Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 41

Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986 41 Valgeir horfir út á sjáinn fránum augum úr brúnni á Stuðrúnu. Þessi grímseyski snáði þurfti að fara beint i háttinn eftir tónleikana og hefur liklega þótt það heldur súrt að fá ekki að vera á ballinu. Dansiball Tónleikunum lauk um kl. ellefu og hálftíma síðar hófst ballið. Um 120 manns höfðu á miðnætti keypt sig inn á ballið, en skráðir íbúar í Grímsey munu vera 114. Stuðmenn notuðu þetta tækifæri til þess að rifja upp gömul lög, sem þeir höfðu ekki spilað lengi og einnig voru sum Iög leikin í nýstárlegum útsetning- um; Búkalú í valstakti og Banka- ræninginn í polka. Ballinu átti að ljúka kl. eitt, en Grímseyingar tóku ekki í mál að hljómsveitin hætti svo snemma og endaði dansleikurinn ekki fyrr en rúmlega tvö. Stuðmenn skoða sig um í Grímsey. Stuðmenn er einstök hljómsveit að mörgu leyti; tónlist þeirra verður trauðla skipað í einhvem ákveðinn tónlistarstefnubás; segja má að þeir leiki fyrst og fremst íslenska stuð- tónlist með spaugilegum textum, en það sem skapar þeim sérstöðu meðal íslenskra ballhljómsveita, er að þeir leika aðeins eigin tónlist. Ballið í Grímsey var engin undan- tekning á hinni nánast undantekn- ingarlausu reglu, sem gildir um dansleiki Stuðmanna; hrikalegt stuð þar sem fólk á öllum aldri skemmti sér konunglega. Þrátt fyrir hávær mótmæli Grímseyinga lauk dansiballinu rétt eftir kl. tvö og bauð besti vinur Stuðmanna í Grímsey, kvenfélags- formaðurinn, liðinu í kaffí. Ekkert gistiheimili er í Grímsey, þ.a, Stuð- menn og félagar þeirra sváfu við misjöfn skilyrði í báðum kennslu- stofunum í félagsheimilinu. Marhnútar og búklaus- ir þorskar Á nýjum degi brosti sólin við Grímseyingum, og vöknuðu Stuð- menn með heimsskautsbauga undir augum. Rótaramir ómissandi gengu frá „græjunum“ og enn á ný nutu Stuðmenn gestrisni Krist- jönu, en hún og systir hennar voru óþreytandi við að dæla „kaffí og með því“ í mannskapinn. Á meðan hjálparkokkarnir lestuðu farangur- inn í Stuðrúnu notuðu sumir Stuðmanna tækifærið og skoðuðu eyna, en hinir fóru niður á bryggju að dorga. Ekki fór miklum sögum af veiðiskapnum, enda höfðu þeir lítinn frið til veiða fyrir grímseysk- um eiginhandaráritasöfnurum. Ragnhildur veiddi marhnút en aumkaði sig síðan yfír aflann og henti honum aftur í sjóinn. Þórði gítarleikara þótti það heldur ógeð- fellt, þegar drengimir á bryggju- sporðanum köstuðu þorskhausum í sjóinn til að laða að fiskinn. „Hvem- ig verður þeim við að sjá frændur sína búklausa?" spurði Þórður. „Nú, þeir éta þá,“ sögðu strákamir og þótti spumingin fáránleg. „Þetta em nú meiri barbaramir," sagði Jakob og átti þá við fískana. Reynd- ar vann Jakob það afrek að „veiða" einn slíkan búklausan þorsk. Ævintýrið skal endurtekið Grímseyjarför Stuðmanna verður lengi í minnum höfð, bæði hjá eyja- skeggjum og Stuðmönnum, og munu böm þeirra, er atburðinn lifðu, segja bamabömum sínum frá því er Stuðmenn sóttu heim Grímsey. Reyndar riðu Stuðmenn fjárhagslega ekki feitum hesti frá Grímsey, en hins vegar vom þeir svo hrærðir af viðtökum Grímsey- inga, að þeir lýstu því yfír, að hér eftir yrði Grímseyjarævintýri árleg- ur viðburður. Grein og myndir: Sveinn Andri Sveinsson Ragnhildur „fríkar út“. Þegar þú velur trimmgalla frá World Apart velur þú sjálf(ur) saman buxur og peysur. Fjölmargar geröir - nýjustu tiskulitirnir. Stæröir: Small - Medium - Large. SKÓLAVORÐUSTlG 42

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.