Morgunblaðið - 06.08.1986, Síða 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
172. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sam veldisráðstef nan:
Thatcher harð-
lega gagnrýnd
Lundúnum, AP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Indlands, Rajiv Gandhi, sagði á þriðjudag'
að Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, hefði fyrirgert for-
ystuhlutverki sínu innan Samveldisins, er hún hafnaði hörðum
refsiaðgerðum, sem leiðtogar sex Samveldisríkja vildu gripa til gegn
Suður-Afríku.
Breskir embættismenn sögðu að
hinar takmörkuðu refsiaðgerðir,
sem Thatcher hefði samþykkt
myndu minnka milliríkjaverslun
ríkjanna um 7,5%, en hún nemur
nú um einum milljarði sterlings-
punda á ári.
Reagan:
Engar að-
gerðir gegn
Norðmönnum
Washington, AP.
Aðgerðimar felast í því að inn-
flutningur á kolum, járni og stáli
frá Suður-Afríku verður bannaður,
nýjar fjárfestingar í Suður-Afríku
og auglýsingar á ferðum til landsins
verða bannaðar.
„Árangur fundarins er viðunandi
fyrir alla,“ sagði Thatcher að hon-
um loknum. Hann sátu leiðtogar
Ástralíu, Bahamaeyja, Indlands,
Kanada, Zambíu og Zimbabwe.
Gandhi sakaði Breta um að ala
á sundrungu innan Samveldisins og
um að fóma hugsjónum á altari
gróðahyggju.
Sjá leiðara í miðopnu.
^ AP/Sfmamynd
Margaret Thatcher undirbýr leiðtoga Samveldisríkjanna undir myndatöku í Downing-stræti 10. Á mynd-
inm eru (f.v.) Rajiv Ghandi, forsætisráðherra Indlands, Brian Mulrony, forsætisráðherra Kanada,
Kenneth Kaunda, forseti Zambíu, Lyden Pindling, forsætisráðherra Bahama-eyja, Robert Hawke, forsæt-
isráðherra Ástralíu, og Thatcher.
o
Samkomulag OPEC-ríkjanna:
Dregiðúr olíuframleiðslu
um þrjár milljónir tunna
Genf, AP.
FUNDI Samtaka olíuútflutningsríkja (OPEC) lauk í Genf í gær með
því að undirritað var samkomulag um að draga úr olíuframleiðslu til
að stemma stigu við lækkandi olíuverði. Áhrif þessa létu ekki á sér
standa og snarhækkaði olíuverð á mörkuðum í gærmorgun.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, sagði á þriðjudag, að
Norðmenn yrðu ekki beittir
refsiaðgerðum, þrátt fyrir brot
á samþykktum Alþjóða hval-
veiðiráðsins.
Reagan sagði á mánudag að
þessi ákvörðun væri gerð í trausti
þess að Norðmenn myndu ekki
hefja hvalveiðar í ágóðaskyni eftir
1987.
Samkvæmt bandarískum lögum
getur Reagan sett innflutningsbann
á norskar sjávarútvegsvörur, vegna
veiða Norðmanna á tveimur hrefnu-
stofnum, sem samþykkt hafði verið
að ekki mætti hrófla við.
Ríkisstjóm Noregs mótmælti á
sínum tíma samþykkt ráðsins, og
er því samkvæmt alþjóðalögum,
ekki bundin af henni.
Sjá Ieiðara Morgunblaðsins á
miðopnu.
í yfirlýsingu frá OPEC sagði ad
framleiðslan yrði sú sama og 1984
og yrði hún dregin saman um rúm-
lega þijár milljónir tunna á dag frá
og með 1. september til 31. október.
Norðursjávarolía frá Brent-svæð-
inu kostaði síðdegis á mánudag
10,20 dollara og hækkaði uppí 14,75
í gærmorgun, en lækkaði niður í
13,75 dollara er leið á daginn. Hér
er átt við olíu, sem afhendist í sept-
ember. Bresk Norðursjávarolía
hækkaði að meðaltali um rúmlega
þijá dollara.
Viðbrögð Norðmanna við sam-
komulaginu voru jákvæð, en olíuráð-
herra Norðmanna, Ame Oeien, sagði
að enn væri of snemmt að ákveða
hvort takmörk yrðu sett við aukinni
olíuframleiðslu Norðmanna þegar
fram í sækti.
Olíuráðherra írans gerði tillögu
um þetta samkomulag á sunnudag
og það var samþykkt seint á mánu-
dag. trakar, sem nú eiga í stríði við
írana, eru ekki aðiljar að samkomu-
laginu. Undanfama mánuði hafa
OPEC-ríkin ekki getað komist að
samkomulagi yegna þess að Iranar
vildu ekki að írakar fengju undan-
þágu.
