Morgunblaðið - 06.08.1986, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 06.08.1986, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986 55 COSPER COSPER. I02fa7 ©PIB Næst er það þáttur með síamskettinum. inn upp fyrir haus og það er það eina, sem máli skiptir, ekki satt?“ Þau Meg og Tim hafa nú verið gift í ein 4 ár og eiga þau tvö böm. Gengur ekkert illa að halda fjöl- skyldunni saman þegar báðir aðilar vinna svona óreglulega vinnu? „Jú, stundum er það æði flókið," viður- kenna þau. „Hinsvegar reynum við að vera sem mest saman, megum vart af hvort öðru sjá lengur en viku í senn. Tveimur þriðju hlutum ársins eyðum við líka í sveitahúsi okkar, ijarri öllum asa, og það er okkar sálarbjörg. Að öðm leyti reynum við að fylgja hvort öðm eftir, sé þess nokkur kostur. Meg er t.d. núna að leika í myndinni Offbeat, þar sem hún fer með hlut- verk hörkulegrar lögreglukonu, aldrei þessu vant. Ég er í fríi á meðan og fylgist því grannt með framvindu hennar mála,“ segir Tim. „Annars er Tim miklu háðari starf- inu en ég,“ segir Meg, „ég gæti alveg hugsað mér að hætta þessu brölti og flytja upp í sveit, bara strax á morgun, en það fyndist honum óhugsandi." „Já, það er kannski það undarlegasta við þetta allt sarnan," skýtur Tim inn í, „að þrátt fyrir þennan mikla aldursmun þá er Tilly í rauninni mun þrosk- aðri en ég. Ég er enn í þessu lífsgæðakapphlaupi, að eltast við eignir og fé, hluti sem í raun og vem skipta engu máli. Hún lifir hinsvegar fyrir hamingju okkar beggja svo og bamanna. Hún er alveg einstök þessi stelpa," segir hann stoltur á svip. Kvikmyndaframleiðandinn Tim Zinnemann hefur áður verið kvænt- ur - og það reyndar fjómm sinnum. „Ég held að ég hljóti bara að hafa verið of bráðlátur“, segir hann um þau mislukkuðu hjónabönd. „í það minnsta hef ég aldrei áður fundið fyrir þeim tilfinningum sem ég ber nú til Tilly. Það er fyrst núna sem ég skil allar þessar háfleygu lýsing- ar á ástinni og áhrifum hennar." Meg segir að tilhugsunin um hans fyrri hjónabönd angri sig ekki neitt. „Ég veit allt um hans fortíð og ef- ast ekki um ást hans til mín. Þess vegna hef ég ekki nokkra ástæðu til að vera afbrýðisöm út í fyrri konur hans. í rauninni er mér af- skaplega vel við þær allar, þó svo ekki vildi ég kannski fá þær í kaffí til okkar daglega." við ákváðum að gera Sæbjörgu að slysavamaskóla sjómanna. Til þess þurfti að breyta skipinu töluvert, en það dæmi gekk þó loks upp og við héldum fyrsta námskeiðið í byij- un júní. Nemendur í það skiptið vom áhafnarmeðlimir Reykjavíkur- togarans Hjörleifs. í kjölfar þessa datt okkur í hug hvort ekki væri hægt að tengja svona fræðslu ungl- ingavinnunni. Þar sem það er nú ekki vænlegt til árangurs að sitja við orðin tóm, hófumst við handa, bámm erindið undir borgarstjóra, sem tók okkur einstaklega vel. Það kom svo í hlut borgarverkfræðings að sjá til þess að þessi hugmynd yrði að vemleika," upplýsti Haf- steinn. „Ég held líka að krakkamir hafí haft gott af tilbreytingunni. Þau vinna við gróðursetningu allt sumarið og sjóvinnan er því eitthvað allt annað og öðmvísi. Það sem kom okkur kannske hvað mest á óvart var hversu dugleg þau em, ung- mennin okkar. Yfírumsjónarmaður með framtakinu var hinn gamal- reyndi sjóhundur, Ásgrímur Bjöms- son, sem er líka alveg sérstakur á þessu sviði. Hann hefur mikinn áhuga á unglingastarfí og sinnti krökkunum af ótrúlegri alúð, eins og honum er einum lagið. Meira að segja vann hann svo hugi og hjörtu krakkanna að sumar stelp- umar kvöddu hann með kossi — þeim fannst hann alveg jafn frábær og okkur fannst þau. Svo lengi sem við eigum svona ungmenni, ótrú- lega iðin og áhugasöm, þurfum við sko engu að kvíða - svo mikið er víst!