Morgunblaðið - 29.07.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 1986
51
Þessir hringdu ..
Afleit þýðing’
Matthías Frímannsson
hringdi:
„Eg rakst á auglýsingabækling
frá Söguleikunum um sýningu á
Njálu um daginn og get ekki orða
bundist yfir því hve þýski textinn
er ilia unninn. Bæklingurinn er
skrifaður á fjórum tungumálum
og er þýski textinn 10 línur en
samt eru um það bil 30 stafsetn-
ingar-, mál- og málfræðivillur í
honum.
Það er þegar búið að prenta
þennan bækling í 10.000 eintök-
um og liggur hann frammi á
hótelum en ég myndi ekki rétta
þennan bækling nokkrum ferða-
manni. Ég er viss um að Þjóðveij-
ar sem lesa þennan bækling hugsa
sig tvisvar um áður en þeir fara
á sýninguna. Löggilt þýðing á
þetta litlum texta hefði kostað
innan við 1000 kr.
Burtséð frá þessu finnst mér
ófagurt að sjá í auglýsingum frá
þeim að sýningar fari fram undir
opnum himni, betur færi á að
nota undir berum himni."
Uppdráttar-
sýki í Lands-
bankanum?
H.J. hringdi:
„Nýlega birtist í Morgunblað-
inu grein eftir Eyjólf Konráð
Jónsson, alþingismann. Þar full-
yrðir hann að það sé á allra vitorði
að SÍS eigi ekki til veð fyrir skuld-
um sfnum í Landsbankanum. Ég
hef hvergi séð svar frá Lands-
bankanum við þessum upplýsing-
um og er þögn þá líklegast það
sama og samþykki? E.t.v. ættum
við sem eigum fáeinar krónur á
bók í Landsbankanum að flýta
okkur að taka þær út. Það er
engu líkara en það sé komin smit-
andi uppdráttarsýki í bankana
okkar."
Óhæfa í
útvarpinu
Spakur hringdi:
„Eg gerði þá reginskyssu um
daginn að álpast inn í eina af
þessum búðum sem selja föt fyrir
táninga til að kaupa afmælisgjöf
á ættingja minn sem er á gelgju-
skeiðinu. Þá dundi í eyrum mér
einhver óskipulegur hávaði. Við
nánari athugun reyndist hann
eiga rætur sínar að rekja til
Ríkisútvarpsins sem greinilega
má muna sinn fífil fegurri. Þetta
hefði svo sem ekki verið í frásög-
ur færandi ef ég hefði ekki neyðst
til þess að doka í smástund eftir
afgreiðslu og notaði ég tækifærið
til að hlusta eftir texta lagsins
sem kvaldi eyru mín þá stundina.
Lagið hét að þvi er mér skildist
Heilræðavísur og var flutt af ein-
hveijum Haraldi. í stuttu máli
sagt var texti lagsins einhver
mesta óhæfa sem borist hefur
eyrum mínum, bæði ruddafenginn
og ómerkilegur fyrir utan það að
samsetningin var hinn mesti Ieir-
burður og hlýddi engum bragregl-
um. Krefst ég þess að tekið verði
í eitt skipti fyrir öll fyrir flutning
á þessum ósóma eða ég sé mig
neyddan til að hætta að hlusta á
útvarpið. Það væri nú reyndar lítil
fóm af minni hálfu."
Leiðrétting á
frétt Ólafs
Sigurðssonar
Vestarr Lúðvíksson hringdi:
„Ég vil þakka Ólafí Sigurðssyni
fréttamanni fyrir ágætan þátt um
siðferði, en hann var á dagskrá
sjónvarps 22. sl. Að auki vil ég
þakka Ásgerði Jónsdóttur kenn-
ara fyrir ágæta grein í Morgun-
blaðinu sama dag.
í þætti sínum lauk Ólafur um-
ræðunni með þeim orðum að koma
mætti í veg fyrir ýmiss konar
makk, vandræði og hagsmuna-
árekstra ef menn gerðu sér ávallt
far um að segja sannleikann.
Þetta minnti mig á pistil sem Ólaf-
ur sjálfur flutti í sjónvarpinu 12.
maí sl. en þar gerði hann hvalveið-
ar Færeyinga að umtalsefni sínu.
Hann lét þess getið að hugsanlega
yrði aukin almenn andstaða við
veiðamar til þess að Færeyingum
reyndist erfiðara að selja hvalaaf-
urðir sínar erlendis. Ég varð hissa,
því mér vitanlega hafa þeir aldrei
selt hvalaafurðir • sínar út fyrir
Færeyjar. Ég tjáði Ólafí þetta.
