Morgunblaðið - 06.08.1986, Page 60

Morgunblaðið - 06.08.1986, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986 Verslunarmannahelgin ’86 Egilsstaðir: Bílvelta og árekstur TVENN umferðaróhöpp áttu sér stað í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum um helgina. Bílvelta varð skammt sunnan til við Egils- staði, við Ketilsstaði, og allharð- ur árekstur varð við Hrafnkels- staði í Fljótsdal. Þtjár manneskjur voru í bílnum sem valt útaf við Ketilsstaði og varð að flytja eina þeirra á sjúkra- húsið á Akureyri. Samtals voru sjö í bílunum sem lentu í árekstrinum og þurftu sex þeirra aðhlynningar við og þar af var einn fluttur til Reykjavíkur. Bílbelti voru notuð í hvorugu óhappinu. Heijólfur og Smyrill fluttu samtals 6.800 farþega milli lands og Eyja. Samgöngutæki höfðu vart undan að flytja fólk til Vestmannaeyja Fólksflutningar um landið gengu að mestu leyti áfallalaust fyrir sig UMFERÐIN um verslunar- mannahelgina var mjög mikil, á lofti, láði og legi. Allra mest var þó umferðin til Vestmannaeyja. A flugvellinum í Vestmannaeyj- um var slegið lendingamet, Flugleiðir fóru þangað 35 ferðir með 2612 manns, Smyrill flutti þangað 2.800 manns og Herjólfur 4.000. Flugumferð Að frátöldu flugslysinu á Rifí gekk flugumferð á landinu mjög vel fyrir sig, samkvæmt upplýsing- um flugumsjónar í Reykjavík. Fært jgxr á alla flugvelli landsins og var umferðin að mestu leyti svipuð því, sem venjulegt er á þessum tíma. Vestmannaeyjar skáru sig þó úr að því leyti, að þangað var ein mesta flugumferð í manna minnum, eða 496 lendingar samtals dagana §óra. Á föstdeginum var slegið lendingamet á flugvellinum í Vest- mannaeyjum, en þá lentu þar 172 flugvélar, en á sama tíma í fyrra voru lendingamar 108. Á mánudeg- inum var svo metið slegið aftur, en lendingamar vom þá 177. Til sam- anburðar má geta þess, að 178 lendingar vom á Reykjavíkurflug- velli þennan sama dag. ifclmingnr innanlands- farþega Flugleiða til Vestmannaeyja Ferðir Flugleiða um helgina vom samkvæmt áætlun, að því undan skildu að ein aukaferð var til Akur- eyrar og 24 til Vestmannaeyja. Frá fímmtudegi til mánudags að báðum dögum meðtöldum fluttu Flugleiðir tæplega 6.000 farþega í innanlandsflugi og þar af vom far- þegar í Vestmannaeýjaflugi 2612, eða hátt í helmingur allra farþega í innanlandsflugi, enda vom famar þðfegað samtals 35 ferðir. Aukaferðir hjá Arnarflugi Hjá Amarflugi fengust þær upp- lýsingar, að flogið hefði verið á alla 9 áætlunarstaði félagsins og hefðu verið famar aukaferðir á flesta þeirra, en enginn þeirra skorið sig sérstaklega úr. Famar vom sam- tals 40 ferðir um helgina og fluttir um 500 farþegar. Straumur frá BSÍ til Þorlákshafnar Um 12.-13.000 manns fóm um Umferðarmiðstöðina um verslunar- mannahelgina og vom brottfarir þaðan um 150. Mesti straumurinn lá til Þorlákshafnar, en þangað vom fluttir um 1.500 manns á vegum. BSÍ. í Þjórsárdal vom fluttir um 1.100 manns, 600 í Þórsmörk, 400 í Galtalæk og liðlega 100 í Skeljavík. Ferðimar gengu almennt vel, og að sögn Gunnars Sveinssonar for- stjóra var umgengni um bflana og sjálfa umferðarmiðstöðina sérstak- lega góð, miðað við það sem venjulegt er. Smyrill og Herjólfur fluttu tæplega 7000 Um 2.800 farþegar fóm með Smyrli til Vestmannaeyja á þjóð- hátíðina og eitthvað fleiri til baka. Þijár ferðir vom famar á föstudag- inn og þar af ein frá Seyðisfírði, ein ferð var farin á laugardeginum, ein á sunnudagskvöldið, tvær á mánudeginum og ein í gær. í seinni ferðinni á mánudeginum vom far- þegar frá Vestmannaeyjum um 1.700. Samkvæmt upplýsingum Ferða- skrifstofu Vestmannaeyja gengu ferðimar mjög vel fyrir sig og áfallalaust, að því undanskildu að færeyskur maður féll niður lyftuop og hlaut af einhver meiðsl. Hann liggur nú á Sjúkrahúsi Vestmanna- eyja. 4.000 farþegar fóm með Herjólfí fram og til baka á tímabilinu frá miðvikudegi til mánudags, og þar af 800 á föstudeginum. Aukaferðir vom farnar á miðvikudegi, fímmtu- degi og föstudegi, en ferðimar vom samtals 12. Olvaður ökumaður stal rútu FREMUR rólegt var á yfir- ráðasvæði lögreglunnar á Akureyri um verzlunar- mannahelgina. 8 minnihátt- ar umferðaróhöpp urðu, 4 voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og 4 gistu fangageymslumar á Akur- eyri vegna ölvunar. Á sunnudag gerðist það, að ökumaður rútu velti henni í Öxnadal, skammt frá Steins- stöðum og var hvergi sjáanleg- ur er lögreglan kom á staðinn. Síðar um kvöldið gaf hann sig fram við lögregluna og viður- kenndi ölvun við aksturinn. Ökumaðurinn var einn í rút- unni og hafði verið með ferðamannahóp á Laugum í Reykjadal. Þegar til átti að taka á sunnudag, fannst hvorki rúta né ökumaður af fyrrgreindum orsökum og sátu ferðalangamir uppi vegalausir um tíma. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins mun ökumaðurinn hafa ætlað sér að bregða sér suður yfír heið- ar, en ekki komizt lengra en í innan verðan Öxnadal. Morgunblaðið/Börkur Útisamkoman Gaukur á Stöng gekk stóráfallalaust fyrir sig, en þangað komu um 3.000 manns sér til skemmtunar. Margt var gert til afþreyingar og meðal annars komu fram þijár hljómsveitir sem léku fyrir dansi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.