Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
Filippseyjar:
Tolentino ákærður
fyrir uppreisnina
Manila, AP.
LÖGREGLA lagði í gœr fram
ákæru á hendur Arturo Tol-
entino, fyrrum utanríkisráð-
herra og varaforsetaefni
Marcosar, og 40 öðrum ein-
staklingum, sem tóku þátt í
misheppnaðri uppreisn gegn
Aquino-stjórninni fyrr í þessum
mánuði.
Neptali Gonzales, dómsmálaráð-
herra, segir, að samkvæmt lögum
muni saksóknari nú framkvæma
undirbúningsrannsókn til þess að
ganga úr skugga um, að ástæða
sé til réttarhalda yfír mönnunum.
Verði það raunin munu handtöku-
tilskipanir verða gefnar út á
Tolentino og fylgismenn hans.
Aquino forseti hafði áður boðið
mönnunum sakaruppgjöf ef þeir
vildu vinna eið að bráðabirgða-
stjómarskrá landsins. í gær unnu
fjölmargir hermenn, þar á meðal
Enrile, landvamaráðherra, Ramos,
yfirhershöfðingi, ásamt æðstu yfir-
mönnum Filippseyjahers, eið að
stjómarskránni og hétu Aquino
trúnaði við hátíðlega athöfn á
Menuhin í Skotapilsi
Yehudi Menuhin, fiðluleikarinn heimsfrægi, klæddist Skotapilsi
er hann var í fararbroddi fiðluleikara við setningu 13. Sam-
veldisleikanna í Edinborg sl. fimmtudag.
ýmsum stöðum í landinu. Tolentino
neitaði að vinna eiðinn, en tveir
hershöfðingjar, sem studdu hann
í uppreisninni, tóku þátt í athöfn-
inni. Annar þeirra, Luther Custid-
io, var á sínum tíma ákærður fyrir
þátttöku í mórðinu á Benigno Aqu-
ino, eiginmanni Aquino forseta, en
sýknaður. Hugsanlegt er, að morð-
málið verði tekið til nýrrar rann-
sóknar.
Enrile sagði eiðtökuna í gær
hafa verið nauðsyulega til að eyða
orðrómi um að heraflinn væri ekki
trúr Aquino forseta. Ramos minnti
hermennina á, að forsetinn væri
æðsti yfirmaður heraflans.
Eftir uppreisnartilraun Tolentin-
osar bannaði stjómin flöldafundi
stuðningsmanna Marcosar. Á
sunnudaginn eyddi lögreglan
slíkum fundi, sem aðstandendur
höfðu sagt vera söngkeppni, í
Manila með harkalegum aðferðum
og beitti m.a. táragasi. Skömmu
seinna börðu Marcosar-sinnar
mann nokkum til bana, þar sem
þeir töldu hann vera stuðnings-
mann Aquinos. Margir fréttamenn
og ljósmyndarar vom vitni að at-
burðinum og skárust í leikinn, en
maðurinn lést á leiðinni á sjúkra-
hús.
Skákmótið í Bienne:
Lobron efst-
ur eftir
6 umferðir
Bienne, AP.
VESTUR-ÞÝSKI stórmeistar-
inn Eric Lobron var efstur
eftir sex umferðir á skákmót-
inu í Bienne í Sviss, en i þeirri
umferð sigraði hann Sviss-
lendinginn Werner Hug.
Öðmm skákum í 6. umferð
lauk með því að Polugajevski
vann Nunn og Cebalo vann
Korchnoi, en jafntefli varð hjá
Hiibner og Klinger, Greenfeld
og Hort og Rogers og Miles.
Korchnoi, sem virðist ekki hafa
gæfuna með sér á þessu móti,
tapaði einnig biðskák sinni úr
fjórðu umferð gegn Rogers.
Staða efstu manna á mótinu
eftir sex umferðir er því þannig,
að Lobron er einn efstur sem
fyrr segir með 4 V2 vinning, en
næstir koma þeir Hort og Ceb-
alo með 4 vinninga hvor og í
4.-5. sæti em þeir Nunn og
Polugajevski með 3'A vinning
hvor.
ERLENT
Kjötverð
hækkað
i Póllandi
VarHjá, AP.
PÓLSKA stjórnin tilkynnti
síðastliðinn föstudag, að verð á
kjöti myndi hækka um 8% þann
1. ágúst. Kjöt verður áfram
skammtað.
Stjómvöld höfðu þegar í mars
sagt, að gera mætti ráð fyrir hækk-
unum vegna meiri fi-amleiðslu-
kostnaðar.
