Morgunblaðið - 12.10.1986, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
Lífsgleðin leysir vandann
ÞÆR VORU kátar stöllurnar
Margrét Edea Stefándsdóttir og
Edda Bergmann þjálfari f Sjálfs-
bjargarlauginni. Enda er œrin
ástæða til því Margrét, sem er
spastísk, hefur sýnt miklar
framfarir í sundinu. Fyrst þegar
hún kom á æfingu lá hún hreyf-
ingarlaus í kútnum en núna
heimtar hún að fá að synda ein
fyrir forvitna blaðamenn. Það
þarf ekki að koma á óvart þó
Magga eigi eftir að verða með-
limur f keppnisflokki ÍFR.
11 *
. f » ♦♦
*
gSNQ;
Keppnisflokkur ÍFR f sundi. Þau eru: Kristfn, Hulda, Jón, Friðbergur, Halldór, Haukur, Óli, Sóley, Elfsabet, Ásdfs, Skúli og Oddný.
íþróttafélag fatlaðra Reykjavík
Gífurlegur sundáhugi
ÞAU Erlingur Jóhannson og Edda
Bergmann sundþjálfarar hjá
íþróttafélagi fatlaðra hafa f nógu
að snúast því innan félagsins er
gíf urlegur áhugi á sundi. Oneitan-
lega hlýtur það þó að vera
ánægjulegt fyrir þjálfarana þegar
þeir sjá hinar miklu framfarir sem
margir nemendur þeirra sfna f
íþróttinni.
Flestir innan félagsins byrja
sundiðkun sína í byrjendaflokki.
Þar komast félagarnir yfir vatns-
hræðsluna en til þess beitir Ragna
ýmsum brögðum og er söngurinn
um litlu andarungana óspart not-
aður. Úr því að litlu andarungarnir
hneigja höfuð í djúpið og hreyfa
Iftil stél þykir krökkunum spenn-
andi að feta í fótspor þeirra.
Eftir sundæfingarnar í byrjenda-
flokknum er farið í heitu pottana
þar sem gerðar eru teygjuæfingar
sem eru þessum íþróttamönnum
yfirleitt mjög nauðsynlegar og
gagnlegar vegna fötlunar sinnar.
Sumir fara beint í keppnisflokk
eftir að hafa verið útskrifaðir úr
byrjendaflokki og hefst þá alvaran.
Æfingarnar þar hefjast á þrekæf-
ingum og þar dugir sko ekkert
elsku mamma. Eftir að Erlingur
þjálfari hefur séð til að allir taki
vel á á þrekæfingunni er farið (
laugina og þar er ekkert gefið eftir
heldur.
Sumir hafa ekki áhuga á að fara
í keppnisflokkinn en þeir geta þá
farið í svokallaðan Öðlingaflokk
sem er flokkur þeirra sem eru vel
syndir og einnig er öðlingaflokkur
oft millistig milli byrjenda- og
keppnisflokks.
Að fylgjast með æfingu hjá
sundfólkinu í íþróttafélagi fatlaðra
í Reykjavík er skemmtileg reynsla.
í því félagi er íþróttafólk sem hefur
náð ótrúlegum árangri. Árangur
þessara krakka er tilkominn vegna
samspils margra þátta og aðila en
fyrst og fremst vegna dugnaðar
þeirra sjálfra. ( íþróttum fatlaðra
endurspeglast bestu eiginleikar
íþróttagleði; glaðværð, félags-
skapur og uppbygging líkama og
sálar.
• Snorri Karlsson 6 ára er f byrjendaflokknum f sundi hjá ÍFR. í fyrra
lenti hann f slysi og lamaðlst fyrir neðan mitti. Hann hefur náð sór
ótrúlega vel sfðan og gengur núna einn og óstuddur. Þessu þakkar
hann þjálfuninni og sundinu en hann fer í sund þrisvar f viku og
þykir skemmtilegast að kafa.
• Halldór tekur á á þrekœfingu.
Halldór Sævar Guðbergsson:
Annará heims-
leikum fatlaðra
HALLDÓR Sævar Guðbergsson
er félagi í íþróttafélagi fatlaðra f
Reykjavfk og æfir hann og keppir
í sundi með því féiagi. Halldór
keppir í flokki sjónskertra og hef-
ur hann náð sérlega glæsilegum
árangri í þeim flokki.
Á heimsleikum fatlaöra unglinga
sem haldnir voru í Englandi nú í
september hafnaði Halldór í 2.
sæti í baksundi og 3. sæti í bringu-
sundi. „Það er nú kannski ekki
J hægt að segja að ég hafi verið
nálægt því að vinna heimsmeist-
aratitil því það var þó nokkurt bil
á milli mín og þess sem sigraði í
baksundinu. En ef þessir leikar
verða haldnir aftur næsta ár á ég
góða möguleika því þá verð ég 16
/////////iínHHUHV
ára og verð því ekki árinu yngri
en keppinautar mínir eins og var
í mörgum tilfellum á mótinu í Eng-
landi," sagði Halldór um þennan
glæsilega árangur. Auk ferðarinn-
ar á heimsleikana hefur kappinn
farið í 3 keppnisferðir erlendis
þannig að hann er orðin veraldar-
vanur.
( vetur veröur allstíft keppnis-
prógramm hjá Halldóri og fólögum
hans því a.m.k. 5 mót eru fyrirsjá-
anleg og því verður að æfa vel.
Um það svíkst Halldór heldur ekki
því hann æfir allt að 4 sinnum á
viku. Þessar æfingar hafa skilað
sór og er hann nú fremstur í sínum
flokki hér á iandi þrátt fyrir að
hafa aðeins æft í 3 ár.
60
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA