Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
9. tbl. 75. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Grænland:
Ræðaekki
fiskveið-
ar við Is-
lendinga
Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgun-
blaðsins á Grænlandi.
MOSES Olsen, sem fer með fisk-
veiðimál grænlensku landstjórn-
arinnar, kveðst ekki ætla að
ræða nýtingu sameiginlegTa
fiskistofna við Halldór Asgríms-
son sjávarútvegsráðherra.
í viðtali við útvarpið á Græn-
landi sagðist Olsen hafa tjáð
Halldóri að hann teldi ekki tíma-
bært að ræða nýtingu stofnanna
þar sem enn hefði ekki náðst sam-
komulag um skiptingu loðnukvóta
milli íslendinga, Norðmanna og
Grænlendinga. A síðasta ári komu
5 prósent loðnuaflans í hlut Græn-
lendinga og hafa þeir krafist 15
prósenta hans á þessu ári.
Moses Olsen sagði einnig að full-
yrðingar íslendinga um að Græn-
lendingar stunduðu ofveiði á
karfastofninum væru út í hött.
Sagði hann að fjórðungur kvótans,
sem er 80.000 tonn, hefði nú verið
veiddur.
AP/Símamynd
Undanfarna daga hefur verið rúmlega 30 stiga frost i Finnlandi.
í Helsinki brugðu eigendur varðhundsins Sampo á það ráð að klæða
hann skjólgóðum vetrarfatnaði til þess að hann gæti gegnt skyldu-
störfum sínum.
Kína:
Ráðamönnum há-
skóla vikið úr starfi
Peking, Reuter, AP.
TILKYNNT var í Kína í gær að tveimur ráðamönnum Tæknihá-
skólans í Hefei hefði verið vikið úr starfi fyrir að hafa hvatt
námsmenn víða um landið tii að krefjast aukins lýðræðis og
frelsis.
Fréttastofan Nýja Kína sagði
að þeim Gauan Weiyan og Fang
Lizhi hefði verkið vikið úr starfi
rektors og aðstoðarrektors Tækni-
háskólans þar sem stjórn skólans
hefði haldið fram hugmyndum sem
væru í andstöðu við yfirlýstan vilja
stjómvalda.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Kína sögðu í gær að svo virtist
sem stjórnvöld hygðust gera Fang
Lizhi að blóraböggli en vitað er
að kröfugöngur námsmanna hafa
vakið mikla reiði meðal harðlínu-
manna í kínverska kommúnista-
flokknum. Fang er 51 árs gamall
eðlisfræðingur og hefur hann
haldið fyrirlestra víða um heim.
Orðrómur hefur verið á kreiki um
að honum hafi verið vikið úr
kommúnistaflokknum en þess var
ekki getið í tilkynningu fréttastof-
unnar.
Kröfugöngur námsmanna hóf-
ust í Hefei í síðasta mánuði og
breiddust síðan út um landið. Nýja
Kína sagði í tilkynningu sinni að
Fang hefði hundsað vilja stjóm-
valda og að „borgaralegar frelsis-
hugmyndir" hans hefðu hleypt illu
blóði í námsmenn og leitt til mót-
mæla þeirra.
Gríðarlegar frosthörkur í Evrópu:
Tiigir manna hafa látið líf-
ið og samgöngur fallið niður
Moskvu, London, Reuter, AP.
NÍSTINGSKALDIR vindar leika nú um Norður-Evrópu og
hafa menn víða látið lífið sökum frostsins. Snjókoma hefur
truflað samgöngur og í gær lokuðust landamæri nokkurra
Evrópuríkja. Járnbrautasamgöngur í Sovétríkjunum lágu að
mestu niðri í gær og skýrði Pravda, málgagn sovéska komm-
únistaflokksins, frá því að 25.000 járnbrautavagnar hefðu
frosið fastir á teinunum.
ig að kenna á kuldaskeiðinu og í
gær snjóaði í fyrsta skipti á þess-
um vetri í Madrid.
Sjá frekari fréttir frá Evr-
ópu á bls. 24
Pakistan:
Ættbálk-
ar beijast
í Karachi
^ Karachi, Reuter.
ÁTOK blossuðu upp í gær
milli tveggja ættbálka í
Karachi og var kveikt í
um það bil 100 verslunar-
og íbúðahúsum.
Hermenn, gráir fyrir jám-'
um, skámst í leikinn eftir að
lögreglumönnum hafði mis-
tekist að stöðva átökin. Að
minnsta kosti 24 þurftu á
aðhlynningu lækna að halda,
flestir vegna skotsára.
