Morgunblaðið - 06.08.1986, Blaðsíða 63
63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986
Morgunblaðið/Júlíus
Þannig var umferðin á mánudagskvöld, samfelld bilalest á leið til
Reykjavíkur en aðeins einn bill á leið út úr borginni.
smáóhöpp stað en þau voru ekki
alvarleg. Þó nokkuð rigndi en gest-
ir í Þórsmörk létu það ekki á sig
fá að sögn lögreglunnar.
í Galtalækjarskógi var margt um
manninn. Þar var veður betra en í
Þórsmörk, þratt fyrir skúrir alla
dagana. Fór allt mótshald vel fram
og engin óhöpp urðu, en lögreglan
á Hvolsvelli þurfti að hafa afskipti
af 8 ökumönnum vegna of mikils
hraða á vegum úti.
Færra á Laugiim en
búist var við
Á Laugum í Suður-Þingeyjar-
sýslu voru um 2.000 manns
samankomin, en það er nokkru
færra en mótshaldarar bjuggust
við. Voru aðallega unglingar rétt
yfir fermingu sem héldu til á Laug-
um yfir helgina og var ölvun lítt
áberandi og óhöpp með minnsta
móti.
í Vaglaskógi var töluverður fjöldi
ungmenna samankominn, en þar
voru hátt á annað þúsund manns.
Bílvelta í
ÞAÐ ÓHAPP átti sér stað í
Svínadal um kl. 22.30 á mánu-
dagskvöld, að jeppa-bifreið af
Toyota-gerð ók út af veginum
og fór einar þrjár veltur áður
en hún hafnaði í skurði.
Tvennt var í bifreiðinni, þegar
slysið átti sér stað, en sluppu þau
bæði við meiðsl, enda voru þau
bæði í bílbeltum. Bfllinn mun hins
vegar vera svo gott sem ónýtur.
Samkvæmt upplýsingum lögregi-
unnar á Húsavík var mi'.cil ölvun
en þó lítið um slagsmál og fá óhöpp.
Lögreglan á Húsavík þurfti hins
vegar að hafa töluverð afskipti af
ölvuðum ökumönnum, en alls voru
9 gripnir vegna þess að þeir keyrðu
undir áhrifum áfengis. Hins vegar
var þess ekki mikið vart að öku-
menn ækju um á ólöglegum hraða.
Þá stöðvaði lögreglan marga öku-
menn til að athuga ástand bifreiða
og ökumanna og voru ökutæki yfir-
leitt í góðu lagi.
Ölvun, kuldi og góð
stemmning í Skeljavík
MILLJ 15 og 16 hundruð manns
voru á útihátiðinni í Skeljavík í
Steingrímsfirði á Ströndum um
Verslunarmannahelgina. Fór hátíð-
in vel fram að sögn heimamanna,
þrátt fyrir kulda og töluverða ölvun.
Þetta er í fyrsta sinn sem úti-
hátíð er haldin á þessum stað.
Stefán Gíslason sveitarstjóri á
Hólmavík sagði í samtali við Morg-
Svínadal
Að sögn Sigvalda Guðmundsson-
ar varðstjóra hjá lögreglunni í
Búðardal, gekk umferðin yfirleitt
vel fyrir sig við Breiðafjörð og akst-
urslag flestra til hins mesta sóma.
„Þó var eins og ökumenn væru
ekki eins vakandi á mánudags-
kvöldið og áður; t.d. var töluvert
um það að menn gleymdu að kveikja
ökuljósin," sagði Sigvaldi, og kvað
hann umferð hafa verið nokkuð
stöðuga þá og mikla.
unblaðið að stemmning hafi sér
virst góð og fólkið skemmta sér
vel. Mest var þama af fólki um og
yfír tvítugt, flest þeirra frá Vest-
íjörðunum. Fór það að tínast að
seinni part föstudagsins, og var
ekki mikið los á fólki uns það hélt
til síns heima á mánudag, en flest-
ir voru famir um tvöleytið á
mánudag.
Ölvun var allmikil að sögn Stef-
áns en samt taldi hann að hátíðin
hafi verið friðsamari en mörg böll
sem hafi verið haldin á svæðinu.
Ekki hafi orðið nein meiriháttar
meiðsl á fólki, en samt var „stöðug-
ur renningur" af fólki á heilsu-
gæslustöðina á Hólmavík að sögn
læknisins.
