Morgunblaðið - 06.08.1986, Side 62

Morgunblaðið - 06.08.1986, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1986 Verslunarmannahelgin ’86 f Morgunblaðið/Sigurgeir Tíu þúsund samankomin VERSLUNARMANNAHELGIN gekk stóráfalla- laust fyrir sig á helstu móts- og samkomustöðum á landinu, þrátt fyrir að í sumum tilfeilum hefði mikill fjöldi fólks verið samankominn. Lang fjöl- mennasta samkoman var á Þjóðhátiðinni í Vestmannaeyjum, en þar voru tíu þúsund manns samankomnir í Herjólfsdal þar sem hljómsveitin 'r Stuðmenn lék fyrir dansi. Einnig var mikið fjöl- menni á bindindismótinu í Galtalækjarskógi, en talið er að þar hafi um það bil 6.000 manns safn- ast saman. Okuhraði á vegum úti var að sögn lögreglunnar í flestum tilvikum sómasamlegur og þrátt fyrir að borið hefði á ölvun við akstur var hún ekki meiri en við var að búast, en samt of mikil. Glatt á hjalla í Heijólfsdal. Vask- ir sveinar í leit að lit á kroppinn. í Herjólfsdal „Ævintýri líkast“ — segir formaður Þórs Vestmannaeyjum. •TALIÐ er að um tíu þúsund manns hafi verið á Þjóðhátíðinni í Vest- mannaeyjum um helgina og var aðkomufólk þar í meirihluta. íbúar í Vestmannaeyjum eru nú um 4.800. Er þetta meiri fjöldi gesta en áður hefur þekkst á Þjóðhátíð. Þrátt fyrir þennan mikla mann- fjölda fór hátíðin að flestu leyti vel fram og án verulegra áfalla. Veður var einstaklega gott alla þrjá dag- ana nema hvað stórdropóttur rigningaskúrir kom á sunnudags- kvöldið. Ölvun var allmikil á hátíð- inni en þó ekki áberandi meiri en áður á þjóðhátíðum. Það skyggði nokkuð á þjóðhátíð- ina að brennukóngur hennar í áratugi, Sigurður Reimarsson, brenndist talsvert í andliti og á höndum á föstudagskvöldið. Þegar hann bar logandi kyndil að brenn- uni varð mikil sprenging og öll >brennan varð alclda á svipstundu. Talið er að bensíni hafi verið skvett á bálköstinn og bensíngufur mynd- ast í holrúmum. Sigurður var þegar fluttur á sjúkrahús og mun liggja þar í nokkra daga. Agnar Angantýsson, yfirlög- regluþjónn, sagði í samtali við Morgunblaðið að miðað við allan þann mannfjölda sem hátíðina sótti mætti segja að hún hefði farið vel fram. Sextán lögregluþjónar voru við störf þessa helgi og sagði Agn- ar það svipaðan fjökía og áður. Taisvert annríki var hjá lögreglunni ^og gestkvæmt í fangageymslum. Vitað var um mann sem nefbrotn- aði, einnig var nokkuð um tannbrot og ýmsar minniháttar skrámur og skeinur. Gífurleg umferð hefur ver- ið um Vestmanneyjaflugvöll vegna þjóðhátíðarinnar og á föstudaginn var sett þar lendingarmet flugvéla ^á einum degi, 178 lendingar, sem er 70 lendingum fleira en sama dag fyrir þjóðhátíðina í fyrra, þegar gamla metið var sett. Allan mánu- daginn var í gangi loftbrú milli Eyja og lands þegar fólk hélt aftur heim eftir gleðina í Herjólfsdal. Þá fluttu Herjólfur og Smyrill mikinn fjölda fólks og fóru bæði skipin tvær ferðir. Það var Iþróttafélagið Þór sem að þessu sinni sá um þjóðhátíðina, og voru forráðamenn félagsins að vonum lukkulegir með útkomuna. „Það er ævintýri líkast að fá svona mikinn mannijölda á hátíðina og þetta gekk allt eins vel og hugsast getur, hér urðu engin alvarleg óhöpp. Annars er ég svo þreyttur eftir þessa miklu töm að ég er varla farinn að átta mig á þessu öllu saman," sagði Þór Vilhjálmsson, formaður Þórs. Þór sagði að þó hátíðinni væri lokið, og gestimir famir heim, þá væri enn mikið starf framundan við að hreinsa hátíðar- svæðið í Herjólfsdal og fjarlægja þaðan skreytingar og mannvirki. — hkj. Veðrið lék við Gauk á Stöng Meðal fjölmennari útihátíða að þessu sinni var Gaukur á Stöng í Þjórsárdal, en þar söfnuðust saman um 3.000 manns. Að sögn Svavars Ingvasonar framkvæmdastjóra HSK, en það félag stóð að móts- Flugeldasýning var haldin á laugardagskvöldið í Heijólfsdal. Sló hún skemmtilegum og fallegum bjarma á mótssvæðið og var Sigur- geir, ljósmyndari Morgunblaðsins í Eyjum, ekki seinn á sér að nota tækifærið og mynda mótshaldið i þessum lit. Morgunblaðið/Börkur „Göngum yfir brúna“ gætu grænstakkamir verið að syngja hástöfum. Myndin er tekin á Bindindismótinu í Galtalækjarskógi þar sem 6.000 manns komu saman. haldinu, fór allt vel fram á skemmtuninni og vandræði vegna ölvunar lítil. Þá lék veðrið við móts- gesti því ekki fór að rigna fyrr en eftir að gestir voru flestir famir af svæðinu. Svavar sagði að mikil og ströng varsla hefði verið á svæðinu, en auk þess sem lögreglan var þarna til taks voru milli 60 og 70 gæslumenn á vegum mótshaldaranna þarna á staðnum. Gekk þetta allt stóráfalla- laust en þó þurfti áð hlúa að einum manni sem slasaðist á auga, og hjá lögreglunni fengust upplýsingar um að hafa hefði þurft afgskipti af 9 ökumönnum vegna ölvunar við akstur. Skúrir í Þórsmörk og Galtalækjarskógi Lögreglan á Hvolsvelli taldi að gestir í Þórsmörk hefðu verið hátt á annað þúsund manns þegar flest var, en þar hafði fólk á öllum aldri safnast saman, en slíkt er ekki óvanalegt um helgar. Nokkuð bar á ölvun og voru fjórir teknir vegna ölvunar við akstur. Þá áttu sér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.