Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
.33
Hafísinn
hindrar
komu
skemmti-
ferðaskipa
til Akureyrar
Milljónatap fyrir
bæinn, segir
Gísli Jónsson,
forsljóri
Ferðaskrifstofu
Akureyrar
ÞÓ HAFÍS sé ekki úti fyrir Eyja-
firði, hefur landsins forni fjandi
þó valdið Akureyringum nokkr-
um búsifjum. Hafísinn hefur
komið í veg’ fyrir komu fjögurra
skemmtiferðaskipa til Akur-
eyrar og telja Akureyringar sig
hafa orðið fyrir milljóna króna
tekjumissi vegna þessa.
Gísli Jónsson, forstjóri Ferða-
skrifstofu Akureyrar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að með
þessum skipum hefðu verið 1.300
farþegar og það munaði um minna
að fá ekki slíkan fjölda ferðamanna
í bæinn. Það væri tekjumissir fyrir
verslanir á Akureyri, áætlunarferðir
ferðaskrifstofunnar, en flest af
þessu fólki færi til Mývatnssveitar.
Þá væri þetta auðvitað tap líka fyr-
ir Mývetninga. Loks mætti nefna,
að fyrir skip, sem ekki kæmu á
staðinn fengjust engin hafnargjöld.
Tekjumissir vegna þessa hlypi því
á milljónum króna.
„Viö verðum að gera okkur grein
fyrir því að við búum nánast á hjara
veraldar," sagði Gísli, en það er
hart að geta ekki treyst á samgöng-
ur í júlí. Hingað áttu að koma 13
skip í sumar, tvö eru ókomin og
vonandi verður haflsinn ekki í vegi
fyrir þeim. Þetta er mjög alvarlegt
fyrir framtíðina, því ísinn hefur
áður hindrað ferðir skemmtiferða-
skipa hingað og verði frekari
óþægindi af þessum sökum, er
hætt við að skipin hætti að koma
hingað," sagði Gísli Jónsson.
1NNLEN*T
virðast líkumar hafa minnkað mjög
á að Japanir kaupi hvalkjöt af Hval
hf., og að hægt verði að fjármagna
hvalarannsóknaráætlun Hafrann-
sóknarstofnunarinnar með ágóðan-
um af þeirri sölu, eins og ætlunin
var. Það mun væntanlega hafa í för
með sér, að verulega verður dregið
úr rannsóknunum. Samkvæmt
veiðisamningi Hvals hf. og Haf-
rannsóknarstofnunarinnar átti sala
afurðanna alfarið að vera á ábyrgð
Hvals hf. og íslensk stjómvöld áttu
hvergi að koma nærri þeim þætti.
Það verður því Hvalur hf., sem
ber tekjutapið hefjist hvalveiðar
ekki aftur eftir 20. ágúst næstkom-
andi, þegar lokið er næstu lotu í
viðræðum íslenskra og bandarískra
ráðamanna, að sögn Kjartans Júlí-
ussonar, deildarstjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu, sem verið hefur
varaformaður íslensku sendinefnd-
arinnar á fundum AJþjóða hvalveið-
iráðsins. „Veiðamar og salan em
alfarið á ábyrgð Hvals hf., sagði
Kjartan, „en í samningnum er einn-
ig ákvæði um að fyrirtækinu sé
ekki skylt að veiða öll þau dýr, sem
hann tekur til, verði það ómögulegt
einhverra hluta vegna.“
I G/obusP
LAGMULA 5
SÍMI 681555
CITROEN ER ALLTAF Á UNDAN SINNI SAMTÍÐ
ÁRGERÐ 1987 ER Á LEIDINNI TIL LANDSINS
£
ifþú ert að hugsa um að kaupa
nýjan bíl ættirðu hiklaust að hinkra
örlítið við, því Citroén árgerð 1987er
á leiðinni - fyrsta sendingin kemur
tll landsins í byrjun ágúst.
Við fáum allargerðirnarafCitroén
bílunum - allt frá ódýrum smábílum
uppíeðalbornarlúxuskerrur, og
verðið ersem fyrr afar hagstætt.
Einnig bjóðum við mjög góð
greiðslukjör.
Hjá Citroén ersífellt unnið að
vöruþróun og fullkomnun einstakra
þátta, t.d. hefurmælaborðinuí'87
árgerðunum verið breytt til
batnaðar-en hjá Citroén eraldrei
breytt breytinganna vegna. Citroén-
lúxusinn og Citroén-gæðin eru sem
fyrrásínumstað:
Frábærhönnun, einstakir
aksturseiginleikarnir, framhjóladrifið,
vökvafjöðrunin, hæðarstillingin,
dúnmjúksætin, olnbogarýmið,
víðáttumikið farangursrýmið,
krafturinn, þrautseigjan,
tæknifullkomnunin og öll
öryggisatriðin, aðógleymdri
formfegurðinni og frönsku línunum
sem löngum hafa skipað Citroén í
sérflokk.
Líttu inn í Lágmúlann eða sláðu á
þráðinn-Citroén ’87ereinmittrétti
bíllinn fyrirþig.
GOTT TÓLK / SlA