Morgunblaðið - 28.12.1986, Síða 1

Morgunblaðið - 28.12.1986, Síða 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 292. tbl. 72. árg._SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vildi ekki gefast upp - vildi ná til lí f sins - sagði Jón Snæbjömsson, einn skip- verjanna sem komust lífs af er flutningaskipið Suðurland fórst Þórshöfn, frá fréttamönnum Morgunblaðsins Ama Johnsen og Agnesi Bragadóttur. ÁTTA skipveijar af Suðurlandi, sem sökk á jóladagsnótt í hafinu miili íslands og Noreg-s, komust í gúmbjörgunarbát við illan leik. Laskaðist hann mikið í hafróti við skrokk skipsins sem var komið á hvolf og við það að sökkva. Þá kom gat á botn bátsins og yfir- breiðslan rifnaði öll í tætlur. I þessu rekaldi höfðust skipbrotsmenn- irnir við hátt á elleftu klukkustund. Vegna rifunnar á botni bátsins gátu þeir ekki setið heldur urðu að standa saman i hnapp. Sjór gekk sífellt yfir bátinn og inni í honum náði vatnið þeim oft í klof. Að sögn Jóns Snæbjörnssonar, 1. stýrimanns, skiptust skipbrotsmenn- irnir á um að halda uppi nafnakalli, til þess að tryggja að enginn liði útaf. „Þetta var vissulega hrikaleg staða en við trúðum því allt- af að björgun myndi berast. Við vorum alltaf að tala saman og gerðum meira að segja gamni okkar. Eg býst við því að mesta ork- an hafi farið í að halda hópnum saman." Jón sagðist hafa verið síðastur úr brúnni áður en skipinu hvolfdi og hafði hann skömmu áður haft samband við Nesradió. Brúin var að fyllast af sjó þar sem hurðin bakborðsmegin hafði farið úr. „Ég var skömmu áður búinn að fara niður í vélarrúmið til að athuga hvort mannskapurinn væri ekki ör- ugglega kominn upp, en ég ætlaði aldrei að hafa mig upp aftur því þar var allt löðrandi í olíu og ill- mögulegt að fóta sig eða ná handfestu," sagði Jón. „Þegar skip- inu hvolfdi lenti ég undir því og festist þar. Ég barðist um á hæl og hnakka en mér virtust allstaðar vera rimlar fyrir og gat enga grein gert mér fyrir hvað sneri upp og hvað niður. Eiginlega var ég búinn að sætta mig við að komast ekki undan skipinu því ég var hreinlega fastur í rekkverkinu. Samt vildi ég ekki gefast upp, vildi reyna að ná til lífsins. Þá losnaði ég skyndilega, fann leiðina og mér skaut upp þeim megin við skipið þar sem gúmbjörg- unarbáturinn var á reki. Ég sá hann í um það bil 20 metra fjarlægð og synti að honum. Skipsfélagar mínir voru þá á sundi í kringum bát.inn en komust ekki um borð vegna þess að kaðalstiginn var allur flækt- ur.“ Jón sagði að sér hefði tekist að vega sig um borð í bátinn með því að ná taki á bjarglínunni sem nær allt í kringum hann. Hann gat híft einn félaga sinn um borð og í sam- einingu náðu þeir sex öðrum. Töldu þeir að einn skipbrotsmannanna hefði þá þegar verið látinn. „Bátur- inn var í slæmu standi. Við urðum því að standa uppréttir í bátnum, sem er ekki það auðveldasta við þessar kringumstæður, stórsjó og ágjöf. En þeir sem settust stóðu ekki upp aftur. Við reyndum að hugsa ekki um erfiðleikana heldur hvetja hver annan. Myrkrið var svo mikið að við sáum ekkert í kringum okkur en héldum uppi reglulegu Skipverjarnir fimm sem björguðust er Suðurlandið fórst. Frá vinstri, Jón Snæbjömsson fyrsti stýrimað- ur, Halldór Gunnarsson fyrsti vélstjóri, Kristinn Harðarson háseti, Júlíus Guðnason háseti, og Anton Sigþórsson viðgerðarmaður i vél. Myndin er tekin á sjúkrahúsinu í Þórshöfn. nafnakalli og skiptumst á að eiga frumkvæði að því. Þessi samstaða hafði mikið að segja. Okkur óx ásmegin þegar við heyrðum í Nimrod-þotunni, upp úr klukkan fjögur um nóttina. Ég skaut upp rakettu og handblysi því eina sem við áttum, því öðru hafði skolað niður um gatið á botni báts- ins. Þá var kastað grænu blysi úr þotunni sem merkti að þeir hefðu staðsett okkur. Skömmu síðar var kastað neyðarsendibauju frá banda- rískri flugvél niður að bátnum svo fylgjast mætti betur með okkur.