Morgunblaðið - 12.10.1986, Side 58

Morgunblaðið - 12.10.1986, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 58 m m m & w Termoflex STRENGIR { V; Termoflex er fullfrágenginn 2ja leiöara hitasfrengur meö mikla notkunarmöguleika. Með margra ára notkun í Skandinavfu hefur nafnið Termoflex oröið þekkt sem gæðavara. Strengimir virka án umsjónar og þarfnast ekki viðhalds árum saman. Þeir eru vatnsþéttir og eru varðir fyrir flestum kemiskum efnum. Termoflex hitastrengir afhendast tilbúnir til uppsetningar í kassa. Listi yfir fylgihluti nær yfir hitastilla og margar gerðir uppsetningarskinna. Kindakjötsfram- leiðslan 33% umfram söluna innanlands BRÁÐABIRGÐASKÝRSLA um framleiðslu, sölu og birgðir kinda- kjöts á síðasta verðlagsári, það er túnabilinu frá 1. september 1985 til 31. ágúst 1986, liggur nú fyrir. Á verðlagsárinu var innanlands- sala kindakjöts rúmum 200 tonnum minni en árið á undan og birgðir 467 tonnum meiri í lok tímabilisins en var á sama tima í fyrra. Á tímabilinu var framleiðsla kindakjöts rúmlega 3 þúsund tonnum, eða 33%, meiri en sala kjötsins á innanlandsmarkaði. (f-'' aöhorfaá9amP en a|is g^l-öuataðféþau^ V okk\ að gerast ísbrjótur Parft^fe Hver kannast ^^Jggölinnárfla ekkert sniðugt i Terrnofléx i þakrennuna« tausn é Þv’- Termoflex til gólfhitunar. Góð lausn til gólfhitunar i baðherbergi, forstofur, arinstofur og önnur herbergi sem eru með steyptum gólfum eða flísalögðum. Termoflex til jarðvegsupphitunar. Auðvelt er að koma Termoflex hitastrengjum fyrir og þeir þarfnast ekki viðhalds árum saman. Hægt er að fá ýmsar gerðir stýringa. Termoflex er mjög heppilegur hitagjafi, meðal annars til upphitunar á gróðurhúsum, gróðurreitum og grasflötum. Termoflex eykur vöxt plantnanna. Termoflex til frostvarnar. Rétta lausnin til frostvarnar á gangstéttum, þakrennum og niðurföllum. Með notkun Termoflex á þessum stöðum er ísing og snjómokstur úr sögunni auk þess sem komast má hjá peningaútlátum og vandræðum vegna frostskemmda. Austurveri, Háaleitisbraut 68. Sími 84445. Lækjargötu 22, Hafnarfirði. Símar 50022, 50023, 50322. Framleiðsla kindakjöts, það er að segja slátrun haustið 1985, var svipuð og árið áður. Ekki munaði nema 11 tonnum, eða 0,1%. 10. 575.815 kg. af dilkakjöti komu út úr slátruninni og 1.652.166 kg. af kjöti af fullorðnu fé, og var fram- leiðslan því samtals 12.227.981 kg. af kindakjöti. Salan innanlands var 7.838.613 kg. af dilkakjöti og 1.364.330 kg. af kjöti af fullorðnu, samtals 9.202.943 kg. af kindakjöti. Verð- lagsárið á undan var innanlandssal- an 9.405.092 kg., og nemur samdrátturinn á milli ára því 202.149 kflóum, eða 2,2%. Sam- drátturinn var aðallega í kjöti af fullorðnu, eða 187 tonn rúm, sem er 12,2%, en sala á dilkakjöti dróst aðeins saman um 14 tonn (0,2%). Út voru flutt 2.459.592 kg. af dilkakjöti og 18.941 kíló af kjöti af fullorðnu fé, eða 2.478.533 kg. af kindakjöti alls. Er það 43.146 kílóum, eða 1,8%, meira en árið á undan. Rýmun var 79.355 kfló á verð- lagsárinu, en var 176.029 kg. árið á undan. Birgðir kindakjöts í lok verðlagsársins, þann 31. ágúst síðastliðinn, voru alls 2.387.247 kíló, sem er 467.150 kg. meira en í byijun verðlagsársins. Aukning birgða er því 24,3%. Mest munar um auknar birgðir kjöts af fullorðnu fé, sem nærri þrefölduðust en birgð- ir dilkakjöts jukust um 12,3%. Sala kindakjöts var undir meðal- lagi mest allt verðlagsárið, en niðurgreiðslur voru auknar síðustu mánuðina og hafíð sérstakt kynn- ingarátak, þannig að salan gekk betur og vannst þá upp megnið af FLOTTAMENN 86 LÁTUM ÞÁ EKKI ÞURFA AÐ LÍÐA OG BÍÐA ••• HJALPARSJÓÐUR GÍRÓ 90.000 -1 þeirri sölu sem tapast hafði fyrr á árinu. í ágústmánuði var salan til dæmis 918 tonn, sem er 225 tonn- um, eða 32%, meira en í ágúst árið á undan. Þegar upp var staðið var salan 202 tonnum minni en árið á undan, og stækkaði gjáin á milli framleiðslu og innanlandssölu um það magn því framieiðslan var svip- uð á milli ára. Framleiðsla kindakjöts var á verðlagsárinu rúmlega 3 þúsund tonnum, eða 33%, meiri en sala kindakjöts á innanlandsmarkaði. Er búist við að framleiðslan í ár verði svipuð og helst því þessi mun- ur út verðlagsárið ef salan eykst ekki verulega. Þessi munur mun aftur á móti minnka verulga á næsta verðlagsári, sem hefst næsta haust, því þá er stefnt að því að kindakjötsframleiðslan verði komin niður í 11 þúsund tonn. Héraðsfund- ur Kjalar- nesprófasts- dæmis Sunnudaginn 12. október verður héraðsfundur Kjalarnesprófasts- dæmis haldinn í Innri-Njarðvik- ursókn og hefst með morgunbæn kl. 9.00 árdegis. Dagskráin hefst með því að pró- fastur flytur yfírlitsræðu sína. Síðan verða lagðir fram reikningar kirkna og kirkjugarða og einnig reikningar héraðssjóðs Og einstakra sókna. Þá flytja fulltrúar prófastsdæm- isins í Hjálparstofnun kirkjunnar og Æskulýðsnefnd skýrslur sínar. Klukkann 14.00 verður guðs- þjónusta í Innri-Njarðvíkurkirkju í tilefni af 100 ára afmæli kirkjunn- ar. Sr. Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup, predikar. Sóknar- presturinn sr. Þorvaldur Karl Helgason þjónar fyrir altari. Kl. 15.30 verða kaffíveitingar í Safnaðarheimilinu. Þar mun Hörð- ur Ágústsson flytja ræðu, sem hann nefnir íslensk kirkjubyggingarlist. Þá verður söngur í umsjón Gróu Hreinsdóttur, organista, og kórs kirkjunnar. Fundi verður svo haldið áfram kl. 17.00. Leiðtogarnir fá æðar- dúnsængur LEIÐTOGAR stórveldanna fá æðardúnsængur að gjöf frá islenskum bændum. Voru sæng- urnar afhentar í forsætisráðu- neytinu á föstudaginn. Að ósk æðarræktenda var dúnn- inn í sængumar sérstaklega valinn í dúnhreinsunarstöð búvörudeildar SÍS og voru sængurnar saumaðar í Sængurfatagerðinni. Hvor leið- toginn átti að fá tvær sáengur. XJöfðar til XTlfólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.