Morgunblaðið - 12.10.1986, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
i
ot\/inno _ — o twinr É4?* .. . Ó. t\/inna — atx/inna — o twinnn — — atwinnzi
a l VI f/f la — — alVlfll fd ■ ■ ■■■ d i vn n la — at vii ii la aiviinia a i vii ii la
Mjólkursamsalan
óskar eftir tilboðum í vélar, tæki og innrétt-
ingar sem eru í mjólkur- og ísbúð Mjólkur-
samsölunnar á Laugavegi 162. Hlutirnir
seljast á staðnum í því ástandi sem þeir eru.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Guðjóns-
son í síma 692200.
Framkvæmdastjóri
Glímusamband íslands óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra frá 1. nóvember nk.
Verksvið:
1. Daglegur rekstur G.L.Í.
2. Glímukennsla.
3. Fjáröflun.
4. Útbreiðslustarf.
Umsækjendur leggi inn umsóknir sínar í
pósthólf G.L.Í. íþróttamiðstöðinni í Laugadal
fyrir 20. október, í lokuðu umslagi þar sem
fram kemur nafn, símanúmer og hugmyndir
um launakjör.
vlG*FRi3m
Sölumaður/Tækni-
búnaður
Til starfa hjá þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
Sölumaðurinn sér um sölu, ráðgjöf, sölu-
og þjónustustjórnun, markaðssetningu, inn-
lend og erlend viðskiptasambönd, tilboðs-
og áætlanagerð, auglýsinga- og kynningar-
starfsemi.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt
og markvisst, sýnt frumkvæði og árangur í
starfi. Sambland af menntun á viðskipta- og
tæknisviði æskilegast. Færni í ensku og einu
Skandinavíumáli skilyrði.
Fyrirtækið býður góð laun og góða vinnuað-
stöðu. Er með góð viðskiptasambönd og
þekktar vörur. Framtíðarstarf fyrir réttan
aðila.
Starfið er laust eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Holger Torp.
Umsóknir skilist fyrir 20. október nk.
FRUIH Starfsmannastjórnun-Ráðningaþjónusta
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
Aðstoðar
framkvæmdastjóri
Visa ísland — Greiðslumiðlun hf.
Staða aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Visa
íslandi — Greiðslumiðlun hf. er hér með aug-
lýst laus til umsóknar.
Æskilegt að viðkomandi hafi viðskiptahag-
fræði- og/eða tölvufræðimenntun ásamt
reynslu í stjórnunarstörfum.
Góð tungumálakunnátta áskilin vegna er-
lendra samskipta.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fyrir
næstu áramót.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, ásamt
starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir
21. okt. nk. þar sem allar nánari upplýsingar
eru veittar.
Gudni Tqnssqn
RÁÐCJÖF b RÁÐN l NGARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Afgreiðsla —
Fatnaður
Óskum að ráða dugmikið og áreiðanlegt
starfsfólk til afgreiðslustarfa í fataverslun
okkar í Lækjargötu og í ungbarnadeild í versl-
un okkar Skeifunni 15.
Við leitum að fólki sem:
- er á aldrinum 18-40 ára
- hefur góða og örugga framkomu
- getur hafið störf sem fyrst
Eingöngu er um að ræða hlutastörf eftir
hádegi.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
(ekki í síma) mánudag og þriðjudag frá kl.
16.00-18.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannahaldi.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
Sælgætisgerð
Starfsfólk óskast til verksmiðjustarfa hálfan
og allan daginn.
Upplýsingar í síma 42881 milli kl. 16.00 og
18.00 mánudag og þriðjudag.
Freyja hf.
RÍKISSPÍTALAR
LAUSAR STÖÐUR
Yfirsjúkraþjálfari óskast við endurhæfingar-
deild Landspítalans.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir 1. nóv.
Upplýsingar veitir yfiirsjúkraþjálfari endur-
hæfingardeildar eða starfsmannastjóri í síma
29000.
Deildarsjúkraþjálfari I og II svo og sjúkra-
þjálfarar óskast við endurhæfingardeild
Landspítalans.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari endur-
hæfingardeildar í síma 29000.
