Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 22

Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 Lífshættir nútíma- mannsins gera æ meiri kröfur til sjónarinnar Guðmundur Viggósson augnlæknir segir frá fyrirhugaðri starfsemi Sjónstöðvar íslands sem væntanlega verður komin í fulla notkun í haust Á fimmtu hæð I húsi Blindrafé- lagsins við Hamrahlíð er nú búið að koma fyrir stofnun sem heitir Sjónstöð íslands. Henni er ætlað að annast alhliða þjónustu við sjónskerta, svo sem mælingu og úthlutun sérhæfðra hjálpar- tækja, ásamt þjálfun og hvers konar endurhæfingu sem sjón- skertir þurfa á að halda. Guðmundi Viggóssyni, nýráðn- um yfirlækni stöðvarinnar, segist svo frá aðdragandanum að stofnun stöðvarinnar og væntanlegri starf- semi: „Það er stefna stjómvalda að koma þeim þjóðfélagsþegnum til hjálpar sem á hjálp þurfa að halda og því hefur þessari stofnun verið komið á fót. Hefur stjómskipuð nefnd á veg- um heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra unnið að undirbúningi starfseminnar sl. 3 ár. Stjómarfor- maður er Jón Ingimarsson skrif- stofustjóri. Sjónstöðvar sem þessi eru ekki ýkja gömul fyrirbæri, ekki eru nema 10 til 15 ár síðan slík starfsemi hófst í nágrannalöndum okkar. Eitt af aðalmarkmiðum stöðvar- innar verður að tryggja að ávallt séu á boðstólum sérhæfð hjálpar- tæki af fullkomnustu gerð fyrir blint og sjónskert fólk. Áður en lengra er haldið er bæði rétt og skylt að geta þess ómetan- lega starfs sem blindrafélögin hafa unnið f sambandi við félagslega þjónustu og endurhæfingu sjón- skertra og oft við erfiðar aðstæður. Hafa félögin verið brautryðjendur í málefnum sjónskertra hér á landi sfðastliðna fimm áratugi. Einnig hafa augnlæknar að sjálf- sögðu sinnt þessu fólki. Að stöðinni hefur þegar verið ráðjð sérmenntað fólk. Ásgerður Ólafsdóttir umferlis- kennari mun leiðbeina sjónskertum með athafnir hins daglega lífs. Mun hún meðal annars kenna fólki að fara um einsömlu með hjálp hvíta stafsins og að halda heimili ein- sömlu. Slík þjálfun er oft á tíðum tímafrek og geta farið allt að 100 kennslustundir á hvem einstakling. Fram að þessu hefur oft þurft að kosta fólk á skóla f útlöndum til slíkrar þjálfunar. Hefur Sjónstöðin m.a. komið sér upp vel búnu kennsjueldhúsi til þessarar starfsemi. Á boðstólum verða einnig alls kyns hjálpartæki til að auðvelda blindum hið daglega líf. Jónfna Hreinsdóttir sjónþjálfi mælir út sérhæfð hjálpartæki svo sem sérstök gleraugu fyrir sjón- skerta, stækkunargler, sjónauka og þess háttar tæki til stækkunar á mynd og kennir einnig notkun þeirra, því að ekki er nóg að af- henda fólki einhver tæki þar sem rétt notkun þeirra skiptir oft höfuð- máli. Sjónþjálfinn mun einnig ieiðbeina fólki varðandi lestrar- og vinnuað- stöðu, bæði heima fyrir, á vinnustað og í skóla. Þá verður veitt ráðgjöf varðandi lýsingu. Rétt lýsing er eitt af höfuðatrið- unum hvað nýtingu slæmrar sjónar áhrærir og reyndar á það sama einnig við hjá öllum sem famir em að eldast, því að þörf fólks fýrir lýsingu eykst mjög með aldrinum. Til dæmis þarf fimmtugur einstakl- ingur helmingi meira ljós en fertug- ur. Stöðin mun hafa á boðstólum ljóssterka lampa og sérhönnuð Karlakór Keflavíkur til Kanada lestrarborð. Það nýjasta em lessjón- varpstæki og annar rafeindabúnað- ur sem gerir mögulegt að stækka mynd allt að 40 sinnum. Em fram- farir mjög örar á þessu sviði. Þá hefur verið ráðin að stöðinni Kristín Gunnarsdóttir sjóntækja- fræðingur (optiker) sem útbúa mun á staðnum ýmiss konar flókin stækkunargleraugu. Verður það til mikils hagræðis fyrir sjónskerta sem geta þá fengið alla þjónustuna á sama stað. Við stöðina er einnig rekin gervi- augnaþjónusta. Er sú starfsemi reyndar þegar hafin. Hana annast Stefán Baldursson augnsmiður. Augun em nú gerð úr akiylefnum en það gerir þau bæði léttari og endingarbetri. Áður vom augun gerð úr gleri. Rétt er að nota þetta tækifæri til að þakka Gísla Sigur- bjömssyni, forstjóra Elliheimilisins Gmndar, alla hans aðstoð varðandi Hluti af aðstöðu sjónþjálfa. útvegun gerviaugna um langt ára- bil. Andlit og rödd stöðvarinnar verð- ur síðan Þómnn Guðnadóttir en hún mun svara í síma, taka á móti sjúkl- ingum og annast alla skrifstofu- vinnu. Ákveðið hefur verið að stofna til tengsla við augndeild Landakots- spítala en þar fer fram öll flóknasta meðferð augnsjúkdóma. Einnig er góð samvinna við heilsugæslu- lækna, blindrakennara og ekki síst Smlði gerviaugna er eina starf- semin sem þegar er hafin. augnlækna mikils virði