Samkvæmt samkomulaginu mega
Irakar í raun framleiða alla þá olíu,
sem þeir vilja. En íranska sendi-
nefndin á fundinum í Genf varaði
íraka við og sagði að til væru aðrar
leiðir til að takmarka olíuframleiðslu
þeirra.
Rilwanu Lukman, forseti OPEC
og olíuráðherra Nígeríu, sagði að til
þess væri ætlast að öll olíufram-
leiðsluríki ynnu saman, Norðmenn
og Bretar þar með taldir.
Hann sagði að rætt hefði verið
við fulltrúa fimm olíuframleiðsl-
uríkja utan OPEC — Mexíkó,
Egyptalands, Angólu, Malaysíu og
Oman — og fjögur þeirra hefðu sam-
þykkt að draga úr framleiðslu sinni
sem næmi tíu prósentum.
Dalur hækkar
Lundúnum, AP.
Bandarikjadalur hækkaði
gegn flestum helstu gjaldmiðlum
heims í gær, vegna ákvörðunar
OPEC, Samtaka olíuútflutnings-
ríkja, um að draga saman vinnslu
á olíu. Nam hækkunin nokkum
veginn þeirri lækkun sem varð á
dal á mánudag.
Breska pundið hækkaði þó gagn-
vart dal og öllum öðrum gjaldmiðl-
um, sökum þess að Bretland er
fimmti stærsti framleiðandi olíu í
heiminum og ekki í OPEC-samtök-
unum.
Sjá Gengi gjaldmiðla á bls. 21.
Heimsmeistarinn tekur forystuna:
Karpov vel undirbúinn en
Kasparov langtura fremri
— segir Viktor Korchnoi í viðtali við Morgunblaðið
Lundúnum. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, bladamanni Morgnnbiaðsins.
„SÁLFRÆÐILEGA séð má gera úr því skóna að sigur Kasparovs
í dag muni hafa mikil áhrif. En einvíginu er auðvitað ekki lokið,
þetta verður án efa hörð keppni," sagði Viktor Korchnoi, stór-
meistari, í samtali við Morgunblaðið á Hotel Park Lane síðdegis
á þriðjudag, skömmu eftir að Anatoli Karpov hafði viðurkennt
ósigur sinn í fjórðu skák heimsmeistaraeinvígisins.
Karpov virtist óstyrkur strax frá Karpov kann ekki að tapa og hon-
upphafi skákarinnar á mánudag
og þegar skákin var um það bil
hálfnuð sögðu sérfræðingar á Park
Lane hótelinu að Kasparov hefði
náð undirtökunum. „Kasparov lék
af skynsemi og miklu hugmynda-
flugi," sagði Korchnoi. „Karpov
hefur greinilega reynt að undirbúa
sig vel en hann skortir dirfsku
Kasparovs, tekur ekki áhættu. Mér
fínnst augsýniiegt að hann ræður
ekki við byijanir Kasparovs og þær
koma honum úr jafnvægi."
„Að ég nú ekki tali um að
um gremst óskaplega allt lófa-
klappið, sem Kasparov fær. Að
minni hyggju er Kasparov stór-
kostlegur skákmaður. Auk þess er
hann ótrúlega sjálfstæður og lætur
engan bilbug á sér finna, þótt hann
viti að Karpov sé maður sovéska
kerfisins, sem enginn skilur nema
sá, sem hefur búið við það. Hér
eru ekki aðeins tveir ólíkir skák-
menn að takast á. Hér er líka háð
glíma milli hins nýja Sovét og
kerfiskarls fortíðarinnar. Ég veit
að ég er ekki hlutlaus," hélt Vikt-
or Korchnoi glaðlega áfram. „Og
auðvitað verð ég að viðurkenna
að Karpov kann sitt fag, annars
hefði hann náttúrlega ekki unnið
mig. En Kasparov er Karpov að
mínu viti langtum fremri og þótt
ég sé tregur til að spá vona ég
að hér í London fari sjö fimm fyr-
ir Kasparov."
Korchnoi kvaðst minnast með
ánægju veru sinnar á íslandi og
vonast til að koma í febrúar á
næsta ári en það væri ekki endan-
lega afráðið.
Af öllu er augljóst að Kasparov
er eftirlætið. Áhugi á einvíginu hér
í London virðist þó ekki ýkja mik-
ill og fjölmiðlar gera mótinu skil í
hálfgildings framhjáhlaupi. Þó
sýnist mér að sigur Kasparovs í
dag gæti að margra dómi ekki
aðeins hleypt nýju blóði í einvígið
heldur einnig ýtt undir almennan
áhuga. Því bíða menn úrslita skák-
arinnar í dag með eftirvæntingu.
Sjá einnig skýringar við
þriðju og fjórðu einvígis-
skákina á síðum 34 og 35.