Hjúkrunarfræðingar óskast við Geðdeild
Landspítalans bæði á Landspítalalóð og á
Kleppi. Húsnæði kemur til greina.
Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmda-
stjórar Geðdeildar Landspítalans í síma
38160.
Starfsmenn (2) óskast við taugarannsókna-
stofu taugalækningadeildar Landspítalans.
Enskukunnátta er nauðsynleg.
Upplýsingar veitir læknafulltrúi taugarann-
sóknastofu í síma 29000-459.
Sala — kynning
Stórt fyrirtæki í matvælaiðnaði vill ráða
starfskraft í söludeild á útisölusviði.
Starfið felst í því að kynna og fylgja eftir sölu
á vörum fyrirtækisins.
Umsækjandi þarf að hafa verslunarpróf eða
hliðstæða menntun, hafa reynslu á þessu
sviði, auk þess að vera snyrtilegur og hafa
góða framkomu.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 17.
október nk.
Hvati f
Pósthólf 11024
131 Reykjavík
sími 91-72066
Rekstrarráögjöf
Kostnaðareftirlit
Hönnun — Þróun
Útboö — Tilboð
Viöhaldskerfi
Verkskipulagning
Deildarstjóri
Óskum að ráða deildarstjóra til starfa hjá
stóru deildaskiptu innflutnings- og þjónustu-
fyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Sölustjórnun, markaðssetning,
uppbygging og viðhald erlendra og innlendra
viðskiptasambanda, áætlanagerð, auglýs-
inga- og kynningamál.
Við leitum að manni með viðskipta-/verslun-
armenntun og/eða reynslu af sölu- og
markaðsmálum. Nauðsynlegt að viðkomandi
geti stjórnað og skipulagt störf þeirra starfs-
manna sem undir hann heyra.
í boði er: Áhugavert vellaunað stjórnunar-
starf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Starfsþjálfun erlendis. Viðkomandi getur haf-
ið störf fljótlega eða eftir nánara samkomu-
lagi.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Skriflegar umsóknir sendist Ráðningarþjón-
ustu Hagvangs hf. merktar: „Deildarstjóri
hjá traustu fyrirtæki"
Hagvangurhf
RÁÐNINCARPJÓNUSTA
GRENSÁSVECI 13, 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666
Starfsfólk óskast til vaktavinnu við eldhús
Landspítalans. Um fullt starf er að ræða eða
75%. Ennfremur vantar fólk í 50% vinnu frá
kl. 16.00-20.00.
Upplýsingar veitir yfirmatráðsmaður Land-
spítalans fyrir hádegi í síma 29000.
Skrifstofumaður óskast í fullt starf við skipti-
borð Geðdeildar Landspítalans á Kleppi.
Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmda-
stjórar í síma 38160.
Þroskaþjálfar óskast til starfa á nokkrum
deildum Kópavogshælis.
Hlutastarf eða einstakar vaktir koma til
greina. Einnig óskast starfsmenn til starfa á
deildum í býtibúr og til ræstinga á Kópavogs-
hæli.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Kópa-
vogshælis eða yfirþroskaþjálfi í síma 41500.
Sjúkraliðar óskast til starfa á sængur-
kvennadeild 2 og til fastra næturvakta á
kvenlækningadeild.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Land-
spítalans í síma 29000.
Fóstrur og starfsmenn óskast til starfa á
dagheimilið Stubbasel í Kópavogi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
44024.
Fóstra eða starfsmaður óskast við dag-
heimili ríkisspítala Sólbakka við Vatnsmýrar-
veg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimil-
isins í síma 22725.
Reykjavík, 12. október 1986.
Sölumenn
Okkur vantar strax sölumann (karl eða konu)
í verslun okkar.
Um er að ræða sölu á heimilistækjum, raf-
magNsvörum og ýmsum búnaði sem fyrir-
tæki okkar framleiðir.
Upplýsingar um aldur, menntu og fyrri störf
leggist inn á afgr. Mbl. fyrir fimmtudaginn
16. okt. nk. merktar: „Trúnaður — 539“.
Öllum umsóknum svarað.
RAFHA.