Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 38
riPf'
jja t rm/rr rnanM
38
£ppf íT^rTOT>TO ?f TODAnTJVfT'ITTP r
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
Sjálfstæðisflokkurinn í Austurlands-
kjördæmi:
Fagnar árangri
í viðureigninni
við verðbólgu
/*■
<
co
Cjlasgow er girnileg verslunarborg eins og
allir vita, ekki síst núna þegar pundiö hefur
lækkaö. En Glasgow er líka og ekki síður
girnileg skemmtanaborg, þar sem allir geta
fundiö eitthvaö viö sitt hæfi.
Meö Úrvali getur þú farið í ódýrar
þriggja, fimm eöa sjö daga ferðir þar
sem þú verslar, skemmtir þér og býrð
á góöu hóteli í hjarta borgarinnar.
Innifaliö er flugið til og frá Glasgow,
gisting í þrjár nætur á fjögurra stjörnu
hóteli með baði, síma, útvarpi og
sjónvarpi og skoskur morgunverður.
Viljirðu taka börnin með færðu ríflegan
afslátt fyrir þau.
Úrval býður þér einnig ódýrar borgar-
ferðir til London frá aðeins kr.
12.570.-, Amsterdam frá aðeins kr.
14.450,- og New York frá kr. 20.399.-
FERMSKRIFSTOfAN URVAL
Ferdaskrifstofan
Úrval v/Austurvöll.
Sími (91) 26900.
FLUGLEIDIR
Allar nánari upplýsingar veita sölu-
og umboðsmenn Úrvals um land allt.
Innilegustu þakkir til allra er glöddu mig með
heimsóknum, blómum, skeytum og simtölum
á 90 ára afmœli mínu 26. september sl.
Kœr kveðja.
Guðrún Eríksdóttir,
Flateyri.
T-Iöfóar til
JLl fólks í öllum
starfsgreinum!
Aðalfundur Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi, haldinn á
Egilsstöðum dagana 26. og 27.
september 1986, fagnar einstæðum
árangri í viðureigninni við verð-
bólguna og þakkar ríkisstjóminni
og Sjálfstæðisflokknum sérstaklega
framgönguna í þeirri baráttu. For-
senda fyrir þátttöku flokksins í
núverandi ríkisstjóm var að ráðizt
yrði gegn hinni háskalegu verð-
bólguþróun með öllum tiltækum -
ráðum, enda stefna flokksins í kosn-
ingabaráttunni vorið 1983.
Markmiðinu hefir nú verið náð og
verðbólga langtum lægri en dæmi
eru til um í hálfan annan áratug.
Aðalfundurinn leggur ríka áherzlu
á að haldið verði fast við markmið
um lækkandi verðbólgu til að
tryggja þann árangur, sem náðst
hefir. Til þess að svo megi verða
þarf Sjálfstæðisflokkurinn að halda
vöku sinni og beita afli sínu til hins
ítrasta.
Jöfnuður í viðskiptum við útlönd
og greiðsla erlendra skulda er meg-
inmál, sem ekki má missa sjónir á
eitt andartak svo aldrei aftur ríði
yfir íslenzkt þjóðfélag óráðsía á
borð við vinstri óstjómina, sem
kastaði tólfunum á ámnum
1980-83 með tvöföldun erlendra
skulda.
Aðalfundur kjördæmisráðsins
leggur áherzlu á vöxt og viðgang
aðalatvinnuvega þjóðarinnar, sjáv-
arútvegs, landbúnaðar og iðnaðar.
Fullri atvinnu hvarvetna ber að
fagna, en sérstaka athygli vill fund-
urinn vekja á veikri stöðu fyrirtækja
í fiskiðnaði í flórðungnum og skorar
á stjómvöld að leggja viðreisn
þeirra ömggt lið.
Fundurinn telur að framtíð at-
vinnulífs á Austurlandi byggist á
því að mögulegt verði að bjóða upp
á mannsæmandi laun í framleiðslu-
greinunum.
Fundurinn telur brýna nauðsyn
til bera að auka fijálsræði í útflutn-
ingsmálum, með það fyrir augum
að framleiðendur afurða til lands
og sjávar leiti sjáifir markaða og
annizt sölu á framleiðslu sinni.
Aðalfundurinn lýsir yfir stuðn-
ingi við þá stefnu, að hémðin í
landinu fái ríkari áhrif í eigin mál-
efnum og leggur áherzlu á nauðsyn
þess, að fjármagn og ákvarðana-
taka færist í auknum mæli til
sveitarfélaganna. Málefiium dreif-
býlisins verði gefínn aukinn gaumur
og búsetan treyst. Fundurinn
minnir á óunnin verk í kjördæminu
í mikilvægum málaflokkum
menntamála, heilbrigðismála og
samgöngumála og hvetur forystu
Sjálfstæðisflokksins til að Ijá þeim
verkefiium liðsinni sitt.
Aðalfundur kjördæmisráðsins
fagnar þeim tíðindum sérstaklega
að samningagerð um byggingu
kísilmálmverksmiðju á Reyðarfírði
er komin á lokastig og þakkar ör-
ugga forystu iðnaðarráðherra
flokksins og Stóriðjunefndar í því
mikilvæga máli.
Lögmanna-
stofa opnuð í
Stykkishólmi
Stykkishólmi
Mánudaginn 29. september var
sett á stofn í Stykkishólmi fyrsta
lögmannastofan á Snæfellsnesi með ,
það að takmarki að þjóna öllu Snæ-
fellsnesi. Að þessari stofnun standa
þeir Hilmar Ingimundarson hæsta-
réttarlögmaður og lögmennimir Jón
G. Briem og Kristján Stefánsson.
Þá verða fulltrúar þeirra lögfræð-
ingamir Ásgeir Þór Ámason og
Ásbjöm Jónsson.
Tilgangur þessarar þjónustu er
fyrst og fremst að leiðbeina og
hjálpa almenningi í lögfræðilegum
efnum, annast samningu allskonar
skjala svo sem afsals, verðbréfa
o.fl. Þá munu þeir og annast bæði
fasteigna- og skipasölu og sem sagt
allt það sem að þeim málum lýtur.
Skrifstofan, sem verður opin alla
virka daga, verður i húsakynnum
Bátatryggingar Breiðafjarðar við
Smiðjustíg.
Þá verða fastir viðtalstímar lög-
fræðinga á mánudögum og þriðju-
dögum á almennum skrifstofutíma.
Það fer ekki á milli mála að mik-
il þörf er slíkrar þjónustu í dag og
gott að hún kemur þannig til lands-
byggðarinnar.
Fréttaritari Morgunblaðsins brá
sér á skrifstofu þeirra félaga um
leið og hún var opnuð og kynnti
sér viðfangsefni og starfsháttu og
leist vel á og væntir að þeir geti
mörgum góðum málum þokað hér
og eins veitt mörgum liðsinni sem
annars þurfa a halda að sér höndum
eða flýja með sín mál til Reykjavík-
ur í allan erilinn þar.
Þess má geta að lögmennimir
hafa margra ára reynslu í starfi.
Ámi
Öryggislykill
é sparifjáreigenda
4'V€RZLUNflRBfiNKINN
* -uiMHun, með ft&i!
AUK hf. 43 87 _____