Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 Frá opnun sýningarinnar Norræn vika í Stykkishólmi Stykkishólmi t/ Laugardaginn 4. oktober var opnuð í Hótel Stykkishólmi, norr- æn vika og standa að henni Norræna félagið og Stykkis- hólmshreppur. Samskonar vika hófst einnig i Borgarnesi, Akra- nesi og Búðardal. Sýning var um leið opnuð á sænskum grafíkmyndum, eftir myndlistarmanninn Ulf Trotzig, en hann er með merkustu nútímalista- mönnum Svíþjóðar. Menningarfull- trúi sænska sendiráðsins Esbjöm Rosenblad opnaði sýninguna með því að flytja kveðju þjóðar sinnar og minnast aukinna tengsla þjóð- anna í gegnum norræna samvinnu. Rakti hann að nokkru listamanns- feril Ulfs. Margir gestir vom viðstaddir og í upphafí bauð Sturla Böðvarsson sveitarstjóri viðstadda velkomna. Sérstaklega hina að- komnu gesti. Af hálfu norræna félagsins í Reykjavík mætti Eyjólfur Pétur Hafstein. Ellert Kristinsson oddviti tók síðastur til máls og flutti þakkir Stykkishólmshrepps, fagnaði aukinni samvinnu Norður- landa og minntist samskipta við vinabæi Stykkishólms með gagn- kvæmum heimsóknum m.a. för leikfélagsins til Finnlands og Lúðra- sveitarinnar til hinna vinabæjanna. Þakkaði þessa sýningu og norræna kynningu. Þá skoðuðu gestir sýn- inguna og létu vel af, en sýningin verður opin áfram. Næsta fímmtudag 9. október verður svo í félagsheimilinu Fær- eyjakvöld í umsjá Hjartar Pálssonar fyrmrn forstjóra Norræna hússins í Færeyjum. Sýnd verður kvikmynd frá Færeyjum og Hjörtur flytur erindi um Færeyjar. Þá les hann úr færeyskum bókmenntum og heimamenn aðstoða við lestur þýddra ljóða. Föstudaginn 10. október er svo sænski homaflokkurinn Luijámt- ama með tónleika og sænska vísnasöngkonan Theresa Juel syng- ur, en hún er mjög þekkt sænsk vísnasöngkona og hefír verið hér á landi í söngferð með Bergþóru Ámadóttur. Hún syngur einnig íslensk lög. Homaflokkurinn sam- anstendur af 6 hljóðfæraleikurum og hefír hann leikið víða og getið sér gott orð. Norræna félagið rekur um- fangsmikia starfsemi í Norræna húsinu í Reykjavík og þar er ailtaf eitthvað að gerast í landkjmningum og listum. Þar koma fram á hveiju ári margir listamenn allra Norður- landanna. Félögum §ölgar og viðfangsefnin aukast og vináttu- bönd meðal þegna þjóðanna vaxa. Og þær dragast nær hver annarri. Þökk þeim sem leggja hér hönd að. | jármögnunarfélagið Lýsing hf. óskar að ráða | ramkvæmdastjóra í jármögnunarfélagið Lýsing hf. óskar að ráða FRAMKVÆMDASTJÓRA. Starfið krefst víðtækrar viðskipta- fræðimenntunar og starfsreynslu. Við leitum að einstaklingi, sem tilbúinn er að taka að sér krefjandi starf í nýju fyrirtæki með öfluga bakhjarla. L ýsing hf. er alíslenskt hlutafélag í eigu Búnaðarbanka Islands, Landsbanka íslands, Brunabóta- félags íslands, Sjóvátryggingarfélags íslands hf. og Líftrygg- ingarfélags Sjóvá hf. Félagið mun m.a. annast fjármögnunar- leigu og er ætlað að tryggja að fgrysta hérlendis á þessu sviði verði í íslenskum höndum. í stjórn Lýsingar hf. eru: Helgi Bergs, Jón Adolf Guðjónsson, Ingi R. Helgason, Einar Sveinsson, Sólon Sigurðsson og Brynjólfur Helgason. U. msóknum um starf framkvæmdastjóra, ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun skal senda stjórn félagsins í pósthólf 57, 121 Reykjavík fyrir 24. október n.k. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. MIIITIPLAIV framhaldsnámskeið ítarlegt og vandað námskeið fyrir þá sem kunna grunnatriðin í notkun MULTIPLANS en vilja læra að nota möguleika kerfisins til fulls. Dagskrá: * Upprifjun á helstu skipunum í MULTIPLAN * Rökaðgerðir í MULTIPLAN * Notkun stærðfræðifalla * Endurreikningsaðferðin „ITERATION" * Ýmis algeng verkefni leyst með MULTIPLAN * Notkun tilbúinna líkana í MULTIPLAN * Tenging við teikniforritið CHART * Notkun MACRÓ skipana í MULTIPLAN 2.0 * Umræður og fyrirspurnir Tími 20., 22. og 24. október kl. 17—20. Innritun í símum 687590 og 686790 tesasfMTÖLVUFRÆÐSlAN Borgartúni 28. .«# JUNCKERS HARÐVIÐAR Parket Á LAOER Hvitt beyki 12 mm Hvitt beyki 22 mm BeykiA 12mm BeykiB 12mm BeykiA22mm Askur22mm EikB 12mm EikB22mm GEGNHEILT OG VARANLEGT EGILL ARNAS0N HF. PARKETVAL SKEIFUNNI 3, SÍMI 91-82111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.