Hann var vantrúaður á þessa full-
yrðingu mína en sagðist ætla að
leiðrétta fréttina, hefði hann farið
rangt með staðreyndir. Síðan hef
ég fengið þær upplýsingar frá
kunnugum mönnum í Færeyjum
að ég hafí haft á réttu að standa,
en enn bólar ekki á leiðréttingu
Ólafs Sigurðssonar. Þar sem hann
kvað réttilega svo dyggðugt að
segja ávallt sannleikann datt mér
í hug að hann gæti byijað á þess-
ari leiðréttingu. Að öðm leyti
þakka ég Ólafi enn fyrir góðan
þátt.“
Lagfæring
Sigurkarl Stefánsson hringdi:
„Eg vil gera smálagfæringar á
bréfí sem birtist frá mér í Velvak-
anda fímmtudaginn 24. júlí. Betur
hefði farið á að hafa niðurlagið
svona:
Önnur, þriðja og ijórða ljóðlína
byija þá allar á sama orðinu og
næsta lina á undan þeim endar á
þó að ljót verði ljótt, beri að ber
og snót að snótin."
Týndi mánaðar-
launumim
Sigríður hringdi:
„Sonur minn 11 ára varð fyrir
því óláni um daginn að týna pen-
ingaveski með mánaðarlaununum
sínum. Þetta hefur líklega gerst
annað hvort á Ásvallagötu eða
Tómasarhaga. Ef einhver rekst á
veskið er hann vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 10820.“
Vísa vikunnar
Ég held ég bara segi svei
við Sverris fúla gríni.
In the mouth I make my way
to mr. Paddy Feeney.
Hákur
Ljót bygging
Kjósandi skrifar:
Mikið lifandis ósköp er nýja Hag-
kaupshúsið (Kringlan) hryllilega
ljót bygging. Hún er eins og ferlíki,
vægast sagt einn hryllingur. Það
er eins og tröllahendur hafí kastað
steypu á lóðina og hrúgað upp þessu
líka afskræmi. Og mér er spum:
Hver teiknaði þetta skrímsli? Var
teikningin virkilega samþykkt í
bygginganefnd og á tilskildum stöð-
um í kerfínu? Hef ég sem kjósandi
í Reykjavík ekki leyfi til að spyija
og óska svars: Hvaða einstaklingar
fjölluðu um leyfi til byggingarinnar?
Hveijir vom meðmæltir þessari
teikningu og hveijir voru á móti (ef
einhveijir voru)? Ég fer þess vin-
samlega á leit að svör verði birt
hér á sfðum Velvakanda, svo að við
íbúamir vitum hveijir það em sem
bera ábyrgð á þessum hryllingi.
Blaðburóarfólk
óskast!
'Áos
KÓPAVOGUR
Holtagerði
Hraunbraut
Álfhólsvegur 65-
Sunnubraut
ÚTHVERFI
Ofanleiti
Kleppsvegur 8-38
Síðumúli
Fellsmúli 5-19
Hverafold
Blesugróf
Í4* 3-
Langholtsvegur 71-
108 og Sunnuvegur
Alfheimar
VESTURBÆR
Skólabraut
AUSTURBÆR
Miðtún
Samtún
Stigahlíð 37-97
Drápuhlíð 1-24
Skúlagata
fHtfgunfrliiMfe
Og þá er það síðasta
törnin á þessu sumri!
Suðurver
5.—21. ágúst — 3ja vikna
Hraunberg
5.-28. ágúst — 4ra vikna
Kerfi I. Líkamsrækt og megrun fyrir kon-
ur á öllum aldri. Flokkar sem
hæfa öllum.
Kerfi II. Framhaldsflokkar, þyngri tímar
aðeins fyrir vanar.
Kerfi III. Rólegir tímar fyrir eldri konur
eða þær sem þurfa að fara varlega
með sig.
Kerfi IV. Megrunarflokkur fyrir þær sem
þurfa og vilja missa aukakílóin
núna.
Kerfi V. Eróbikk, okkar útfærsla af þrek-
tímum með góðum teygjum.
Hörkupúl og svitatímar fyrir ung-
ar og hressar.
Sturtur — Sauna — Ljós
Glæsileg ný aðstaða
Sæluvika 22.-28. ágúst í
Suðurveri
Síðasta „sæla" sumársins.
Hörkupúl og svitatímar 7 daga í röð.
80min. tímar— 15.minljós.
Heilsudrykkur í setustofu á eftir.
Ath.: Aðeins fyrir vanar.
Allir fínna flokk
við sitt hæfí
J.S.B.
Innritun í símum:
Suðurver 83730
Hraunberg 79988