Það vom óvæntar hækkanir á
kjötverði, sem komu af stað mót-
mælum verkamanna 1970, 1976
og að síðustu 1980, er verkalýðs-
samtökin Samstaða vom stoftiuð.
Allra síðustu ár hefur stjómvöldum
hins vegar tekist að hækka verð
án þess að til teljandi mótmæla
hafi komið.
Bush í Miðausturlöndum:
Ihug’ar för
tíl Marokkó
Jerúsalem, AP.
VARAFORSETI Bandaríkjanna,
George Bush, íhugar nú að fara
til Marokkó til viðræðna við
Hassan konung, eftir að hann
hefur lokið við ferð sína um lönd-
in við botn Miðjarðarhafs.
Bush ferðaðist um Jerúsalem á
mánudag og fór meðal annars að
Urban Hansen, fyrrv.
yfirborgarstjóri í
Kaupmannahöfn, látinn
Urban Hansen
URBAN Hansen, fyrrverandi
yfirborgarstjóri í Kaupmanna-
höfn, lést fimmtudaginn 24. þ.m.,
78 ára að aldri. Hann hafði átt
við erfið veikindi að stríða um
skeið.
Urban Hansen fæddist í Kaup-
mannahöfn og var af alþýðufólki
kominn. Hann gegndi margvísleg-
um trúnaðarstörfum, áður en hann
varð yfirborgarstjóri 1962, m.a. í
þágu verkalýðshreyfingarinnar og
Jafnaðarmannaflokksins, auk þess
sem hann var um tíma svæðis-
borgarstjóri í Kaupmannahöfn.
Yfirborgarstjóraembættinu gegndi
hann til 1976.
Stjórnmálastörf Urbans Hansen
náðu langt út fyrir borgarmálin og
gegndi hann þingmennsku fyrir
Jafnaðarmannaflokkinn um árabil,
bæði í Landsþinginu og síðar Þjóð-
þinginu. Hann sat í borgarstjóm frá
1946. Auk þess lét hann mikið til
sín taka í hvers kyns félagsmála-
störfum, m.a. í þágu margvíslegra
líknarfélaga.
Urban Hansen var vinsæll emb-
ættismaður, en umdeildur stjóm-
málamaður. Öllum bar þó saman
um, að hann væri aðsópsmikill og
skemmtilegur persónuleiki. Þegar
hann hætti störfum yfirborgar-
stjóra 1976, stóð fólk í löngum
röðum til að fá tækifæri til að kasta
á hann kveðju. Við það tækifæri
sagði hann: Hér eftir heiti ég bara
Hansen.
inniheldur
spúna,
flugur,
flot,
öngla,
sökkur,
girni O
o.fl. o
o
6v
35%
afsláttur
Var kr.
1.
Er kr.
845,-
Grátmúmum. Hann heimsótti enn-
fremur hæli fyrir gyðinga nýkomna
frá Sovétríkjunum, og sagði hann
að Bandaríkjastjóm myndi halda
áfram að gera allt er hún gæti, til
þess að sovéskir gyðingar fengju
að snúa til ísrael. Þá lagði hann
sveig á minnismerki um þær sex
milljónir gyðinga, sem létust í út-
lýmingarbúðum nazista.
Bush ráðgerir að ræða við ýmsa
hófsama leiðtoga Palestínu-araba,
en PLO fordæmdi heimsókn Bush
og hvatti ákaft til þess að enginn
arabi ræddi við hann. Farah Al
Araj, borgarstjóri Beit Jallah, sem
er borg setin aröbum á hinum her-
numda Vesturbakka, sagði að hann
myndi að sjálfsögðu ræða við Bush,
þar sem að viðræður gætu aldrei
haft nema góð áhrif á lausn vanda-
mála araba.
Talsmaður Bush sagði á sunnu-
dag að til greina kæmi að Bush
færi til Marokkó til þess að ræða
við Hassan Marokkókonung í fram-
haldi af fundi konungs og Peresar
forsætisráðherra Israels fyrir
skömmu.
Fundi Husseins Jórdaníukonungs
og Assads Sýrlandsforseta lauk á
sunnudag, en engin yfirlýsing var
gefin að honum loknum. Sýrland
sleit sem kunnugt er sambandi við
Marokkó í kjölfar fundar Hassans
og Peresar.
James Scott
vöðlur
á kynningar-
verði.
Aðeins kr.
10.900.
Heimsfræg
amerísk gæða-
vara
Þeir fiska
sem róa
Verslunin
eiöiv<
Langholtsvegi 111
104 Reykjavik ) 687Ö'90