Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
Kveðjuorð:
Kristrún Finn-
bogadóttir Nelson
Fædd 29. desember 1917
Dáin 20. júll 1986
í dag er kvödd hinstu kvedju
hjartkær systir og mágkona okkar
hjóna, Kristrún Finnbogadóttir Nel-
son. Dúa, eins og hún var ævinlega
kölluð, var fædd á Rauðsstöðum
við Amarflörð þ. 29. desember
1917. Foreldrar hennar voru Finn-
bogi Rútur Ólafsson frá Múla í
Gufudal og eiginkona hans Jóhanna
Kristjánsdóttir frá Argilsstöðum í
Hvolshreppi. Þegar Dúa var 3ja ára
fluttist fjölskyldan búferlum til
Reykjavíkur. Finnbogi lést árið
1947, 56 ára að aldri, og átti þá
fjölskyldan um sárt að binda. Böm-
in voru 8, 7 komust upp, 3 systur
og 5 bræður, og em tvær systur
og þrír bræður eftirlifandi. Var
Finnbogi dugmikil fyrirvinna og
þau hjón einlægir og ástkærir vinir
bamahópsins.
Árið 1950 verða þáttaskil í lífi
Dúu, en þá flyst hún ásamt Guð-
rúnu systur sinni búferlum til
Bandarílq'anna, þar sem þær hafa
átt heimili æ síðan. Áður höfðu
systumar dvalist eitt ár hjá föður-
systur þeirra, Salóme, sem af
miklum myndarbrag starfiækti þá
og síðan um áratuga skeið hótel
og gistiheimili í borginni Seattle á
vesturströnd Bandaríkjanna.
Árið 1953 giftist Dúa eftirlifandi
eiginmanni, Dale K. Nelson. Fyrstu
15 árin bjuggu þau í Califomíu, en
síðan í útborg Seattle, Bremington.
Þar settu þau saman mjög fallegt
heimili í fögm umhverfi. Áttum við
hjónin því láni að fagna að njóta
gestrisni þeirra, svo og Guðrúnar
og manns hennar sem einnig búa
í Bremington, í þrem heimsóknum.
Minnumst við þessara heimsókna
og ferðalaga um fögur hémð vest-
urstrandar Bandaríkjanna með
óblandinni ánægju. En ekki er of-
sagt, að þau bönd sem bundu
systumar Kristrúnu og Guðrúnu við
fóstuijörðina, og þá sérstaklega við
Jóhönnu, móður þeirra vom óvenju
sterk. Oftlega var slegið á þráðinn
um óravegu til íslands, og hingað
komu systumar og eiginmenn
þeirra ótal sinnum og dvöldust þá
hér að jafnaði um mánaðar skeið.
Það sem okkur hjónum er sér-
staklega minnisstætt í fari og
skaphöfn Dúu er hennar lífsgleði,
dugnaður og ósérplægni, sem kom
hvað berlegast í ljós við þá um-
hyggju, nærgætni og alúð er hún
auðsýndi þeim, sem hún taldi að-
stoðar vant í daglegu lífi. Einatt
var hún, jafnt um nætur sem daga,
þess búin að rétta slíku fólki hjálp-
arhönd. Og glaðværðin fylgdi henni
jafnan sem sólargeisli. Hún var
aufúsugestur, hvar sem leiðir henn-
ar lágu. Til marks um starfshæfni
hennar og mannkosti má nefna, að
þau fyrirtæki eða aðilar sem nutu
þjónustu hennar í Bandaríkjunum,
færðu henni ósjaldan góðar gjafir
sem þakkarvott fyrir vel unnin
störf.
Fyrir um það bil ári síðan kenndi
Dúa þess sjúkdóms, sem síðar bar
hana ofurliði. Böndin við gömlu
fóstuijörðina voru svo sterk, að Dúa
taldi það bersýnilega einsætt, að
þar bæri hún sín bein. Fyrir röskum
mánuði kom hún til landsins. Og
þótt sársjúk væri, stafaði af henni
sama glaðværa viðmótið, sem var
hennar aðall allt lífíð. Við hjónin
kveðjum Dúu hinstu kveðju með
hjartans þökkum og vottum eftirlif-
andi eiginmanni, Dale, innilega
samúðarkveðju.
Kristrún Magnúsdóttir
Kristrún fæddist á Rauðsstöðum
í A-Barðastrandarsýslu. Foreldrar
hennar voru hjónin Jóhanna Krist-
jánsdóttir og Finnbogi Rútur
Ólafsson, rafvirki. Fjölskyldan
fluttist til Reykjavíkur 1920 og ólst
Kristrún þar upp ásamt sex systkin-
um.
Eftir almenna skólagöngu fór
hún fljótlega að vinna, m.a. verslun-
arstörf og vann um nokkurt skeið
í Rammagerðinni í Hafnarstræti.
Árið 1948 fór hún til Seattle í
Bandaríkjunum ásamt eldri systur
sinni og föðursystur. Eftir ársdvöl
sneri hún heim til íslands en strax
árið 1950 fór hún aftur til Banda-
ríkjanna og þá til Iengri dvalar.
1952 fór hún til Kalifomíu og
kynntist þar eftirlifandi manni
sínum, Dale K. Nelson, sem hún
gekk að eiga 11. mars 1953. Þau
hjónin bjuggu í Kalifomfu í 15 ár,
þar af um nokkurt skeið hjá tengda-
foreldrum hennar sem báðir voru
sjúkiingar.
