Morgunblaðið - 12.10.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
Svipmynd á sunnudegi/Yuri Orlov
LAUS EFTIR
30ÁRA
ANDÓF
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum kom
sovézki eðlisf ræðingurinn Yuri F. Orlov ásamt
Irinu konu sinni til Bandaríkjanna sunnudaginn
5. þessa mánaðar eftir að hafa átt í útistöðum
við yfirvöld í heimaiandi sínu undanfarin 30
ár. Um sjö ára skeið sat hann í fangelsi og
vinnubúðum, eða frá 1977 til 1984, en eftir það
í útlegð í Síberíu þar til honum var leyft að
fara úr landi.
Yurí Orlov við komuna tíl Kennedy-flugvallar í New York sl.
sunnudag.
Orlov er nú 62 ára. Hann fædd-
ist 13. ágúst 1924 nálægt Moskvu
og ólst þar upp. Faðir hans var
vörubílstjóri og rennismiður, og
þar heima kynntist Yuri Orlov lífi
verkamanna í Sovétríkjunum, sem
er nokkuð sjaldgæft meðal
menntamanna þar í landi.
Hann vann í verksmiðju á ungl-
ingsárunum, en barðist svo með
Rauða hernum gegn nasistum í
síðari heimsstyijöldinni. Að styij-
öldinni lokinni hóf hann nám við
Moskvu-háskóla, og gerðist þá
félagi í kommúnistaflokknum.
Háskólaprófí í eðlisfræði lauk
hann árið 1952, og hóf þá störf
við rannsóknastofnun á sviði
kennilegrar- og tilrauna-eðlis-
fræði. En hann var of opinskár
til að fá að halda því starfi lengi.
Eftir að Nikita Khrushchev for-
dæmdi Stalín opinberlega á 20.
flokksþinginu árið 1956 kom
Orlov þeirri hugmynd sinni á
framfæri að þeir sem væru með-
ábyrgir í
ódæðisverkum Stalíns yrðu látnir
svara til saka var hann rekinn úr
flokknum og sagt upp starfí hjá
rannsóknarstofnuninni.
Þegar Orlov hafði verið at-
vinnulaus í hálft ár, fékk hann
loks vinnu á ný í Yerevan, höfuð-
borg Armeníu. Hann notaði einnig
tímann til að stunda framhalds-
nám og lauk doktorsprófí árið
1963. Fjallaði doktorsritgerð hans
um hröðun öreinda.
Orlov sneri aftur til Moskvu
árið 1972, og eftir komuna þang-
að tók hann að sinna mannrétt-
indamálum. Árið eftir, 1973,
ritaði hann svo Leonid Brezhnev
þáverandi flokksleiðtoga bréf þar
sem hann tók upp hanzkann fyrir
Andrei Sakharov, sem fallinn var
ó ónáð hjá yfirvöldum. Þessi til-
skrif leiddu til þess nokkrum
mánuðum síðar að Orlov missti
vinnu sína sem eðlisfræðingur á
ný-
Eftir undirritun Helsinki-sátt-
málans kannaði Orlov leiðir til að
fylgjast með því að sovézk yfir-
völd færu eftir ákvæðum sáttmál-
ans. Var hann einn af stofnendum
eftirlitsnefndar sem fylgdist með
framkvæmd sáttmálans þrátt fyr-
ir aðvörun frá yfírvöldum um að
stofnun nefndarinnar væri „ólög-
leg og brot á stjómarskránni".
Þótt Orlov væri af rússneskum
ættum, og ekki gyðingur, gerðist
hann málsvari gyðinga er vildu
flytjast úr landi. Hvatti hann and-
ófsmenn af gyðingaættum til að
stofna eigin eftirlitsnefnd til að
fylgjast með gangi mála. En hans
eigin eftirlitsnefnd sendi frá sér
18 greinargerðir um brot sovézkra
yfírvalda á Helsinki-sáttmálanum
áður en hann var handtekinn 10.
febrúar 1977.
Dæmt var í máli Yuri Orlovs í
maí 1978, og hlaut hann þyngstu
refsingu — sjö ára fangelsisdóm,
og að honum afplánuðum fimm
ára útlegð. Strax eftir að dómur
hafði verið kveðinn upp var Orlov ■
sendur til Polovinka-vinnubúð-
anna skammt frá bænum Perm í
Úralfjöllum. Meðan hann dvaldist
í vinnubúðunum tókst honum að
smygla þaðan frásögn um að-
búnað fanganna, sem birt var í
belgísku blaði árið 1979.
