Morgunblaðið - 29.07.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
15
HLJÓMEYKI
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Sönghópurinn Hljómeyki
stóð fyrir tónleikum í Skál-
holti sl. helgi og flutti tónverk
eftir Nysted, Holmboe,
Speight, Báru Grímsdóttur,
Byrd og Britten. Auk þess
flutti strengjakvartett tvær
fúgur úr List fúgunnar, eftir
J.S. Bach.
Fyrsta lagið var „Frið læt ég
yður eftir, minn frið gef ég yð-
ur“ eftir Nysted og annað lagið
var Lofíð Drottin" eftir
Holmboe.
Bæði lögin eru fallega samin
kórlög, en þess gætti nokkuð,
sérstaklega í seinna laginu, að
hópurinn hefði þurft taktsláttu-
mann. Fyrir kór að vera laus við
að þurfa stjóm, er stuðli að sam-
tökum, þarf svo mikla æfíngu
og öryggi, sem þrátt fyrir að
margt væri vel gert í söng
Hljómeykis, var því miður ekki
alveg í lagi.
Eftir John Speight var sungið
lag sem undirritaður hefur ekki
heyrt áður, við textann Locus
iste. Lagið er fallegt en allt of
stutt.
Sem hlé fyrir söngfólkið flutti
strengjakvartett, mannaður að
mestu söngmönnum úr söng-
flokknum, fyrstu gerð fúgunnar
úr List fúgunnar eftir Bach.
Flutningurinn var þokkalegur
enda eru flytjendumir enn í námi
eða nýbúnir hér heima. Varðandi
flutning á fúguverki, hefði mátt
án þess þó að mismuna í styrk,
leggja örlítið meiri áherslu á
stefíð er það birtist. Þannig hefði
sköpunargerð fúgunnar heyrst.
Bára Grímsdóttir átti næsta
verk, sem heitir Svo þú gætir
óskað, við texta eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttur. Lag þetta er
fyrir einsöng, strengjakvartett
og kór.
Verkið er nokkuð laust í
formi, bæði hvað snertir fram-
sögn textans og samspil söngs-
ins og strengjanna, auk þess sem
kórinn hefur vandræðalega lítið
að gera. Samt var að heyra í
þessu nemendaverki ýmislegt
fallegt og jafnvel ýmislegt inni-
legt frá hendi tónsmiðsins unga
og var verkið vel flutt af Mörtu
Halldórsdóttur, sem söng ein-
sönginn.
Næst var fímmta gerðu fúgu-
formsins leikin og um þann
flutning gildir það sama og um
fyrri fúguna. Þrjú síðustu verkin
em ensk, tvö eftir Byrd og eitt
eftir Britten. Þar mátti heyra
ýmislegt sem Hljómeyki getur
vel gert, hljómfallegan söng og
samvirkan.
Léttir, þægilegir, öruggir, standast alla öryggisstaðla
ÍSAGA
Breiðhöfða 11
112 Reykjavlk
Sfmi 68-87-45
AH 29 Fyrir spraulun
RACAL öryggisbúnaður gegn loft-
mengun er viðurkenndur sem bún-
aður í sérflokki hvað snertir þægindi
og öryggi.
Samningur okkar við RACAL, fram-
leiðendur airstream, tryggir mun
lægra verð en áður hefur þekkst á
þessum gæðavörum hér á landi, auk
bestu hugsanlegrar tækniþjónustu.
Dælir hreinu lofti í sífellu inn í hjálm-
inn og kemur þannig í veg fyrir að
ryk og uppgufun komist í öndunar-
færi notandans, — mengunarvörn
sem ekki er hægt að afþakka vegna
þess að hún sé óþægileg í notkun.
H1 Fyrir málmiönað
AH 2 Fyrir rafsuðu
Til nota í ryki og uppgufun,
svo sem við
• sementsframleiðslu
• álframleiðslu
• málun og sprautun
• rafsuðu og aðrar greinar
málmiðnaðar
• landbúnað
• og ótal margt annað
Sýnishorn á
staðnum
Viö kynnum