Dúa, eins og ættingjar og vinir
kölluðu Kristrúnu, var sístarfandi
og sígefandi. Ef hún ekki gaf ver-
aldlega hluti þá gaf hún af sjálfri
sér, vinnu sem einkenndist af ósér-
hlífni og mannkærleika. Mannkostir
hennar komu einmitt hvað best í
ljós þegar einhver þurfti á hjálp að
halda. Hún hjúkraði tengdaforeldr-
um sínum í 12 ár og fluttist til
þeirra til að geta létt þeim lífið uns
yfir lauk.
Frá Kalifomíu fluttist Dúa með
manni sínum tii Bremerton í Wash-
ingtonríki þar sem hann vann
skrifstofustörf en hún við verslun.
Á miðju síðastliðnu ári kenndi hún
sér meins og fór á spítala í heima-
borg sinni til rannsóknar. Eftir
uppskurð og tveggja vikna dvöl
yfírgaf hún spítalann með þá vitn-
eskju að hún ætti aðeins nokkra
mánuði eftir ólifaða, að áliti lækna
í mesta lagi tvo til þijá.
Þann 18. júní sl. kom hún til
íslands til að eiga sína síðustu daga
meðal ástvina í landinu sem hún
unni mest. Héðan vildi hún leggja
upp í sína hinstu för.
Dúa var trúuð kona og frá trúnni
fékk hún yfímáttúrulegan styrk og
æðruleysi sem hún hélt til síðustu
stundar. Alltaf mætti okkur bros
hennar og blíða er við, ættingjar
hennar og vinir, heimsóttum hana
á heimili Geirþrúðar systur hennar
og á Landakotsspítala þar sem sjúk-
dómur hennar lagði hana loks að
velli 20. júlí.
Áður en ég lýk þessum orðum
vil ég þakka Geirþrúði alla þá kær-
leiksríku umönnun sem hún veitti
systur sinni á heimili sínu frá því
hún kom frá Bandaríkjunum og þar
til yfir lauk.
Með orðum Hallgríms Pétursson-
ar, sem Dúa þekkti sjálf af lestri
Passíusálmanna í gegnum árin,
kveðjum við í dag kærleiksríka konu
sem ávallt var reiðubúin að rétta
meðbræðmm sínum og systmm
hjálparhönd.
Fýrir blóð lambsins blíða
búinn er nú að stríða
og sælan sigur vann.
P.S. 25.12.
Ó
Blómastofa
Friðfinns
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
Opi^ öll kvöld
tll kl. 22,- éínnig um heigar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
HELGI BIRGIR MAGNÚSSON
loftskeytamaður
andaðist 25. júlí.
Guðrún Sveinsdóttir,
Sigurður Helgason, Sveinn Sævar Helgason,
Reynir Guðmundsson, Ólafur Guðmundsson.
t
Hjartkær dóttir okkar og systir,
SIGRÍÐUR ÞÓRA,
lést sunnudaginn 27. júlí á heimili okkar, Kolgerði 3, Akureyri.
Hörður Þórleifsson, Svanfríður Larsen,
Hólmfrfður.Högni og Ákl Harðarfoöm.
+
PÉTUR HOLM,
Síðumúla 21,
andaðist í Landakotsspítala 27. júlf.
Vandamenn.
+
Móöir mín, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA SVANA ÓLADÓTTIR,
lést í Landspítalanum 21. júlí. Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag, þriöjudaginn 29. júlí, kl. 10.30.
Jón Helgason, Eygló Normann,
Helgi Jónsson,
Mike Fftzgerald, Ronnie Fitzgerald,
Patricia Bailey, Vikle Shankin.
+
Útför sonar míns,
SVAVARS MAGNÚSSONAR,
bifreiðastjóra,
Fellsmúla 20,
fer fram frá Bústaöakirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.30.
Jarðsett veröur í Gufuneskirkjugarði.
Jóhanna Jónsdóttir.
+
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR J. ARADÓTTIR
frá Seljalandi,
Brekkuhvammi 2,
Búðardal,
verður jarösungin frá Hjarðarholtskirkju fimmtudaginn 31. júlí
kl. 14.
Jón E. Hallsson,
Hallur Jónsson, Áslaug Bragadóttir
og barnabörn.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
CHRISTIAN CHRISTENSEN
kaupmanns,
Álftamýri 54,
verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. júlí kl. 13.30.
Anna Kragh Chrlstensen,
Sveinn Christensen, Unnur Birglsdóttir,
Björn Christensen, Slgfrfður Friöþjófsdóttir
og barnabörn.
+
Útför konunnar minnar og systur okkar,
KRISTRÚNAR FINNBOGADÓTTUR NELSON,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Dale K. Nelson,
Geirþrúður Finnbogadóttir,
Guðrún Finnbogadóttir,
Sigurður Finnbogason,
Kristján Finnbogason,
Ólafur Finnbogason,
Armand J. Beaubien,
Camilla Svelnsdóttir,
Kristrún Magnúsdóttir,
Kristjana Jónsdóttir.
+
Útför eiginmanns míns og föður okkar,
INGÞÓRS ÞÓRÐARSONAR,
Sólvöllum,
Mosfellssveft,
verður gerð frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 30. júlí kl. 15.00.
Aðalheiður Finnbogadóttir,
Guðrún Ingþórsdóttir, Ingunn Ingþórsdóttir,
Þórður Ingþórsson, Ómar Ingþórsson.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJARNFRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR,
Meðalbraut 4,
Kópavogl,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 30. júlí kl.
10.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Vilhjálmur Guðlaugsson,
Sjöfn Guðlaugsdóttir Pent,
Dagmar Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar,
JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Felli,
Hjaltabakka 6,
lést þann 27. júlí. Jarðarförin auglýst síðar.
Börnin.