Morgunblaðið - 06.08.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986
Sjö fjall-
göngnmenn
létu lífið
Lyon, AP.
Að minnsta kosti sjö fjall-
göngnmenn hafa látið lífið og
um 20 slasast síðustu þrjá daga
á Mont Blanc, hæsta fjaili Evr-
ópu. Sumir urðu fyrir stein-
skriðu, en talið er að dauða
nokkurra megi rekja til slæms
útbúnaðar.
Meðal þeirra, sem létu lífíð
var Breti, en hann beið bana
þegar öryggislína, sem hann
hafði bundið um sig slitnaði.
Tveir félagar hans voru fluttir
á sjúkrahús mikið slasaðir. Á
laugardag dóu tveir Finnar þeg-
ar þeir urðu fyrir steinskriðu
með þeim afleiðingum að þeir
féllu um átta hundruð metra.
Átök milli
Dana og
Iranskra
flóttamanna
Tönder, Danmörku, AP.
Um 40 manns voru hand-
teknir á sunnudag eftir átök
milli íranskra flóttamanna og
félaga úr dönskum vélhjóla-
klúbbi. Átökin brutust út á krá
í smábænum Tönder, sem er við
vestur-þýsku landamærin. Gera
varð að sárum nokkurra á
sjúkrahúsi, en ekki er vitað um
aðdraganda átakanna.
Irönsku flóttamennimir, sem
bíða eftir svari við umsókn
þeirra um landvistarlejrfi' í Dan-
mörku, höfðust við í tjöldum
skammt frá kránni, en voru
fluttir á einkaheimili eftir rysk-
ingamar.
Hugðu á
valdarán
í Surinam
New Orleans, AP.
BANDARÍSKIR ríkisaksókn-
arar ákærðu í síðustu viku 14
manns, fyrir að hafa skipu-
lagt valdaránstilraun i Surin-
am.
Öll fjórtán vom ákærð fyrir
að hafa brotið hlutleysislög, en
samkvæmt þeim má ekki hlutast
til um málefni annara ríkja með
vopnavaldi. Sumir hinna hand-
teknu voru ákærðir fyrir brot á
lögum um útflutning vopna og
gjaldeyris.
Hinir gmnuðu vom hand-
teknir á mánudag í síðustu viku,
um borð í flugvél, sem átti að
fiytja þá til Suður-Ameríkuríkis-
ins Surinam. Um borð í vélinni
fundust rúmlega tuttugu skot-
vopn og mikið af skotfæmm.
Flestir hinna handteknu em
málaliðar.
Grænland:
Skip til
veiða í Bar-
entshafi
Frá NJ.Bruun, fréttaritara Morgun-
biaðsins á Grænlandi.
SÍÐAR í þessum mánuði
hyggst grænlenska heima-
stjórnin senda verksmiðju-
skipið „Simiutaq" til
þorskveiða í Barentshafi.
Þetta verður í fyrsta skipti
sem grænlenskt fiskiskip
heldur til veiða utan græn-
lenskrar landhelgi.
„Simiutaq“ er nú statt í
Upemarvik og tekur þar við
afla frá sjómönnum á staðnum.
Skipið heldur brátt til Dan-
merkur með aflann en heldur
síðan til veiða í Barentshafi.
Bíll og lest í árekstri
Sex manns biðu bana og yfir 50 slösuðust, er jám- þegar með lestinni voru aðallega ferðamenn á
brautarlest rakst á bíl við Lockington í Englandi. heimleið úr sumarleyfi í Bridlington, sem er ferða-
Einum lestarvagninum hvolfdi í árekstrinum. Far- mannastaður á Norður-Englandi.
Þróunaraðstoð SÞ 1984:
Stuðningur
við Orlov
Gcnf, AP.
FJÖLMARGIR virtir eðlisfræð-
ingar hafa ákveðið að mæta ekki
á alþjóðlega ráðstefnu í Novo-
sibrisk í Sovétríkjunum til að
mótmæla meðferð stjómvalda
þar á sovéska andófsmanninum
Juri Orlov. Talið er að 100
vísindamenn frá Vesturlöndum
muni leiða ráðstefnuna hjá sér
af þessum sökum.
