Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
5
Friðarhlaup Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna:
Megi allar þjóðir heims eiga hlut-
deild í forréttindum okkar, friðnum
- sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands,
er hún tók við friðarkyndli friðarhlaupsins
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbog'adóttir, tók á móti frið-
arkyndli friðarhlaups Barna-
hjálpar Sameinuðu Þjóðanna
„First Earth Run“ í gær, en frið-
arhlaupið hófst 16. september
sl. við aðalstöðvar Sameinuðu
þjóðanna í New York og áætlað
er að það taki þijá mánuði. Þvi
mun ljúka á sama stað. Farið
verður með friðarkyndilinn til
50 landa og er ísland hið 11. í
rððinni. FriðarkyndiIIinn kom
til landsins í gærmorgun og
hlupu 40 íslenskir íþrottamenn
með kyndilinn frá Keflavikur-
flugvelli til Reykjavíkur. Bjarni
Friðriksson, júdómaður, hóf
hlaupið kl. 7.00 og Einar Vil-
hjálmsson, spjótkastari, hljóp
síðasta spölinn með kyndilinn
rétt fyrir hádegisbilið og fylgdu
honum rúmlega þúsund börn að
Hljómskálagarðinum í
Reylgavik, þar sem fram fór
stutt athöfn.
Forseti íslands flutti ávarp,
biskup íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, flutti friðarbæn, bama-
kór söng, lúðrasveit lék og einnig
talaði David Gersson, skipuleggj-
andi og upphafsmaður friðar-
hlaupsins. Boðskapur friðarhlaups-
ins er: „Veitið heiminum tækifæri:
Böm þarfnast friðar". Heiðurs-
gestir auk þeirra vom Magnús L.
Sveinsson, forseti borgarstjómar,
Sveinn Bjömsson, forseti ÍSÍ, Gísli
Halldórsson, fyrrverandi forseti
ÍSÍ, Halldór Reynisson, forsetarit-
ari, Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri ÍSI, Hólmfríður
Karlsdóttir, Ungfrú Heimur, og
Cristina Zelinski frá Bamahjálp
SÞ.
Friðarhlaupið fer fram í tilefni
af Friðarári Sameinuðu þjóðanna
og 40 ára afmælis Bamahjálpar
Sameinuðu þjóðanna og hafa bæði
Reagan, bandaríkjaforseti, og
Gorbachev, aðalritari sovéska
kommúnistaflokksins, sagt að þeir
styðji þetta friðarfrumkvæði. Að
sögn skipuleggjenda hlaupsins hér
á iandi, var upphaflega ekki ráð-
gert að fara til Islands með friðar-
kyndilinn, en vegna leiðtogafund-
arins var breytt út af fyrri áætlun.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, sagði m.a. við athöfti-
ina í Hljómskálagarðinum í gær:
„Það er vel við hæfi að friðareldur-
inn er hingað kominn þá er leið-
togar stórveldanna tveggja funda
á Islandi. Það er einlæg ósk mín
á þessari stundu að þessi eldur
friðar í heiminum verði öllum þjóð-
um heimsins vegvísir á leiðinni til
varanlegs friðar, fyrir böm okkar
og komandi kynslóðir. Ég fínn til
stolts er ég stend hér sem forseti
friðelskandi þjóðar, sem aldrei í
allri sinni sögu hefur háð stríð á
hendur öðrum þjóðum og það er
von mín að allar þjóðir heimsins
megi í bjarma þessa elds eiga hlut-
deild í forréttindum okkar sem
heita friður."
Hingað kom kyndillinn frá
Barcelona á Spáni í gegnum Lon-
don og hefur viðdvöl hér í 36 tíma
áður en heimsferðinni verður hald-
ið áfram. Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðhera, tendraði
friðareldinn í Hljómskálgarðinum
og mun hann loga þar á meðan á
leiðtogafundinum stendur í
Reykjavík.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, kemur í Hljómskálagarðinn og rúmlega 1.000 íslensk börn,
sem hlupu síðasta spölinn i Reykjavík.
David Gersson, skipuleggjandi og upphafsmaður friðarhlaupsins, skiptir hér um
kyndla.
Steingrimur Hermannsson, forsætisráðherra, tendrar hér friðareldinn i Hljómskála-
garðinum, og mun hann loga þar til leiðtogafundinum lýkur.
MITAÐ pP/oÁRSVEXTIfí
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.