Morgunblaðið - 12.10.1986, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Jr
Stjórnunarritari
sjálfstætt starf
Fyrirtækið er umsvifamikil fasteignasala í
Reykjavík.
Starfið felst í frágangi kaupsamninga og af-
sala í samvinnu við forstjóra fyrirtækisins,
ásamt öðrum almennum störfum er tengjast
fasteignaviðskiptum.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi reynslu
af skrifstofustörfum, kunni vélritun, sé tölu-
glöggur og eigi auðvelt með að starfa sjálf-
stætt.
Vinnutími getur verið hálfan eða allan daginn
eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 16. október nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofunni frá kl. 9-15.
Alleysmga- og radnmgaþjonusta
Liósauki hf.
Skolavordustig la - 101 Reykiavik - Simi 621355
Atvinna
í 60 ár hefur Sjóklæðagerðin hf. staðið af
sér alla samkeppni á íslenskum markaði og
jafnframt haslað sér völl á erlendum markaði
síðustu ár.
Þetta hefur tekist með sameiginlegu átaki
góðra starfsmanna, sem að kröfum við-
skiptavina og neytenda hafa framleitt betri
fatnað á hagstæðara verði.
Við þurfum nú að bæta við okkur nokkrum
konum á sauma- og bræðsluvélar.
Nýtt launafyrirkomulag.
Komið og ræðið við verkstjóra okkar, Ernu
Grétarsdóttir, á vinnustað á Skúlagötu 51,
rétt við Hlemmtorg.
66*N
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
HERkuleS .
VINNUFOT
Skrifstofustarf
Stórt innflutningsfyrirtæki óskar að ráða
starfsmann til skrifstofustarfa.
Verkssvið: símavarsla, vélritun, telex, inn-
sláttur á tölvu o.fl.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist augldeild
Mbl. fyrir 16. okt. nk. merkt: „I - 8179“.
Varahlutaverslun
Óskum að ráða afgreiðslumann sem gæti
hafið störf fljótlega. Umsóknir með nánari
upplýsingum leggist inn á augld. Morgun-
blaðsins merktar: „N — 1649“.
Afgreiðslukonu
vantar í gardínu- og vefnaðarvöruverslun.
Upplýsingar í síma 82048 e.h.
Garðbæingar
Garðakaup auglýsir eftir starfsfólki til ýmissa
starfa t.d. á kassa, í kjötafgreiðslu og upp-
fyllingu. Margskonar vinnutími kemur til
greina.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra.
Garðakaup,
Garðabæ.
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
Af sérstökum ástæðum getur Kristnesspítali
nú boðið lausar til umsóknar stöðu hjúkr-
unarfræðings og stöðu sjúkraliða. íbúðar-
húsnæði á staðnum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
96-31100.
Kristnesspítali.
Verkstjóri —
mjólkurfræðingur
Óskum að ráða verkstjóra — mjólkurfræðing
í ísgerð Mjólkursamsölunnar. Skriflegar um-
sóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist skrifstofu okkar fyrir 20. okt. nk.
MJÓLKURSAMSALAN - ÍSGERÐ.
Skrifstofa, Brautarhoiti 16, 3. hæð,
Reykjavík, sími 692200.
Prentarar athugið
Prentari óskast í prentsmiðju, til stjórnunar
á framleiðslu tölvupappírs.
Aðeins reynslugóður prentari kemur til
greina. Góð laun í boði.
Tilboðum skal skilað á augldeild Mbl. merktum:
„Algjör trúnaður — 1852“ fyrir 17. okt. 1986.
TRYGGINGAR
Sölumaður
Almennar tryggingar vilja ráða sölumann til
starfa á aðalskrifstofu félagsins.
Við bjóðum:
— Starf á sölusviði félagsins sem fólgið er
í þjónustu við viðskiptavini okkar.
— Lifandi framtíðarstarf.
— Laun eftir hæfni.
Við leitum að starfsmanni:
— Með áhuga á þjónustustarfi.
— Með góða framkomu.
Skriflegar umsóknir skal senda fyrir 24. okt-
óber til deildarstjóra sölu- og markaðssviðs
á Síðumúla 39, 108 Reykjavík.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Almennar tryggingar er þjónustufyrirtæki sem rekur alhliða vátrygginga-
starfsemi. Starfsmenn á aöalskrifstofu eru 53. lögjöld ársins 1985 voru
344 millj.
TRYGGINGAR
Skrifstofustarf
Stúlka óskast til almennra skrifstofustarfa
og símavörslu. Einhvertölvukunnátta æskileg.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Armúla 16, 108 Reykjavík.
„Au-pair“
Stúlka óskast til heimilisstarfa og að gæta
barna í 1 ár til Noregs.
Upplýsingar í símum 28610 og 17371.
VELSMIÐJA
'PÉTURS AUÐUNSSONAR
Óseyrarbraut3- 220 Hafnarfirði - Simar 51288-50788
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir vönum járniðnaðarmönnum og
aðstoðarmönnum. Mikil vinna.
Upplýsingar hjá verksjóra í síma 51288.
REYKJALUNDUR
Fóstrur
Viljum ráða fóstru til að veita barnaheimili
stofnunarinnar forstöðu.
Upplýsingar veitir Valdís Sveinsdóttir í síma
666200.
Reykjalundur,
endurhæfingarmiðstöð.
Verslunar- og
söluturnaeigendur
athugið!
Við hjá íslenskri Getspá óskum eftir umboðs-
aðilum í höfuðborginni og um allt land fyrir
nýju talnagetraunina LOTTÓ.
Hafið strax samband við Bjarna eða Sigrúnu
í síma 687525.
íslensk Getspá er nýtt félag íþróttasam-
bands íslands, Ungmennafélags íslands og
Öryrkjabandalags Islands með einkaleyfi á
rekstrti LOTTÓ-talnagetrauna á íslandi.
íslensk Getspá,
íþróttamiðstöðinni Laugardal,
104 Reykjavik.
Endurskoðun
Við auglýsum eftir starfsmönnum til endur-
skoðunarstarfa. Við leitum að viðskiptafræð-
ingum af endurskoðunarkjörsviði og viljum
helst fá menn með nokkra reynslu af bók-
halds- og uppgjörsstörfum. Viðskiptafræði-
nemar af fjórða ári koma einnig til greina.
Við bjóðum upp á fjölbreytt störf við endur-
skoðun, reikningslega og skattalega aðstoð
við stóran viðskiptahóp okkar.
Umsóknir með nauðsynlegum upplýsingum
sendist okkur fyrir 17. október. Farið verður
með umsóknir sem trúnaðarmál, verði þess
óskað.
* Endurskoðunar- miðstöóin hf.
SJúO N.Manscher
Höfðabakki 9
Pósthólf 10094
130 REYKJAVÍK
Atvinnurekendur
Ef þér leitið að hæfu starfsfólki sparið þá
tíma og fyrirhöfn.
Vér höfum nú þegar ítarlegar upplýsingar
um fjölda góðra starfsmanna með margvís-
lega menntun og starfsreynslu, sem leitar
að ýmiskonar störfum.
Margir þeirra gætu hafið störf nú þegar.
STMSÞJÓNUSM »/f
Brynjólfur Jónsson • Nóatún 17 105 Rvik • simi: 621315
• Alhliöa rabningaþjonusta
• Fyrirtækjasala
l • Fjarmalaradgjof fyrir fyrirtæki