Vísindamenn frá fjölmörgum
Evrópulöndum hafa stofnað sér-
staka Juri Orlov-nefnd og segjast
þeir hafa óyggjandi heimildir fyrir
því að heilsu hans fari hrakandi.
Orlov dvelst nú í útlegð í smábæn-
um Kobyai nærri heimskauts-
baugnum. Orlov var einn stofnandi
mannréttindanefndarinnar í
Moskvu og hlaut hann sjö ára fang-
elsisdóm vegna afskipta sinna af
þeim málaflokki.
Með ákvörðun sinni um að
hundsa ráðstefnuna segjast vísinda-
mennirnir vilja lýsa yfir stuðningi
við Juri Orlov og mótmæla meðferð
sovéskra stjórnvalda á honum.
Austur-Þýskaland:
Tveir flvja
TVEIR Austur-Þjóðveijar flúðu til
Vestur-Þýskalands í gær. Mennim-
ir klifmðu yfir landamæragprðingu,
og stungu sér í á eina í norð-vestur-
hluta Sambandslýðveldisins. Þar
var þeim bjargað af áhöfn skemmti-
ferðabáts.
Vestur-þýska lögreglan neitaði
að gefa frekari upplýsingar um
flóttann. Á þessu ári hefur aðeins
þremur tekist að flýja til Vestur-
Þýskalands með því að komast yfir
landamæragirðingar, en austur-
þýskir landamæraverðir halda þar
uppi öflugri gæslu.
Sovétríkin löefðu fram
1% en Bandaríkin 30%
Sameinuðu þjóðunum, AP.
SOVÉTRÍKIN lögðu aðeins til
1% af allri þeirri þróunaraðstoð,
sem veitt var á vegpim Samein-
uðu þjóðanna árið 1984. Banda-
ríkin lögðu hins vegar fram 30%.
Kemur þetta fram í skýrslu, sem
byggð er á tölum frá því ári en
birt í gfær.
í heild lögðu iðnþróuðu ríkin fram
92% af þróunaraðstoð Sameinuðu
þjóðanna þetta ár en þróunarríkin
sjálf 7%. Kemur þetta fram í skýrsl-
unni, sern samin var af fulltrúum
11 vestrænna ríkja, en byggð á
tölum frá Sameinuðu þjóðunum
sjálfum.
Samkvæmt skýrslunni nam sú
aðstoð 5,5 milljörðum dollara, sem
veitt var af hinum ýmsu stofnunum
Sameinuðu þjóðanna á árinu 1984,
en nýjustu tölur, sem tiltækar voru,
eru frá því ári.
Aðstoð Sovétríkjanna og fylgi-
ríkja þeirra nam 58,9 millj. dollara.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem
Sovétríkin hafa látið Sameinuðu
þjóðunum í té, kemur í Ijós, að „hver
svo sem þróunaraðstoðin er frá því
landi, þá er hún veitt nær eingöngu
á gagnkvæmnisgrundvelli“.
Iðnríkin létu í té 5 milljarða doll-
ara af þeirri aðstoð, sem veitt var á
vegum Sameinuðu þjóðanna, en af
þeim voru Bandaríkin það land, sem
lagði mest af mörkum eða 1,67 millj-
arða dollara. Næst kom Japan með
1,26 milljarða dollara.
Svíþjóð, Noregur og Danmörk
lögðu fram 513 millj. dollara alls,
Vestur-Þýzkaland 340 millj. dollara,
Kanada 263 millj. dolíara og Bret-
land 251 millj. dollara. Önnur lönd,
sem lögðu fram verulegar fjárhæðir,
voru Frakkland með 179 millj. doll-
ara, Ítalía með 136 millj. dollara,
Holland með 132 millj. dollara og
Ástralía með 69 millj. dollara. ins, var undirrituð af fulltrúum Japans, Noregs, Spánar, Bretlands
Skýrsla þessi, sem gefin var út Ástralíu, Belgíu, Kanada, Dan- og Bandaríkjanna.
sem skjal á vegum Allsheijarþings- mörku, Vestur-Þýzkalands, íslands,
Undirheimar Ítalíu:
Olögleg sölustarfsemi
og svikin vara á Rimini
Tórínó. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunbladsins.
