Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
félk f
fréttum
Ber er hver að baki...
að er hermt að ber sé hver að
baki, nema hann sér bróður
eigi. Þetta á við um alla há sem
lága og ekki síður heimsþekkt fólk.
Bræður og systur standa þó yfir-
leitt í skugga frægari systkina, þó
svo að vissulega séu til á því undan-
tekningar. Má þar nefna Janet
Jackson, sem komst í sviðsljósið af
eigin rammleik, þó svo að líklega
hafi ekki spillt fyrir að vera systir
Michaels Jackson. Hér á eftir verða
rakin nokkur dæmi um systkini,
sem eru að reyna að ota sér í
skugga stóra bróður, eða systur.
og PAULA Ciccone: göngkona
H8HM
hafa mikið álit á k‘ ^artin Sheen Þp' faðir
sa& Þeim tii ógástStt flður Sínum> enda hefi ?ður
e,nnig séð til bL ÍTumeð ráðum og dáð hann
*• »»»■ Þ ^ sé“ * & Zp%z0h;%
PHYLICIA Rashad og DEBBIE Alien:
Debbie Allen hóf feril sinn á Broadway, eins og svo margir aðrir dansar-
ar, en hún varð fyrst fræg þegar hún fékk hlutverk í Fame, eða „Á
framabraut", eins og þættimir nefnast á íslensku. Stóra systir er ekki
ófrægari, því að hún er Phylicia Rashad, sú sem leikur Clair Huxtable í
þáttunum um fyrirmyndarföðurinn. Þær systur ólust upp í Texas og að
sögn hafa þær stutt hvor aðra alla tíð, enda ekki samkeppni á milli þeirra.
ROBogCHAD
Lowe:
Þessir bræður
munu vera með
alræmdustu
hjartaknúsurum
Hollywood um
þessar mundir.
Rob mun hafa
stefnt að því frá
unga aldri að
verða leikari og
með harðfylgni
tókst það. Chad
hafði á hinn bóg-
inn aðeins áhuga
á íþróttum. Dag
einn varð hann
þó samferða
stóra bróður á skrifstofu umboðsmanns þess síðamefnda. Umboðsmannin-
um leist vel á piltinum og bauð honum lítið hlutverk í kvikmynd nokkurri
og æ síðan hefur Chad verið önnum kafinn við leikinn, því hann þótti
standa sig með stakri prýði. — Að sögn fínnst Rob Lowe það ágæt til-
breyting að vera kynntur sem stóri bróðir Chads.
SEANogCHRIS Penn:
Flestir kannast við Sean Penn, ný-
viðskilinn eiginmann Madonnu, en
hann og bróðir hans, Chris, hafa
verið viðloðandi leiklistina frá unga
aldri. Móðir piltanna er leikkona og
faðirinn leikstjóri. Enn er óvíst hvað
Sean tekur sér fyrir hendur eftir
að upp úr sauð milli hans og Ma-
donnu. Raddir munu hafa heyrst
um að honum hafi verið boðið hlut-
verk í sjónvarpsþætti, en ekki fylgdi
sögunni hvaða þáttur það væri.
Chris hefur á hinn bóginn haft nóg
al gera við kvikmyndaleik að und-
anfömu.
Liberace
firrir sig vandræðum
Bandaríski píanóleikarinn Lib-
erace, sem er ef til vill
þekktari fyrir skrautsýningar
sínar en sjálfan píanóleikinn,
þurfti að reiða af hendi sem nem-
ur 4,5 milljónum íslenskra króna
á dögunum. Þeir peningar fóru
til Scotts nokkurs Thorson, sem
er fyrrum „vinur“ og einkabíl-
stjóri píanóleikarans.
I orði kveðnu em peningamir
þakklætisvottur Liberace fyrir
margra ára dygg störf, en at-
hygli vakti að í sama mund var
tilkynnt að ekkert yrði af útkomu
bókar eftir bílstjórann. Hennar
hafði verið beðið með eftirvænt-
ingu þar sem að Thorson hafði
boðað að í henni yrði sagt frá
öllu um ástarsamband hans og
Liberace.
Minna má á að fyrir allmörgum
árum vann Liberace meiðyrðamál
gegn dagblaði nokkm, sem sagt
hafði hann samkynhneigðan. Það
vann hann á þeirri forsendu að
hann væri ekki hommi, en nú virð-
ist annað komið í Ijós.
Með hring á hverjum
fingri, píanóleikarmn
Liberace.
Cliff síungi.
Cliff
hefur ekki
áhugaá
að kvænast
Hinn síungi Cliff Richards, sem nú er 46
ára gamall, hefur lýst því yfir að hann
hyggist ekki kvænast, enda fleira í lífinu en
að eignast konu og böm.
Þetta þykir skjóta skökku við hjá þessum
Dorian Gray poppsins, því að hann er maður
trúaður og hefur margoft lýst því yfir að
hann sé a móti kynlífi fyrir hjónaband. Nú
hefur hann greinilega gefíð. slíkt algerlega
upp á bátinn.
„Lengi vel angraði það mig þegar fólk sagði
að ekki væri unnt að höndla hamingjuna án
þess að kvænast og koma sér fyrir, en samt
taldi ég það nú vera satt. Nú geri ég það
ekki lengur."
Cliff hefur aðeins þrisvar staðið í föstu
sambandi við kvenfólk. Síðast var það tennis-
stjarnan Sue Barker, sem hann sást öðru
hvetju með, en nú hefur slitnað upp úr því.
Cliff segist hafa íjölskyldu, þar sem hann
styrki fátæka fjölskyldu á Haiti fyrir tilstilli
hjálparstofnunar. Vonandi fínnur hann ham-
ingjuna þannig.
Annars er það af Cliff að frétta að hann
leikur um þessar mundir í söngleiknum Time
í Lundúnaborg.