Morgunblaðið - 06.08.1986, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.08.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986 31 Filippseyjar: Vilja ógilda dóma í Aquino-morðmálinu Manila, AP. Rannsóknarnefnd hefur hvatt hæstarétt Filippseyja til að ógilda fyrri sýknudóm í máli gegn meintum morðingjum Ben- ignos Aquino. Aquino, sem var helsti andstæðingur Marcosar, þáverandi forseta, var myrtur árið 1983. Aquino var myrtur á flugvelli í Manila, er hann kom til landsins úr útlegð í Bandaríkjunum. 26 menn, þ. á m. þáverandi yfirmaður Filippseyjahers, Fabian Ver, sem voru ákærðir fyrir hlutdeild að morðinu, voru sýknaðir af hæsta- rétti, en ódæðið kennt manni nokkrum, Rolando Galman, er yfir- völd sögðu flugumann kommúnista. Galman var skotinn á flugvellinum af hermönnum um ieið og Aquino féll. Rannsóknamefndin telur sannað, að Marcos hafi skipt sér af störfum hæstaréttar með þeim hætti, að ástæða sé til að ómerkja sýknun- ina. í réttarsalnum hafi verið stjómarhermenn, dulbúnir sem ur-Þýskalands, hefur farið þess Karólína ól stúlkubarn Monte Carlo, AP. KARÓLÍNA prinsessa af Mónakó ól stúlkubam á sunnudag. Þetta er annað bam prinsessunnar, en hún átti sveinbam árið 1984. í tilkjmn- ingu furstahallarinnar segir að líðan móður og dóttur sé góð, og hafi faðirinn Stephane Casiraghi verið viðstaddur fæðinguna. Mikið var um dýrðir í tilefni fæðing- arinnar og var fánum flaggað víðs vegar Mónakó til að heiðra Karólínu og dótturina, sem skírð hefur verið Charlotte. Karólína er elsta dóttir Rainers fursta og Grace Kelly, og giftist hún Casiraghi árið 1983. Benigno Aquino réttarverðir og fylgst hafi verið með réttarhöldunum með sjónvarpsvél- um, vandlega merktum forsetanum. Einnig er sagt, að vitnum hafi verið þröngvað með ýmsum hætti til að tryggja með framburði sínum, að hermennimir yrðu sýknaðir. Loks hafi hæstaréttardómaramir verið beittir þrýstingi í sömu vem. á leit við leiðtoga Bretlands, Bandaríkjanna, Frakldands og Sovétríkjanna að Rudolf Hess, fyrrverandi aðstoðarmaður Hitl- ers, verði látinn laus úr fangelsi, af mannúðarástæðum. Kohl sendi leitogunum bréf þessa efnis að því er talsmaður vestur- þýsku stjómarinnar, Friedhelm Ost, sagði á föstudag. Hess hefur setið í Spandau-fangelsi í Berlín, er fjór- veldin fara með stjóm á, síðan árið 1946 er hann var dæmdur í ævi- langt fangeisi í réttarhöldunum í Númberg og hefur verið eini fang- inn þar síðan 1966. Hann er nú orðinn 92 ára gamall. Vesturveldin þrjú lýstu því yfir fyrir mörgum ámm að þau vildu að Hess yrði látinn laus, en Sovétmenn hafa ver- ið á móti því. Alfred Seidl, er verið hefur lög- fræðingur Hess um árabil sagði við fréttamann AP 26. júlí sl. að gamli maðurinn væri að verða blindur og þjáðist af ýmsum kvillum. Yelena Bonner: Hrellingar- aðgerðir KGB opin- skárri en áður Wcstwood, Massachusetts, AP. Hrellingaraðgerðir sov- ésku leyniþjónustunnar, KGB, í garð andófsmannsins og friðarverðlaunahafans An- drei Sakharovs og eiginkonu hans, Yelenu Bonner, hafa færst í aukana og orðið opin- skárri, eftir að Bonner kom heim úr Bandaríkjaförinni í vor, að því er ættingjar þeirra sögðu á mánudag. Bonner sagði dóttur sinni Tatiönu Yankelevich í símavið- tali, að KGB-menn í Gorkí væm nú ekki lengur að fela kvik- myndatökuvélamar, þegar þeir fylgdu þeim hjónum eftir, eins og þeir hefðu gert allt síðasta ár, heldur munduðu vélamar opinskátt. Sfmtalið á mánudag stóð í 20 mínútur og sambandið var slæmt og rofnaði stundum al- veg. „Sambandið var svo léiegt, að það getur ekki hafa verið af tæknilegum orsökum ein- göngu,“ sagði Tatiana Yank- elevich. „Tmflanirnar komu sem næst í veg fyrir að mögulegt væri að fá að vita hvemig þeim Iiði.“ Perez de Cuellar óðum að ná heilsu New York, AP. Framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, Perez de Cuellar, fékk að fara heim af sjúkrahúsi á laugardag, en þar gekkst hann undir hjartauppskurð. Hann tók við sendiherrum tveggja ríkja á heimili sínu í gær, en fer bráð- lega í sumarleyfi til að hvílast eftir sjúkrahúsleguna. Talsmaður framkvæmda- stjórans sagði að de Cuellar væri óðum að ná sér eftir upp- skurðinn, sem hann gekkst undir 24. júlí sl. og væri heilsa hans eftir atvikum góð. AP/Símamynd Fljúgandi musteri Stór loftbelgur í liki musteris svífur hér yfir einu úthverfa Tókýó, höfuðborgar Japan. Fyrirmynd loftbelgsins er japanska Kinkakuji eða „Gullna musterið". í körfunni undir belgnum eru tveir menn, Malcolm Forbes, formaður stjómar bandariska við- skiptaritsins Forbes, og vélamaður. Þeir ætla að svífa yfir landið i þessum tuttugu m háa og 15 m breiða belg og fylgja þeim tuttugu menn á bifþjólum á jörðu niðri. Helmut Kohl: * Omannúðlegt að sleppa Hess ekki Bonn, AP. HELMUT KOHL, kanslari Vest- ÞINGHOLTSSTRÆTI 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.