Morgunblaðið - 29.07.1986, Side 39
mfvs'i
B00V5 PR'V
. :
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
bama og fæddur er á afmælisdegi
móður sinnar. Á þessum tímum
voru kreppuár og ekki til að dreifa
þeirri félagslegu samhjálp, sem við
þekkjum í dag. En Kristín var þekkt
af öðm en að láta bugast. Hún fékk
vinnu hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, fyrst við ræstingar en
síðar við stjóm kaffistofu, sem hún
stýrði í nær fjóra áratugi.
Kristín hélt heimili með syni
sínum til 1965. Bjó hún síðan í eig-
in íbúð við Baldursgötu 17 í
Reykjavík á meðan henni entist
heilsa. í febrúar 1984 vistaðist hún
á Hjúkmnarheimili aldraðra við
Sunnuhlíð í Kópavogi, þar sem hún
naut frábærrar umönnunar rúm-
lega síðustu tvö æviárin.
Ég man eftir Kristínu Oddsdóttur
svo lengi sem ég man eftir sjálfum
mér. I stríðsbyijun hafði hún fengið
leigt húsnæði hjá afa mínum og
ömmu, sem bjuggu í Lækjargötu
12 í Reykjavík, þar sem ég bjó jafn-
framt með foreldmm mínum. Oft
riflaði Kristín upp okkar fyrstu
kynni er munu hafa farið fram er
ég var tveggja ára og mætti henni
í stiganum á leið upp í risið, þar
sem þau Óttar bjuggu. Mér er sagt
að ég hafi þá rekið upp org mikið
og helzt viljað reka þessa bráð-
ókunnugu konu úr mínum húsum.
Engu að síður tókst með okkur
Kristínu og Óttarí vinátta, sem enzt
hefur allar götur síðan. í risið í
Lækjargötunni var gott að koma
og hlýja og glaðværð ríkti þar innan
veggja.
Kristín var kona hávaxin og
glæsileg á velli. Hún hafði silf-
urhvítt hár frá miðjum aldri, sem
hún bar með prýði. Hún var vamm-
laus, ábyrg og traust í hvetju því,
sem hún tók sér fyrir hendur. Hún
var glaðvær og hafði ríka kímni-
gáfu, hjálpsöm og fórnfús. Mér, er
minnisstætt hversu mikill styrkur
það var að hafa hana nálæga í veik-
indum afa míns og ömmu og oft
var hún til kvödd er mikið þótti
liggja við. Jafnan var slík málaleit-
an auðsótt. Hún var skoðanaföst
og lá sjaldan á orðum, ef því var
að skipta.
Mér var ánægja að líta til Kristín-
ar reglulega síðustu æviárin, því
hún bjó jafnan yfir þeirri alúð, sem
ég hafði ungur fundið hjá henni.
Nokkrum árum fyrir dauða sinn
færði Kristín mér að gjöf Biblíu,
sem afi minn hafði gefið henni á
sínum tíma. Jafnframt fylgdu nokk-
ur tilmæli varðandi útför hennar.
Mér er gjöfin einkar kær og mun
hún verða mér til minningar um
vináttu þeirra Óttars frá öndverðu.
Blessuð sé minning Kristínar
Oddsdóttur.
Sverrir Ólafsson
Kristín Odds-
dóttir — Minning
sínum til 1918 er hún veiktist og
varð sjúklingur á Stórólfshvoli og
Reykjavík í 2—3 ár. Eftir það bjó
hún í Reykjavík, þar sem hún
kynntist eiginmanni sínum, Kjart-
ani Magnýssyni frá Hvítárholti í
Hrunamannahreppi. Giftust þau
árið 1928.
Árið 1933 andast Kjartan og sit-
ur þá Kristín ein eftir liðlega þrítug
með soninn Óttar þriggja ára, en
hann höfðu þau Kjartan átt einan
Fædd 7. ágúst 1902
Dáin 19. júlí 1986
í dag fer fram útför tengdamóð-
ur minnar, Kristínar Oddsdóttur,
sem lést í Sunnuhlíð, hjúkrunar-
heimili aldraðra í Kópavogi, á
áttugasta og fjórða aldursári.
Foreldrar Kristínar voru Hallfríð-
ur Oddsdóttir og Oddur Biynjólfs-
son ábúendur á Þykkvabæjar-
klaustri í Álftaveri. Fátækt foreldr-
anna mun hafa valdið því að Kristín
var snemma látin í fóstur til vanda-
lausra eða frá fjögurra til fjórtán
ára aldurs. Það er þekkt staðreynd
að á þessum árum mótast persónu-
leiki einstaklingsins. Bams- og
unglingsár Kristínar voru enginn
dans á rósum en sterk skapgerð
hennar stóðst þá raun og efldi sjálf-
bjargarviðleitni hennar.
Kristín fluttist úr foreldrahúsum
sextán ára gömul. Það kom raunar
ekki til af góðu því þá veiktist hún
og varð að dvelja sjúklingur, fyrst
á Stórólfshvoli og síðar á Landa-
kotsspítala í ein 2—3 ár. Alla tíð
síðan bjó hún í Reykjavík.
