Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
Undirmenn höfnuðu tilboði kaupskipaútgerða:
Sé ekki fram á annað en langt verkfall
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdasljóri VSI
UNDIRMENN á farskipum höfn-
uðu í gær tilboði frá kaupskip-
aútgerðunum og ítrekuðu fyrri
kröfur sínar um 35 þúsund króna
lágmarkslaun, 80% álag á yfir-
vinnu og óbreytt vinnufyrir-
komulag. Ríkissáttasemjari sleit
að þvi loknu fundi og hefur ekki
boðað til nýs fundar í deilunni.
Verkfall undirmanna á farskip-
um hófst á miðnætti 5. janúar
síðastliðinn.
„Við höfum lagt okkur fram um
að ná samningum við Sjómannafé-
lag Reykjavíkur og höfum í því
skyni leitað eftir viðræðum allt frá
því í september í haust. Þær hafa
hins vegar gengið brösuglega því
allt fram til 5. janúar síðastliðinn
hélt félagið fast við það að ræða
ekki samning fyrir árið 1987, fyrr
en gengið hefði verið að kröfum,
sem lagðar voru fram á fyrrihluta
ársins 1986,“ sagði Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, aðspurður um stöðuna í samn-
ingaviðræðunum.
„í dag lögðum við fram tilboð,
sem felur í sér einföldun á launa-
greiðslum, þannig að ekki komi til
aukagreiðslna í dagvinnu eða á
vöktum vegna einstakra verka eins
og nú gerist. Þessar greiðslur bæt-
ast þess í stað við grunnlaunin, sem
hækka verulega. Við metum það
svo að þetta tilboð gefí í lok samn-
ingstímans hásetum ríflega 18%
kauphækkun. Við gerum á hinn
bóginn ráð fyrir því, að með einfald-
ari vinnureglum hafi útgerðin
nokkurn hag á móti, þannig að
launakostnaðarauki verði ekki til-
svarandi, þó hann verði augljóslega
allnokkuð umfram það sem almennt
hefur gerst í samningum nú í vetur.
Við göngum svona langt vegna
þess að við teljum ríka skyldu á
samningsaðilum um að ná saman,
en jákvæð afstaða okkar einna dug-
ar skammt til þess að ná samningi.
Viðbrögð samninganefndar Sjó-
mannafélagsins voru þau að hafna
með öllu þessum tillögum um 18%
launahækkun og ítreka upphaflegar
kröfur, sem í reynd munu svara til
45-50% launahækkunar, ef þær
fengju fram að ganga. Þegar tveir
deila er augljóst að báðir verða
nokkuð að gefa eftir til þess að
samningur geti náðst og samninga-
nefnd Sjómannafélagsins hefur
ekki verið tilbúin til þess. Okkur
sýnist því að þeir séu ekki að leita
eftir samningum, heldur einhverju
allt öðru. Eins og mál standa núna,
sjáum við ekki hvert framhaldið
getur orðið, því það er augljóst mál
að við getum ekki aukið við okkar
tilboð þegar enginn vilji kemur fram
af hálfu samninganefndarinnar til
þess að leysa deiluna. Eins og mál
standa sé ég því ekki fram á annað
en mjög langt verkfall," sagði Þór-
arinn.
„Mér virðist að Sjómannafélagið
sé farið að skera sig all nokkuð úr
hópi annarra stéttarfélaga, því það
er með ólíkindum að ár eftir ár
þurfí að koma til verkfalla og hat-
VEÐUR
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstola Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Yfir Skandinavíu er hægfara 1049 milli-
bara hæfi. Vifi suðausturströnd Grænlands er 994 millibara djúp
lægft sem þokast norfinorðaustur.
SPÁ: Sufilæg átt og vífia strekkingsvindur um vestanvert landið.