Ólætin hófust þegar fólk
af ættbálki Mohajira flykktist
út á götur Karachi og krafðist
þess að lögreglumenn hefðu
hendur í hári manna sem
myrtu fullorðinn mann og
tvær dætur hans á laugardag.
Fólkið sagði morðingjana vera
af ættbálki Pashtuna og bmt-
ust þá átökin út.
60.000 hermenn sagðir falln-
í gær létust 29 manns í snjó-
flóðum í Georgíu í Sovétríkjunum
og óttast er að sú tala kunni að
hækka. 48 menn hafa beðið bana
í eldsvoðum í Sovétríkjunum
vegna þess að olíuofnar, sem not-
aðir hafa verið til kyndingar, hafa
reynst gallaðir. Dreifíng raforku
hefur gengið treglega og dregið
hefur úr olíu- og gasframleiðslu
vegna kuldans. Þetta er kaldasti
janúarmánuður sem Sovétborgar-
ar hafa upplifað síðan 1950.
Undanfarna daga hefur mælst 35
stiga frost í Moskvu og hafa fáir
verið á ferli á götum borgarinnar.
í Leningrad var frostið einnig 35
stig og hafa aldrei mælst þar
meiri kuldar frá því mælingar
hófust árið 1743.
Á sunnudag létu tveir menn
lífíð í lestarslysi í Svíþjóð sem
talið cr að rekja megi beint til
frostsins. Hermenn fiuttu matvæli
og lyf til einangraðra byggða og |
prestar í Norður-Svíþjóð aflýstu
guðsþjónustum og hvöttu sóknar-
börn sín til að halda sig innan
dyra.
Samgöngur riðluðust í Mið-
Evrópu sökum snjókomu og kulda
og lokuðust landamæri víða.
Kennsla í skólum féll niður í Vest-
ur-Þýskalandi og Austurríkis-
menn gripu til skíða til að komast
til vinnu sinnar.
Undanfarna daga hafa tugir
manna látið lífið vegna kuldanna
og í umferðarslysum á glerhálum
akbrautum. Tveir menn létust í
gær í Búdapest í Ungveijalandi
þegar tvær lestir rákust saman. í
Munchen í Vestur-Þýskalandi
fannst útigangsmaður frosinn í
hel og sex ára gamall drengur
lést í Hollandi þegar hann féll
niður um vök. Á Bretlandi frusu
gamalmenni í hel í íbúðum sínum.
Suður-~Evrópubúar fengu einn-
ir í átökunum við Persaflóa
Bahrain, Teheran, Nikósíu, AP, Reuter.
ÍRANIR hrundu í gær öflugri
gajgusókn íraka nærri Bashra
í Irak, að sögn útvarpsins í
Teheran. Samkvæmt tilkynn-
ingum ríkjanna tveggja hafa
60.000 hermenn fallið frá því
á föstudag. írakar gerðu í gær
loftárásir á íranskar borgir
og olíuvinnslustöðvar og kváð-
ust hafa hrakið innrásarlið
írana frá landamærunum
nærri Bashra.
Talsmaður herstjómar Iraka
sagði í gær að tólf herdeildum
iranskra byltingarvarða hefði
verið „gereytt". Ennfremur var
skýrt frá því að árasir hefðu ver-
ið gerðar á borgimar Qom,
Esafan, Borujerd, Arak og Kas-
han. Irna, hin opinbera frétta-
stofa íran, sagði 100 óbreytta
AP/Sfmamynd
íranir birtu þessa mynd í gær
af líkum 66 þroskaheftra bama
sem létust í eldflaugaárás Iraka
á borgina Borujerd.
borgara hafa týnt lífi í loftárásum
íraka í gær.
Á sunnudag sagði fréttastofan
að íranskir hermenn hefðu fellt
1.000 íraka í stórsókn nærri
Bashra og að alls hefðu 4.500
írakar fallið þann daginn. írakar
sögðu 22 óbreytta borgara hafa
fallið í eldflaugaárásum írana á
Bashra auk þess sem eldflaugar
hefðu hafnað í íbúðarhverfum í
Baghdad, höfuðborg írak, og orð-
ið fjölda fólks að bana.
Iranir virðast nú gera hvað
þeir geta til að einangra Bashra,
sem er næststærsta borg íraks.
Að sögn vestrænna stjómmála-
skýrenda vonast Iranir til að
bijóta baráttuþrek íraka á bak
aftur með umsátri um Bashra og
veikja þar með stjórn Saddams
Hussein, forseta írak.