“ Jón sagði að um tíuleytið hefði verið kastað niður nýjum björgunar- bát úr Nimrod-þotunni. Ékkert rekankeri var á bát skipbrotsmann- anna þar sem þeir töldu að hann stæði sig betur svo illa farinn í sjó- ganginum án þess. Þeir reru nú lífróður að nýja björgunarbátnum og tók það klukkutíma. Skipbrots- mennirnir klifruðu yfir í þurran bátinn en þurftu að skilja lík félaga sinna eftir. „Einhvern veginn fannst okkur kaldara þegar við vorum komnir um borð í þurran bátinn,“ sagði Jón. „Við tókum með okkur þijá hitapoka og fórum í þá tveir og tveir, nema Anton sem er svo stór að það gekk ekki. Nú gátum við sofíð stund og stund, en einn var þó alltaf á vald og kallaði reglulega á okkur hina. Það var mikill léttir þegar þyrlan kom. Ég var hífður síðastur um borð en þá var ég alveg búinn að vera og man ekki einu sinni eftir því að ég bað um sígarettu og bjór. Þegar við vorum komnir um borð í Vædderen vorum við settir í heitt bað og þá fór maður smátt og smátt að ranka við sér. En þegar ég var búinn að vera í vel heitu baði í 1 ‘/2 klukkustund var líkamshitinn kominn upp í 36 gráður.“ Jón sagðist vilja flytja öllum þeim sem aðstoðað hefðu við björgun skipbrotsmannanna þakkir, þó sér- staklega áhöfnum bresku og bandarísku björgunarvélanna, áhafnar Vædderen, einnig Nesradió og Slysavamafélagi íslands. Sjá fleiri viðtöl fréttamanna Morgunblaðsins við skipbrots- menn af Suðurlandi á bls. 24 og 25, ennfremur fréttir af skipssköðunum um jólin á bls. 2, 26, 27 og baksíðu og einnig forystugrein á miðopnu. Hafsteinn Böðvarsson Hlöðver Einarsson Sigurður Ölvir Bragason Sigurður Sigurjónsson Sigurður L. Þorgeirsson Svanur Rögnvaldsson matsveinn yfirvélstjóri háseti skipstjóri 2. stýrimaður bátsmaður Sex menn úr áhöfn Suðurlandsins fórust Mennirnir sex hétu: Hafsteinn Böðvarsson mat- sveinn, til heimilis að Langholts- vegi 178 í Reykjavík. Hann fæddist 25. júlí 1930. Hafsteinn lætur eftir sig sambýliskonu, Guðnýju Tryggvadóttur, aldraða móður og sex böm. Hlöðver Einarsson yfirvélstjóri, Flúðaseli 90 í Reykjavík. Hlöðver fæddist 11. nóvember 1945. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Kristínu Káradóttur, og tvö börn. Sigurður Ólvir Bragason há- seti, til heimilis að Fornósi 1 á Sauðárkróki. Hann fæddist 7. jan- úar 1965 og var ókvæntur og barnlaus. Sigurður Siguijónsson skip- stjóri, til heimilis að Breiðvangi 32 í Hafnarfirði. Sigurður fæddist 7. ágúst 1924 og lætur eftir sig eiginkonu, Heru Gísladóttur, og þijú börn. Sigurður L. Þorgeirsson 2. stýrimaður, Grenilundi 33 á Akur- eyri. Hann fæddist 15. ágúst 1941 og lætur eftir sig eiginkonu, Kristínu H. Harðardóttur, og fjög- ur börn. Svanur Rögnvaldsson bátsmað- ur, Feijubakka 8 í Reykjavík. Svanur fæddist 14. desember 1929. Hann lætur eftir sig eigin- konu, Fríðu Gústafsdóttur, og fimm börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.