Bjart veður um norðan- og austanvert landið en skýjað og smá
skúrir í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 2 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Breytileg átt og víða bjart
veður. Vægt frost inn til landsins en hiti nálægt frostmarki við
ströndina.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Háifskýjað
m Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
- Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■| Qc Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ Súld
OO Mistur
—(- Skafrenningur
|T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hiti 3 veAur lóttskýjaö
Reykjavík 3 skúr
Bergen -9 lóttskýjaö
Helsinki -30 lóttskýað
Jan Mayen 2 ióttskýjað
Kaupmannah. -13 rennlngur
Narssarssuaq -16 skýjaö
Nuuk -11 lóttskýjað
Osló -16 lóttskýjaö
Stokkhólmur -20 lóttskýjað
Þórshöfn 3 skýjaö
Algarve 14 rigning
Amsterdam -7 lóttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Barcelona 4 mistur
Berlín -11 snjókoma
Chicago -2 heiðskfrt
Glasgow -6 snjóól
Feneyjar 4 þokumóða
Frankfurt -11 snjókoma
Hamborg -10 snjókoma
Las Palmas 20 lóttskýjað
London -7 heiðskfrt
Los Angeles 12 heiðskfrt
Lúxemborg -13 hálfskýjað
Madrfd 1 rignlng
Malaga 9 súld
Mallorca 11 skýjað
Miami 7 léttskýjað
Montreal -4 snjókoma
NewVork 2 alskýjað
París -11 lóttskýjað
Róm 6 rigning
Vfn -14 rennlngur
Washington -1 lóttskýjað
Winnipeg -3 skýjað
rammra deilna án þess að nokkuð
sé hægt að þoka málum áfram með
vitrænum umræðum, eins og
vwiðast hefur þó tekist í samning-
um á davinnumarkaði hin síðari ár.
Þessi mlisvinnubrögð hljóta að
þurfa að breytast," sagði Þórarinn
ennfremur.
í fréttatilkynningu fra samninga-
nefnd kaupskipaútgerða segir að
tilboð þeirra þýði 18,11-20,89%
hækkun á heildarlaunatekjum sjó-
manna á samningstímanum og
verði mánaðarlaun háseta, daglaun
og sjóálag, á bilinu 34.641 til
41.916 eftir starfsaldri og laun
bátsmanns frá 39.836 til 48.203 í
lok samningstímans.
Útlitið framundan
er ekki glæsilegt“
- segir Guðmundur Hallvarðsson
„Mér sýnist að útlitið framundan
sé ekki glæsilegt. Ef þetta er
Ieiðin sem þeir telja heppilega
til lausnar og við stöndum fastir
á grunnkaupshækkunum þá sjá
menn að það er geysilega mikið
sem ber á milli,“ sagði Guðmund-
ur Hallvarsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur,
aðspurður um stöðuna í deilu
félagsins við kaupskipaútgerð-
ina.
„Þessar óskir kaupskipaútgerð-
arinnar um breytingar á gildandi
samningi um vinnufyrirkomulag
þýða meðal annars að menn þurfa
að vinna hvort sem er á nóttu eða
degi án yfirvinnugreiðslu, sem þeir
áður hafa fengið, og ef fleiri atriði,
sem þeira hafa sjálfir vegið og vigt-
að þama inn, em tekin með reikn-
inginn þá fer nú af þessu verulegur
fjöldi prósenta. Þeir hafa sjálfir
talað um að breyting á þessum vinn-
uramma geri það að verkum að
tilboð þeirra sé upp á 4-6% hækk-
un,“ sagði Guðmundur um þá
staðhæfingu kaupskipaútgerðar-
innar, að tilboð hennar í gær um
hækkun á sjóálagi úr 11% í 22%
væri upp upp á 18-20% launahækk-
un. Þessu væri því ekki haldið fram
af fullum heilindum.
i Guðmundur sagði að starfandi
sjómenn hefðu hafnað alfarið því
að breytingar yrðu gerðar á núver-
andi ákvæðum um vinnu á sjó.