Árið 1928 giftist hún Kjartani
Magnússyni frá Hvítárholti í
Hrunamannahreppi en hann Iést á
Vífilsstaðaspítala árið 1933. Á með-
an Kjartan lá á Vífilsstöðum
heimsótti hún hann flesta daga og
fór þá gangandi þangað suðureftir
alla leið sunnan úr Skeijafirði. Það
segir sína sögu um staðfestu og
tryggð Kristínar og lífskjörin á
kreppuárunum.
Einkasonur Kristínar og Kjart-
ans er Óttar, f. 1930. Eftir lát
manns síns hélt Kristín heimili með
syni sínum uns hann kvæntist und-
irritaðri árið 1965. Þá fluttist hún
í Iitla hlýlega íbúð á Baldursgötu
17, þar sem hún bjó siðan á meðan
heijsan leyfði.
í flóra áratugi starfaði Kristín
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Hún hafði þar eftirlit með ræsting-
um og stýrði kaffistofu starfsfólks-
ins._
Ég minnist þess er ég kom fyrst
inn á heimili Kristínar og Óttars,
ef til vill ekki alveg laus við ugg,
því auðvitað var mér ljóst að í raun
var ég þangað komin til að taka
frá henni einkasoninn, í besta falli
að deila honum með henni. En
Kristín eyddi öllum ótta sem kann
að hafa leynst í bijósti mínu. Ástúð-
leg hlýja hennar var ósvikin og kom
frá hjartanu. Ég kynntist glæsileika
hennar og reisn. Heimilið bar vott
smekkvísi og snyrtimennsku. Bæk-
ur þöktu veggi. Mér varð fljótt ljóst
að hún hafði mótaðar hugmyndir
um það hvemig hlutunum skyldi
hagað er tengdadóttirin kæmi til
skjalanna. Ég held jafnvel að henni
hafi þótt það vonum seinna að af
því yrði. Kristín vildi búa út af fyr-
ir sig og við því var auðvitað ekkert
að segja. Og hún festi kaup á litlu
íbúðinni sem áður er nefnd.
Enginn getur óskað sér betri
ömmu en böm okkar fengu að njóta
þar sem Kristín var. Ætíð var hún
boðin og búin til hjálpar og var þá
raunar sama hver í hlut átti. Orð
hennar stóðu sem stafur á bók.
Henni mátti treysta á hverju sem
gekk.
Við emm rík af minningum um
hana ömmu. Oft var suðað um að
lesa nú sögu og oft mátti amma
halda áfram að lesa þar til röddin
hreinlega brast. Kristín amma var
bókelsk og fundvís á efni sem féll
í góðan jarðveg hjá bömunum. Hún
hafði næma tilfinningu fyrir því sem
spaugilegt var í efninu og oft var
hlegið glöðum hlátri undir lestrinum
hennar ömmu.
Er heilsa Kristínar brast í byijun
árs 1984 fékk hún inni í Sunnuhlíð,
hjúkmnarheimili aldraðra í Kópa-
vogi. Þar naut hún afar góðrar
umönnunar lækna og hjúkmnar-
fólks, sem seint verður fullþökkuð.
Blessuð sé minning Kristínar
ömmu.
Jóhanna Stefánsdóttir
Látin er í Kópavogi Kristín Odds-
dóttir frá Þykkvabæjarklaustri í
Álftaveri á 83. aldursári.
Kristín fæddist 7. ágúst 1902,
dóttir ábúendanna þar, Odds Brynj-
ólfssonar og konu hans Hallfríðar
Oddsdóttur. Hún var fímmta í röð
níu systkina og em tvö þeirra enn
á lífi.
Það lýsir nokkuð lífsbaráttu fyrri
tíma, að foreldrar á bammörgum
heimilum máttu oft sjá af börnum
sínum til fósturs um langan veg svo
bjóða mætti þeim, sem eftir sátu í
heimahúsum betra lífsviðurværi.
Ekki hefur Kristín farið varhluta
af þessu í sinni bemsku í byijun
aldarinnar er hún vistaðist á ýmsum
bæjum í Álftaveri og nágranna-
sveitunum.
Á fyrsta aldursári var hún töku-
bam í Fjósum til ársins 1904, þá
var hún hjá foreldmm sínum á
Þykkvabæjarklaustri til 1906, síðan
var hún tökubam á Heijólfsstöðum
til 1908 og í Langholti til 1916.
Því næst var hún hjá foreldmm
w ■
■ ■;
HÚÐILMUR
Spennandi ilmteaondir
sem gera þér lífio léttara.
MÝKJANDI
ILMKVOÐA
Mýkjandi ilmkvoða
er nýjung í húðsnyrtingu.
Auðveld « notkun og smýgur
fljótt inn í húðina
COOL CHARM
VOPN í BARÁTTUNNI
St&an
ThöRARENSEN hf.