Oðru hveiju bárust fregnir frá
vinnubúðunum um veikindi
Orlovs. Hann þjáðist þar í nýrum
og blöðruhálskirtli, tennur hans
skemmdust, hann fékk berkla og
gigt, og höfuðverkir hijáðu hann
vegna áverka sem hann hafði hlo-
tið.
í febrúar 1984 hafði Orlov af-
plánað fangelsisdóminn og var
hann þá fluttur í útlegð til þorps-
ins Kobyai í Síberíu, um 240
kílómetrum fyrir austan Yakutsk.
Fyrstu 15 mánuðina þar bjó hann
í skála fyrir verkamenn og vann
að smíði dagheimilis fyrir smá-
börn. Voru þeir 12 saman í
skálanum, og svefnplássið var
upphækkaður trépallur.
Orlov starfaði sem eftirlitsmað-
ur við bygginguna, en þegar hann
var orðinn sextugur gat hann
samkvæmt landslögum hætt að
vinna og farið á eftirlaun. í fyrra-
sumar fékk hann syo leigt her-
bergi fyrir sig, þar sem hann gat
einnig hýst gesti ef svo bar und-
ir. Þar heimsótti Irina kona hans
hann alls sjö sinnum, síðast nú í
september, meðan engan grunaði
enn að hann yrði brátt látinn laus.
Aðbúnaðurinn í Kobyai var
ömurlegur. Þar var ekkert renn-
andi vatn. Á vetuma varð Orlov
sjálfur að höggva sér við í eldinn
og bijóta sér ís af tjöm í nágrenn-
inu sem hann svo bræddi til
heimilisnota. Honum tókst þó að
semja þar tvær vísindaritgerðir,
og hann sendi sovézku vísinda-
akademíunni umsókn um að fá
að birta þær. Umsókn hans var
aldrei svarað.
Irina Orlov er seinni kona Yuri,
og giftust þau árið 1967. Þau em
bamlaus, en frá fyrra hjónabandi
á Orlov tvo syni, Lev og Alexand-
er. Synimir verða áfram í Sov-
étríkjunum, en áður en faðirinn
hélt áleiðis til Bandaríkjanna
fengu þeir að ræða við hann í 40
mínútur í Lefortovo-fangelsinu í
Moskvu.
Sögusagnir höfðu gengið um
það í Moskvu að Orlov yrði látinn
laus og honum heimilað að flytj-
ast til Bandaríkjanna, en þær
sögur fengust ekki staðfestar fyrr
en á síðustu stundu. Þau hjónin
hittust svo á flugvellinum við
Moskvu og vom flutt um borð í
farþegaþotu frá sovézka flugfé-
laginu Aeroflot áður en aðrir
farþegar fengu að stíga um borð.
Við komuna til Kennedy-flug-
vallar í New York ræddi Orlov
stuttlega við fréttamenn. Kvaðst
hann að sjálfsögðu frelsinu feg-
inn, og sagðist ætla að halda
vísindastörfum sínum áfram í
Bandaríkjunum, en einnig halda
áfram baráttunni fyrir mannrétt-
indum í Sovétríkjunum.
(Heimild: New York Times)
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
og efnahagslífið
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga heldur ráðstefnu
um fjárlögin og efnahagslífið þann 16. október í Súlnasal
Hótels Sögu og hefst ráðstefnan kl. 13.30.
Ráðstefnan er öllum opin og dagskrá hennar er sem hér segir:
13.30 Mæting.
13.40 Setning ráðstefnunnar, Eggert Ágúst Sverrisson, formaöur Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga.
13.45 Ávarp Þorsteins Pálssonar, fjármálaráöherra.
13.55 Erindi Magnúsar Póturssonar, hagsýslustjóra.
14.15 Erindi Þorvaldar Gylfasonar, prófessors við Háskóla íslands.
14.35 Erindi Bolla Bollasonar aðstoðarforstjóra Þjóðhagsstofnunar.
14.55 Erindi Finns Geirssonar hagfræðings Verslunarráðs íslands.
15.15 Kaffi.
15.40 Hringborðsumræöur. Þátttakendurverða:
Þórður Friðjónsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, verður stjórnandi
hringborðsumræðna.
Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri,
Víglundur Þorsteinsson.formaður Félags íslenskra iðnrekenda,
Þorsteinn Ólafsson, formaður Vinnumálasambands Samvinnufélaganna,
Þorvaldur Gylfason, prófessorvið Háskóla Islands,
Þröstur Ólafsson, frámkvæmdastjóri Dagsbrúnar.
17.00 Áætluð ráðstefnulok.
Lögð verður áhersla á faglega umfjöllun um fjárlög, afleið-
ingar þeirra á helstu hagstærðir og rekstrarumhverfi fyrir-
tæk|a- Mætum tímanlega