Björgunarsveitin á Hólmavík sá
um gæslu á svæðinu, og að sögn
lögreglunnar á Hólmavík stóð hún
sig mjög vel. Lögreglan hafði þegar
mest var 17 menn á vakt, og skráð
voru afskipti af tíu mönnum sem
vom til vandræða. Ekki átti hún
samt hægt með að stinga mönnum
inn því að næstu fangageymslur
em á Blönduósi og í Borgamesi.
Þá fékk lögreglan veður af eitur-
lyfjaneyslu á svæðinu og vom
gerðar upptækar nokkrar pípur og
u.þ.b. gramm af hassi.
Samt lagði lögreglan áherslu á
að þarna hafi ekki verið neinn
skríll, bara ungt fólk að skemmta
sér. Þrátt fyrir kulda og ölvun varð
það engum til meins því að Björgun-
arsveitin sá um að koma þeim sem
ósjálfbjarga vom í skjól fyrir kuld-
anum.
Margt um manninn
í Stykkishólmi
Stykkishólmi.
ÞAÐ var mikið um ferðafólk hér í
Stykkishólmi og nágrenni um versl-
unarmannahelgina. Fólk alstaðar
að af landi var hér, bæði á hótelinu
og svo vom tjaldstæðin yfírfull og
fólk tjaldaði líka þar sem það gat
fengið góða og fallega bletti. í Ber-
serkjahrauni vom íjöldamörg tjöld
og fólk var bæði á Hraunflöt og svo
í hinum skemmtilegu og fallegu og
sjálfgerðu tjaldstæðum í hrauninu,
heitt var eftir því sem veðurguðirn-
ir og veðurstofan höfðu spáð veðri
og víða sá maður fólk vera að grilla
úti í náttúmnni.
Fyrir utan hótelið var fjöldi
einkabíla og jafnvel rúta og inni
var allt á fullri ferð til að þjóna
gestum og fær hótelið lof fyrir
bæði vistleg salarkynni og gott at-
læti. Aukning er þar talsverð. Þá
má ekki gleyma hraðbátnum hans
Péturs Ágústssonar og þeirra fé-
laga sem tekur 22 manns í sæti.
Hann hefir um þessa helgi haldið
uppi mörgum ferðum á dag bæði
um suðureyjar og til Flateyjar og
em þær mjög vinsælar. Baldur hef-
ir einnig aukið við sínar áætlunar-
ferðir til Flateyjar og Brjánslæk og
af þessu sést að það hefir verið hér
í Hólminum og nágrenni eins og á
einskonar þjóðhátíð.
Þegar ekið er upp um sveit fer
ekki á milli mála að mörgum bflum
mætum við og rútan okkar er alltaf
dagviss og nú flutti hún einnig hóp
sem hér ætlaði að vera yfir verslun-
arhelgina og svo aðra sem ætluðu
að heiman og suður, allt á ferð og
flugi. Eg held að umferðin aukist
með ári hveiju. Og ekki verður
annað séð en velmegun ríki alsstað-
ar og gaman og gott að fólk skuli
geta notið helgarinnar.
Ámi.
Nær engin ölvun í
Bjarkarlundi
í BJARKARLUNDI í
Austur-Barðastrandarsýslu sá
starfsfólk hótels Bjarkarlundar um
fjölskylduhátíð. „Það fór allt ein-
staklega vel fram hérna“ sagði
Kristinn Óskarsson, starfsmaður
hótelsins í samtali við Morgunblað-
ið. „Það sá ekki vín á nokkram
manni.“
Sagði hann að á svæðinu hafi
verið um 300 manns sem hann taldi
hæfilegt á ekki stærri stað. Þetta
var fyrst og fremst fjölskyldufólk í
tjöldum. Veðrið sagði Kristinn að
hefði verið eins og best getur orðið,
en þó var ekki mjög hlýtt.
Fólk fór að safnast saman við
Bjarkarlund seinni partinn á föstu-
dag. Töluvert los var á fólki, enda
ekki nema 50 kílómetrar á næstu
útihátíð í Skeljavík. Fólk fór svo
að tínast til sins heima upp úr há-
degi á mánudag.
Engin slys eða óhöpp urðu, „Við
þurftum ekki að úthluta svo mikið
sem einum plástri,“ sagði Kristinn.
Sagðist hann aldrei hafa orðið vitni
að hátíð sem hafi farið eins fram.
Var það annað en áður fyrr, en þá
var oft all-sukksamt á skemmtun-
um í Bjarkarlundi.