“ Lúðraþytur í London í tilefni þjóðhátíðar íslendinga. Alsæl á svip — ungir íslendingar í útlandinu — blöðrur, fánar og pylsur með öllu — allt eins og vera ber. London: Síðbúinn 17. júní Pjóðarstolt er kennd sem sjaldan lætur eins ákaflega að sér kveða og þegar við emm stödd á erlendri gmnd, fjarri föðurlandi og fjölskyldu, umkringd torkennilegu fólki og verðum að semja okkur að þeirra siðum. Þá fyrst fer Islending- urinn í okkur að láta til sín heyra, víkingurinn gerir vart við sig, að maður tali nú ekki um, ef maður heyrir lög á borð við Eldgamla Isa- fold, Þýtur í laufi eða O María — ' þá fer maginn í svolítinn hnút og kökkur kemur í háls. Það er sama þó svo við setjum jafnvel að erlend- is, hugurinn leitar alltaf heim og við virðumst hafa þörf fyrir að und- irstrika uppmnann. Því hafa íslend- ingafélög sprottið upp víða um heim, félög sem samanstanda af einstaklingum, sem við finnum til samkenndar með. Þessi félög leggja sig fram um að halda hópnum sam- an, kenna afkvæmunum móðurmál- ið og síðast en ekki síst efna til hátíðarhalda, þegar það á við. Þó svo liðinn sé nú mánuður og rétt rúmlega það frá sjálfum þjóðhátíð- ardeginum 17. júní birtum við hér myndir frá hátíðarhöldunum í Lon- don. íslendingar þar komu saman í bænum Woking, sunnudaginn 22. júní til að fagna sjálfstæði föður- landsins. Hátíðin hófst með sígild- um hornablæstri undir stjóm Sigurðar Þorbergssonar. Þar á eftir predikaði sr. Jón Baldvinsson sendi- ráðsprestur og kirkjukór söng við undirleik Amar Magnússonar. Það var svo formaður félagins, Steindór I. Ólafsson, sem setti hátíðina og Ólöf Sverrisdóttir flutti hátíðarljðð. Aðalræðan var hinsvegar í höndum sendiherra Islands í London, Einars Benediktssonar. Samkvæmt áreið- anlegum heimildum tókst hátíð þessi afskaplega vel, böm jafnt sem fullorðnir skemmtu sér konunglega, nærðu sig á „pylsum með öllu“, sem sendar höfðu verið beint frá Fróni. Þegar yngstu krílin höfðu fengið nægju sína og voru orðin svolítið lúin var þeim ekið heim á leið, en foreldrunum boðið á ball í tennis- klúbb, þar skammt frá. Eins og íslendinga er von og vísa var dans- að fram á rauða nótt — gleði og glaumur í fyrirrúmi eins og vera ber á þjóðhátíð. Sendiherra íslands í London, Einar Benediktsson flytur hátíð- arræðu sina. ( NÝTT SÍMANÚMER 69-11-00 Auglýst eftir fram- boðum til kjömefnd- ar fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í # Reykjavík Samkvæmt ákvörðun stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík er hér með auglýst eftir framboð- um til kjörnefndar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Framboðsfrestur rennur úr föstu- daginn 8. ágúst nk. kl. 17.00. Samkvæmt 11. gr. reglugerðar fyrir fulltrúaráðið eiga ^ 15 manns sæti í kjörnefnd og skulu 8 kjörnefndarmenn kosnir skriflegri kosningu af meðlimum fulltrúaráðsins. Samkvæmt 5. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar telst fram- boð gilt, ef það berst kosningastjórn fyrir lok framboðs- frests, enda sé gerð um það skrifleg tillaga af 5 fulltrúum hið fæsta og ekki fleiri en 10 fulltrúum. Frambjóðandi hafi skriflega gefið kost á sér til starfans. Tilkynning um framboð berist stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, Valhöll við Háaleitisbraut. Stjórn fúlltrúaráðs sjálfBtæðiafólaganiui í Reykjavik. f Blaí)burc)arfólk óskast! KÓPAVOGUR Hraunbraut Álfhólsvegur 65- Melgerði Þverbrekka ÚTHVERFI Álfheimar Skeiðarvogur VESTURBÆR Nýlendugata Boðagrandi Selbraut AUSTURBÆR Njálsgata
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.