RIMINI er háborg ólöglegrar sölustarfsemi en hvergi annars staðar
á Italíu starfa jafnmargir við að selja varning ólögiega á ströndinni.
Þetta kemur fram í grein ítalska dagblaðsins La Stampa á föstudag.
Þar er greint frá herferð gegn þessari óiögmætu iðju, sem er atvinna
margra, sérstaklega innflytjenda frá Norður-Afríku.
Flestir ef ekki allir ferðamenn,
sem lagt hafa leið sína til suðrænna
sólarstranda kannast við sölumenn,
oftar en ekki dökka á hörund, sem
ganga með fram ströndum og bjóða
ýmiss konar vaming. Oft ósvikna
vöru á góðu verði, en því miður vill
einnig brenna við að boðið er upp á
svikna og jafnvel illa fengna vöru.
Italir hafa nú skorið upp herör gegn
þessari ólöglegu verslun, sem er
hvað mest stunduð í Adríahafi, á
Rimini og strandbæjum þar í grennd.
Yfírleitt gengur þetta þannig fyr-
ir sig að „heildsalar" kaupa mikið
vörumagn fyrir lágt verð í verksmiðj-
um og mætti þar nefna stutterma-
boli, sundfatnað, buxur, peysur, úr
og skaitgripi. Til að selja þennan
vaming em yfirleitt fengnir Norð-
ur-Afríkubúar, sem bjóða vörumar
á „kostakjömm" undir fölsku flaggi.
Nefna má dæmi um fatnað merktan
Armani, Christian Dior og öðmm
þekktum fyrirtækjum. Þá má nefna
„ekta“ gullhringi, sem gyllingin
flagnar af eftir nokkur sjóböð,
svissnesk „gæðaúr“ sem hætta að
ganga áður en sólarlandaferðinni
lýkur og áfram mætti telja í svipuð-
um dúr.
Ekki er í öllum tilfellum um svikna
vöm að ræða, en oft er erfítt fyrir
aðra en fagmenn að greina ekta
hluti frá sviknum (sérstaklega þegar
slappað er af í volgum sandinum
með ljúfa hafgolu, sem leikur um
gullbrúnt hömndið og jafnvel bjór-
glas við höndina). Þeir sem stunda
heiðarlega verslun em síður en svo
hrifnir af þessari samkeppni.
„Stundum em sömu vömmar seldar
á ströndinni og em til sölu í minni
verslun,“ segir óánægður verslunar-
eigandi á Rimini í viðtali við dag-
blaðið La Stampa. „Stuttermabolur,
sem kostar 20 þúsund lírur hjá mér
(um 550 kr.) er seldur á hálfvirði á
ströndinni, vegna þess að af honum
er ekki greiddur söluskattur og ann-
ar kostnaður, sem ég þarf að greiða.
Fólki finnst það að sjálfsögðu gera
góð kaup og lítur á okkur kaupmenn
sem hina örgustu okrara. Hvemig
eigum við að geta útskýrt þetta fyr-
ir fólkinu?" spyr kaupmaðurinn og
heimtar að eitthvað verði gert í
málinu.
ítalska lögreglan hefur stöðvað
tugi ólöglegra sölumanna undan-
farið. „En þeir em komnir á sinn
stað daginn eftir af því að þeir hafa
enga aðra atvinnu að fá,“ er haft
eftir einum lögregluþjóni. „Við höf-
um ekki mannafla til að stöðva þessa
ólöglegu sölustarfsemi nema að litlu
leyti. „Heildsalarnir" eru klókir. Þeir
taka vegabréf sölumannanna í sína
vörslu og hóta að afhenda þau ekki
aftur hagi þeir sér illa,“ segir hann
ennfremur.
Mun hér vera um þijátíu prósent
af þeirri þjónustu og verslun, sem í
boði er á ferðamannastöðum að
ræða og það samsvarar um tíu millj-
arða líra eða tæplega þremur millj-
ónum króna á sumri.