Flugdreki féll á
hústjald
Það var víðar en þar sem úti-
hátíðir vom auglýstar sem fólk
safnaðist saman og til dæmis í
Hallormsstaðaskógi vom milli 500
og 800 manns í tjöldum yfir helg-
ina. Ágætis veður var þar en fremur
kalt á nóttuni. Olvun var ekki áber-
andi. Þá safnaðist fólk einnig
saman í Ásbyrgi, og taldi lögreglan
á Raufarhöfn að þar hefðu verið
um 500 manns samankomnir. Svip-
aður íjöldi var einnig á tjaldstæðinu
í Vík, en þar var fjölskyldufólk sam-
ankomið í sérstaklega góðu veðri,
því þrátt fyrir að rigndi bæði austan
og vestan við Vík datt ekki dropi
úr lofti þar sem fólkið var saman-
komið, að sögn lögreglunnar. Hins
vegar vildi til það óhapp að maður
sem lék sér að því að svífa um loft-
in blá í flugdreka missti stjórn á
honum með þeim afleiðingum að
hann lenti á hústjaldi sem við það
lagðist saman. Slys urðu þó ekki á
fólki en tjaldið skemmdist mikið.
Þá fór fram kristilegt unglinga-
mót í Vatnaskógi með yfirskriftinni:
„Jesús lifir, en þú?“ og vom þar
mættir rúmlega 150 unglingar um
helgina.
Eins og við mátti búast var margt
um manninn á Þingvöllum og á
Laugarvatni, en á þessum stöðum
hafði verið spáð góðu veðri um
helgina. Á Laugarvatni vom all-
margir samankomnir, eða hátt á
annað þúsund manns. Var þar aðal-
lega fjölskyldufólk samankomið og
gekk allt áfallalaust. Lögreglan
þurfti þó að taka tólf ökumenn
vegna ölvunar við akstur í nágrenni
Laugarvatns.
Morgunbladið/Þröstur Garðarsson
Eins og sjá má er bifreiðin illa farin eftir veltumar.
Umferðarráð:
Þakkir til landsmanna
UMFERÐARRÁÐ hefur farið þess á leit við Morgunblaðið að
það birti eftirfarandi bréf til landsmanna:
Umferðarráð þakkar lands-
mönnum eindreginn stuðning við
nýhafið átak ráðsins og lögreglu
gegn hraðakstri og ölvunarakstri.
Jafnframt þakkar Umferðarráð
vegfarendum liðveisíu um versl-
unarmannahelgi sem m.a. kom
fram í hóflegum hraða og
almennri notkun bflbelta og ljósa.
Umferðarráð hvetur fólk til
þess að halda áfram á þessari
braut umferðarmenningar, og
minnir í því sambandi á að einnig
er brýnt að nota bílbelti í þétt-
býlisumferð.
Reykjavík, 5. ágúst 1986,
f.h. Umferðarráðs,
Valgarð Briem, formaður.
Óli H. Þórðarson, framkv.stjóri.
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍML672444
hnemiélar
Fyrir flestar geröir
dráttarvéla.
3501., - henta vel fyrir
bændurog smærri
verktaka.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Sirazsnssr
\<€
VILTll REYNA
AÐ SKRIFA
VERÐLAUNA-
BÓK?
Verðlaunasjóður
íslenskra bamabóka
auglýsir nú á ný eftir
handritum að barna- og
unglingabókum til
keppni um íslensku
barnabókaverðlaunin
1987.
Verðlaun verða 50.000
krónur að viðbættum
höfundarlaunum sam-
kvæmt samningi Rithöf-
undasambands fslands
og Félags íslenskra
bókaútgefenda. Miðað
við meðalupplag og verð
barnabóka gæti þetta
samtals numið á annað
hundrað þúsund
krónum.
Dómnefnd mun velja
verðlaunasöguna úr
þeim handritum sem
berast. Ekki eru sett nein
mörk varðandi lengd
sagnanna en við það er
miðað að þessu smni að
efnið höfði til barna á
aldrinum frá 10 -13 ára.
Handrit í verðlaunasam-
keppnina skulu send i
ábyrgðarpósti og er
utanáskriftin:
Vaka/Helgafell
Síðumúla 29
108 Reykjavík.
Sögurnar skulu merktar
dulnefni en rétt nafn
höfundar látið fylgja í
lokuðu umslagi.
Frestur til að skila hand-
ritum er til 31. desember
1986 og stefnt að því að
verðlaunabókin komi út
á vegum Vöku/Helga-
fells vorið 1987. Allar
nánari upplýsingar eru
gefnar í sima forlagsins
688300.
Stjórn
Verðlaunasjóðs
íslenskra
barnabóka