verða
ágreiningsefni. Tökum því höndum
saman við Bandaríkjamenn, setjum
niður deilur, og vinnum sameigin-
lega að friðunarmálum til heilla
fyrir alla jarðarbúa, jafnt hvali sem
menn.
HERJÓLFSFERÐ ER GÓÐ FERÐ
HERJÓLFSFERÐ ER ÖRUGG FERÐ
HERJÓLFSFERÐ ER ÓDÝR FERÐ
FARMIÐASALA:
Reykjavík: Umferðarmiðstöðin,
sími 22300.
Afgreiðsla Herjólfs v. Köllunarklettsveg,
sími 686464.
Selfoss: Árnesi f Ársölum, simi 99-1599.
Auk þess um borð f Herjólfi.
FERÐIST ÓDÝRT
FERÐIST MEÐ HERJÓLFI.
HERJÓLFUR
Símar: 98-1792,
98-1433.
Vestmannaeyjum.
Höfundur er verkfræðingur.