Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
55
Atvinnuleysi að
aukast í Grindavík
Gindavfk.
HELDUR fjölgar þeim sem láta
skrá sig atvinnuiausa og nú eru
um 60 á skrá hér i Grindavík.
Mest fjölgaði á atvinnuleysisskrá
rétt fyrir jólin eftir að síldar-
vertíð lauk og voru um 40 skráðir
í síðustu viku desembermánaðar.
A þessum árstíma er þörf físk-
vinnslufyrirtækjanna eftir vinnu-
krafti í lágmarki þannig að verkfall
sjómanna orsakar aðallega að verk-
stjórar halda að sér höndum með
ráðningu á fleira fólki.
Þegar fréttaritari Morgunblaðs-
ins leit inn í nokkur þeirra var verið
að vinna við síld, skreið og jafnvel
rækju. Aðallega er unnið að um-
hirðu síldarinnar og hún búinn undir
útflutning, en næsta farm til Sov-
étríkjanna átti að byrja að lesta
fyrir helgina. Þá er einnig verið að
sauma utan um skreið sem væntan-
lega er á förum og í Þorbirninum
hf. er til rækja í tvær vikur. Svo
helstu fiskvinnslufyrirtækin í
Grindavík munu ekki þurfa að grípa
til þess ráðs að senda það fólk heim
sem hefur verið við vinnu frá því
að síldarvertíð lauk. Við höfnina
býður flotinn eftir því að verkfallið
leysist og vertíðin geti hafist. í
nokkrum bátum er tíminn notaður
til viðgerða og uppi á brúnni á
Skarfi GK var vélstjórinn Haukur
Andrésson að fylgjast með rafvirkj-
um að störfum. Hann kvaðst óhress
með að ríkisstjómin ætlaði að setja
lög en sennilega væri það eina úr-
ræðið ef ætti að róa í vetur því
útgerðarmenn segðu alltaf nei við
öllu sem kæmi frá sjómönnum.
Kr.Ben.
Morgunblaðið/Kristinn
Unnið að rækju í Þorbimi, en
þar er gripið til hennar þegar
ekki eru næg verkefni í fiski. A
innfelldu myndinni sést skreiðar-
pökkun í Fiskanesi.
/ /
MUSIKLEIKFIMtN
HEFST 15. JANÚAR
Styrkjandi og lidkandi cefingar fyrir konur á öllutn
aldri. Byrjenda- og framhaldstimar. Kennsla fer fram
i Melaskóla.
Kennari: Gigja Hermannsdóttir.
Uppl. og innritun í síma 13022 um helgar. Virka
daga eftir kl. 5.
____________________ ■________________________________J
Hitamælinga-
miðstöðvar
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján
eða tuttugu og sex mælistaði.
Ein og sama miðstöðin getur tekið við og sýnt
bæði frost og hita, t.d. Celcius+200+850 eða
0+1200 o.fl. Hitaþreifarar af mismunandi lengdum
og með mismunandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Það er hægt að fylgjast með afgashita, kælivatns-
hita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, frystum,
lestum, sjó og fleira.
VESTURGOTU 16 SÍMAR 14680 ?1480
BlLLINN^^
Lítill, sætur og ótrúlega
rúmgóður.
Létturog lipuríbænum.
Eyðir næstum engu.
Hægt að leggja honum hvar
sem er.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23sími 6812 99
Skutlan kostar nú frá aðeins
259 þúsund krónum.
Skutlan er flutt inn af Bíla-
borg h/f. Það tryggir 1. flokks
þjónustu, sem er rómuð af öll-
um sem til þekkja.