Tilboðið væri því algerlega óað-
gengilegt. Það væri ekki forsvaran-
legt að menn væm að vinna einir
ofan í lest eða annars staðar um
borð. Hásetum hefði verið fækkað
mjög mikið og vinnuálag aukist og
það gengi ekki að hásetum bæri
að sinna störfum frá masturstoppi
og niður í kjöl nánast. Núverandi
11% sjóálag væri þannig til komið
að hásetar hefðu bætt á sig vinnu
og gert breytingar á vinnuramman-
um. Vaktaálag í landi væri almennt
frá 36-45% og því væri tilboð um
22% sjóálag vegna þessara breyt-
inga á vinnurammanum ekki í neinu
samræmi við það sem gerðist í
kjarasamningum Vinnuveitenda-
sambandsins hvað vaktavinnu
snerti.
„Hluti þessarar deilu er til kom-
inn vegna lagasetningar á síðasta
ári. Þau væm þá orðinn tvenn lög-
in, sem hefðu verið sett vegna
þessarar deilu og það væri út af
fyrir sig mjög merkilegt. Nema
þeir settu lög og lögbindu kröfu-
gerðina okkar. Sum sé lagasetning
með öfugum formerkjum miðað við
það sem áður hefur gerst,“ sagði
Guðmundur aðspurður um hvort
hann óttaðist að lög yrðu sett á
farmenn eins og fiskimenn.
„Sjómenn hafa á undanfömum
ámm mjög oft fengið á sig lög og
er skemmst að minnast þess að
Svavar Gestsson sat í ráðuneyti
Gunnars Thoroddsen, sem setti lög
á farmenn árið 1979. Þeir leiðast
víða þessir kappar, sem koma svo
í dag, beija sér á bijóst og segjast
vera á móti því að ríkisstjómin seti
lög. Auðvitað getur maður tekið
undir það, en hráskinnaleikurinn
er mikill. Þeir gerðadómar sem við
höfum fengið á okkur hafa ekki
verið okkur í hag og mér er minnis-
stætt að 1979 átti gerðardómur að
vega og meta fjarvem farmanna
frá heimilum sínum og einangmn
í starfi, en það er ekkert í launaum-
slaginu sem bætir það. Gerðardóm-
urinn treysti sér ekki til meta þetta
til fjár og brást algjörlega starfs-
skyldu sinni. Það kom heldur ekkert
út úr gerðardóminum í fyrra nema
ASÍ samkomulagið," sagði Guð-
mundur ennfremur.
Skákmótið í
Hastings:
Margeir
gerði tvö
jafntefli
MARGEIR Pétursson náði jöfnu
í tveimur biðskákum sem hann
tefldi í gær á skákmótinu í Hast-
ings, þrátt fyrir að hann hefði
verri stöðu í báðum skákunum,
en um helgina tapaði hann tveim-
ur skákum. Mótinu lýkur í dag,
og á heimsmeistari kvenna i skák
möguleika á að vinna það.
Margeir tefldi í gær biðskákir
sínar úr 9. og 10. umferð mótsins
gegn Sovétmönnunum Gufeld og
Chiburdanidze, sem er heimsmeist-
ari kvenna í skák. í 11. og 12.
umferð tapaði Margeir hinsvegar
fyrir Bretunum Hodges og Plas-
kett, og er nú með 4 vinninga. í
síðustu umferðinni í dag teflir Mar-
geir við Kudrin frá Bandaríkjunum.
Daninn Bent Larsen, Bretinn
Speelman og Sovétmaðurinn Lput-
jan eru efstir og jafnir með 7,5
vinninga en Chiburdanidze er í 4.
sæti með 7 vinninga.
Svæðamótið í Gausdal:
Jóhann er efstur
Teflir við Agdestein í dag
Jóhann Hjartarson gerði jafn-
tefli við Ogaard frá Noregi á
svæðamótinu í skák sem haldið
er í Gausdal í Noregi, og er Jó-
hann enn einn efstur með 3,5
vinninga eftir fjórar umferðir.
Jón L. Árnason tapaði sinni skák
við Danann Morthensen þegar
hann féll á tíma með unna stöðu,
og Guðmundur Sigurjónsson
vann Sævar Bjamason.
Næstir Jóhanni koma norski stór-
meistarinn Agdestein og Ögaard
með 3 vinninga.