Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
21
Signrður A. Magriússon
Harðar blaðadeilur útvarpsstjóra
og útvarpsráðsmanna benda sterk-
lega til þess að útvarpsstjóri hafí
að minnsta kosti litið málið alvar-
legum augum. Ella hefði hann
tæpast farið að bera það á torg.
Orð Magnúsar um „dapurlega
lífsgöngu" Nietzsches „undir stöð-
ugu skini kalstjömu" eiga sennilega
að vera skáldlegt flúr á skrif hans,
en eru vægast sagt illa tilfundin
og með öllu ómakleg; þau bera
ömurlegt vitni snautlegri þekkingu
á lífí og verkum þessa uppljómaða
og afburðasnjalla hugsuðar og
skáldjöfurs. Að sönnu var hann
sinnisveikur síðustu æviárin, en sú
ógæfa veitir mönnum lítilla sanda
hreint enga heimild til að kveða upp
sleggjudóma um lífsferil hans, sem
var í mörgu tilliti einhver hinn
glæsilegasti sem um getur á síðustu
öld — og hef ég þá ekki síst í huga
andlegt líf þessa umdeilda snilldar-
manns. Eða kæmi nokkrum heil-
skyggnum íslendingi til hugar að
fella dóm um „lífsgöngu" Einars
Benediktssonar útfrá því einu, sem
vitað er um síðustu tíu æviár hans?
Þau orð Nietzsches að „lygin væri
lífsskilyrði" em að sjálfsögðu rifín
úr réttu samhengi, einsog altítt er
í hérlendu orðaskaki, og túlka síst
af öllu lífsviðhorf þess ástríðufulla
sannleiksleitanda sem Nietzsche
var meðan hann hélt heilum söns-
um.
Ég get ekki að því gert, og lái
mér hver sem vill, að mér þykir
greinarstúfur Magnúsar Erlends-
sonar bera sterkan keim af því
sovéska hugarfari sem kerfisþrælar
um allar jarðir eru ofurseldir og
birtist meðal annars í því, að þeir
tjúka upp einsog nöðmr hvenær
sem orðinu er hallað á Flokkinn eða
Kerfíð, tvær ginnheilagar kýr sem
í heiminn vom bornar fyrir guðlega
forsjón og engir nema „lífsbitrir"
nöldurseggir leyfa sér að hrófla við.
í Sovétinu em gagnrýnendur og
andmælendur sendir í útlegð eða
lokaðir inná geðveikrahælum? Á
íslandi em þeir stimplaðir „lífsbitr-
ir“ og „stóryrtir" og gjama dæmdir
óalandi í samfélagi vel taminna og
auðrækra fjölmiðlasauða.
Upphlaup Magnúsar útaf deilu-
máli, sem alþjóð er fullkunnugt um,
minnir á hið fomkveðna: Fjallið tók
jóðsótt og fæddi mús.
Höfundur er rithöfundur.
Atlantshaf sbandalagið
Umhverfismála
styrkir veittir
Atlantshafsbandalagið
(NATO) mun á árinu 1987 veita
nokkra styrki til fræðirannsókna
á vandamálum er varða opinbera
stefnumótun í umhverfismálum.
Styrkirnir era veittir á vegum
nefndar bandalagsins, sem fjallar
um vandamál nútímaþjóðfélags.
Þeir eru veittir til rannsókna er
tengjast einhveiju þeirra verkefna,
sem nú er fjallað um á vegum
nefndarinnar.
Gert er að ráð fyrir að umsækj-
endur hafí Iokið háskólaprófí.
Umsóknum skal skilað til utanríkis-
ráðuneytisins fyrir 31. janúar 1987
og lætur ráðuneytið í té nánari
upplýsingar um styrkina, þ.á.m.
framangreind verkefni.
(Fréttatilkynning)
NÝJUNG
M E Ð
NÝJUNGAF
Á ÍSLAND I
Musýninganámáeið
fyrír böm og unglinga
hefjast í næstu áu
Dansnýjung og tískusýningasamtökin Nýjung er
eini dans- og tískusýningaskólinn sem sérhæfir sig
í kenna börnum og unglingum.
Önnumst einnig uppsetningu á stórum sem smáum
tískusýningum fyrir fyrirtæki og útvegum fólk fyrir
auglýsingamyndir.
Topp-fólk og góðar sýningar.
Stig 1 Byrjendur, sett upp sýning, tekiA próf.
Stig II SnyrtisérfræAingur og hárgreiAslumeistari.
Stig III Lokastig, tískuljósmyndari vinnur meA módelun-
um.
Kennari Kolbrún AAalsteinsdóttir.
Flokka-
skipting
4—6 ára
7—9 ára
10—12 ára
13—14 ára
15—20 ára
INNRITUN
í NÆSTU VIKU
í SÍMA 46219
-Desktop Publishing-
Kynnum þessa viku
PageMaker
útgáfu- og umbrotsforritið sem
getur lækkað útgafukostnað þinn um allt að 50%.
PageMaker hefur, á stuttum tíma, sparað PageMaker hentar öllum sem
ýmsum fyrirtækjum fjármagn sem £oma nálægt útgáfustarfsemi
J J J J „. x hvort sem það eru fyrirtæki
samsvaraði stofnkostnaði þeirra a augiýsingastofur,
PageMaker forritinu, Macintosh tölvunni útgefendur eða
T j • blaðafulltruar.
og LaserWnter prentaranum.
Hagkvæmni PageMaker
liggur í því hve einfalt og
fljótvirkt það er, það styttir
y- ~----------------v útgáfutímann og lækkar
I rrr^-ía~XhK„eTin----------------------Útgáfukostnaðinn.
Ymsar auglýsingastofur
erlendis byggja starfsemi sína
á Macintosh, LaserWriter
og PageMaker. Má þar
fremsta telja Ted Bates í
Helsingborg í Svíþjóð.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800