enda er sjónskerðingin oftast lokastig ákveðinna augnsjúkdóma sem læknirinn er búinn að meðhöndla ýmist með gleraugum, lyfjum eða aðgerð. Segja má að Sjónstöðin taki við sjúklingunum til þjálfunar þegar læknismeðferðinni lýkur. Nú era 450 manns lögblindir hér á landi, þ.e. 100% öryrkjar vegna sjónskerðingar. Af þeim er þó að- eins um þriðjungur alblindur. Selfoasi. KARLAKÓR Keflavikur hélt tónleika í Hótel Örk fimmtu- daginn 24. júlí sl. Tónleikarair voru liður i undirbúningi fyrir þriggja vikna söngferðalag kórsins til Kanada. Á söngskránni í Hótel Örk vom að mestu leyti islensk lög og tókst kómum vel upp í söng sínum. Meðal hinna 36 söngmanna kórs- ins em þrír sem sungið hafa með kómum frá stofnun hans, í 33 ár, Jón M. Kristinsson, Magnús Jóns- son og Jakob Indriðason. í Kanada mun kórinn haida tónleika í 5 borgum, Winnipeg, Calgary, Vancouver, Seattle og Edmonton. Kórinn mun syngja tvisvar í Gimli, fyrst á íslendinga- deginum og sfðan þegar kórinn kemur til baka frá vesturströnd- inni. Einnig verður sungið á Morgunblaðið/Börkur Guðmundur Viggósson við eitt af augnskoðunartœkjum stöðvarinnar sem Kiwanisklúbburinn Esja hefur gefið. Þessar upplýsingar em fengnar úr síðustu og jafnframt nákvæmustu blindrakönnun sem gerð hefur verið hérlendis en hana annaðist Guð- mundur Bjömsson yfirlæknir augndeildar Landakotsspítala árið 1979. Guðmundur er reyndar einnig einn helsti hvatamaður að stofnun Sjónstöðvarinnar. Fleiri em sjónskertir hér á landi en þeir sem lögblindir em. Á ég þar við þá einstaklinga sem em það sjóndaprir að venjuleg lestrargler- augu koma ekki lengur að tilætluð- um notum. Ætla má að þennan hóp fylli um 2.000 manns. Gera má ráð fyrir að margir þeirra þurfi á þjón- ustu stöðvarinnar að halda enda gera lífshættir nútimamannsins æ meiri kröfur til sjónarinnar. Segja má að sjónin hafi aldrei skipt mann- inn jafnmiklu máli og nú á tímum upplýsinganna. Aðstoð eins og Sjónstöðinni er ætlað að veita getur skipt sköpum um hvort sjónskertir geti verið að mestu sjálfbjarga eða þurfi að vist- ast á stofnunum. Langalgengasta orsök sjóndepm hér á landi er svokölluð „kölkun i augnbotni" eða réttara sagt elli- rýmun í lestrarpunkti sjónhimnu. Láta mun nærri að helmingur lög- blindra sé sjónskertur af þessum völdum. Þessi sjúkdómur leggst nær ein- göngu á roskið og gamalt fólk og er um helmingur fólks um áttrætt haldinn honum á misháu stigi. Yfirleitt er ekki um neina lækn- ingu að ræða en langoftast er hægt að kenna fólki að nýta betur þá sjón sem eftir er, þ.e. hliðarsjónina. Næstalgengasta orsök sjónskerð- ingar er hægfara gláka. Blindu af völdum gláku er í flestum tilvikum hægt að fyrirbyggja með forvamar- starfi, þ.e. að fínna sjúkdóminn á byijunarstigi áður en skemmdir á sjón em orðnar vemlegar og með- höndla hann með lyfjum, leysigeisl- um eða skurðaðgerð. Á þessu sviði hafa fslenskir augn- læknar lyft Grettistaki með augn- þrýstingsmælingum og vel skipulögðum augnlækningaferðum um landið enda hefur blinda af völd- um gláku minnkað vemlega á síðari ámm. Reyndar er eitt af hlutverkum Sjónstöðvarinnar að safna upplýs- ingum um orsakir Og eðli blindu- valdandi sjúkdóma og miðla almenningi. Af öðmm orsökum sjónskerðing- ar má nefna meðfædda augnsjúk- dóma, slys og blindu af völdum sykursýki, sem er vaxandi vanda- mál hér sem í öðmm velmegunar- þjóðfélögum. Sjónstöðin mun fyrst og fremst taka til meðferðar þá sjúklinga sem augnlæknar senda til hennar. Ráð- gert er að sjúklingar greiði fyrir þjónustuna svipað gjald og greitt er fyrir sérfræðilæknisþjónustu al- mennt. Enn hefur ekki verið endanlega ákveðið hve stóran hlut sjúklingar muni greiða í hinum ýmsu hjálpar- tækjum en víst er að hann verður engum ofviða. Því miður hefur orðið talsverður dráttur á að stöðin taki til starfa. Fyrst og fremst vegna fjárskorts enda kostnaður orðinn talsvert meiri en áætlaður var. Vantar nú aðeins herslumuninn á að starfsem- in geti hafist og vonumst við til að allt verði komið í fullan gang með haustinu." Karlakór Keflavíkur sjúkrahúsum og elliheimilm þar sem íslendingar dvelja. Það er Ted Ámason borgarstjóri í Winnipeg og kona hans sem skipulagt hafa ferðina og verða fararstjórar. Alls verða 96 manns í hópnum sem fer til Kanada. Á söngskránni í Kanada verða að mestu íslensk lög og einsöngv- arar verða Sverrir Guðmundsson og Jón M. Kristinsson. Söngstjóri er Siguróli Geirsson og undirleik- ari frú Ragnheiður Skúladóttir. Sig. Jons.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.