Morgunblaðið - 13.01.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
5
Eldur í Aust-
urbæjarskóla
ELDUR kom upp í Austurbæj-
arskólanum í Reykjavík um
hádegið í gær og var allt til-
tækt slökkvilið sent á staðinn.
Slökkviliðið í Reykjavík fékk
tilkynningu um eldinn kl. 12.22.
Var sagt að kviknað væri í skólan-
um og kona í skólaeldhúsinu væri
króuð inni. Þegar slökkviliðið kom
á vettvang var mikill og svartur
reykur í stigagangi í húsinu. Eld-
húsið er á þriðju hæð og var
enginn reykur þar inni, svo konan
var ekki í bráðri hættu, en stiga-
gangurinn hennar eina útgöngu-
leið. Grunur lék á að eldurinn
væri í bókasafninu á annarri hæð
hússins, en reykkafarar komust
að raun um að kviknað hafði í
hljóðeinangrunarplötum á gangi
fyrstu hæðar. Gekk fljótt og vel
að ráða niðurlögum eldsins, en sá
hluti skólans þar sem hann kom
upp var rýmdur.
Líklegt þykir að eldurinn hafi
verið af mannavöldum.
Eldurinn í Austurbæjarskólanum logaði í hljóðeinangrunarplötum, sem var staflað upp á frstu
hæð.(A innfelldu myndinni) Nemendur Austurbæjarskóla fylgdust spenntir með þegar slökkviliðið
barðist við eldinn í skólanum þeirra.
VÉLA-TEW
7 1
Allar geröir
Öxull — í — öxul.
Öxull — í — flans.
Flans — í — flans.
Tengiö aldrei stál — í — stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring milli
tækja.
Allar stæröir fastar og frá-
tengjanlegar
<JJ<§)trD®®©tfi) <Ít ©@.
Vesturgötu 16, sími 13280
Sinf óníuhlj óm-
sveit Islands:
Vínartón-
leikar á
Akureyri og
í Reykjavík
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
efnir til tvennra Vínartónleika, í
íþróttaskemmunni á Akureyri á
fimmtudagskvöld, 15. janúar, kl.
20.30 og í Háskólabíói á laugar-
dag, 17. janúar, kl. 17.00. Vínar-
tónleikar hafa um árabil verið
fastur liður í starfsemi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Til liðs við Sinfóníuhljómsveitina
koma tveir Vínarbúar, Gerhard Dec-
kert, hljómsveitarstjóri Ríkisóperunn-
ar í Vínarborg, og Ulrike Steinsky,
ung Vínarsöngkona. A efnis-
skránni eru verk eftir Johann
Strauss, Franz Lehar, Oscar Strauss,
Robert Stolz, Nico Dostal og W. Fri-
ebe. í fréttatilkynningu segir að á
undanförnum árum hafi oftsinnis orð-
ið að endurtaka Vínartónleika Sin-
fóníuhljómsveitarinnar vegna
mikillar aðsóknar. Það verður ekki
mögulegt að þessu sinni þar sem ein-
söngvarinn, Ulrike Steinsky, verður
að halda af landi brott strax að lokn-
um tónleikunum í Reykjavík á
laugardag.
Tónleikasalirnir á Akureyri og í
Reykjavík verða blómum skrýddir. A
Akureyri hafa 15 fyrirtæki sameinast
um að gefa blómin og í Reykjavík
hafa 20 fyrirtæki tekið þetta að sér.
Að loknum tónleikunum verða blómin
send í sjúkrahús og á dvalarheimili.
Aðgöngumiðasala á tónleikana fer
fram í Bókabúðinni Huld á Akureyri
og á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar-
innar í Gimli við Lækjargötu í
Reykjavík. Ennfremur verða miðar
seldir við innganginn.
Sænsku konungs-
hjónin koma til
Islands í sumar
CARL Gustav XVI Svíakonungur
og Sylvia drottning eru væntanleg
í opinbera heimsókn til íslands
dagana 23. til 25. júní næstkom-
andi.
Þetta er í annað skipti sem Carl
Gustav kemur í opinbera heimsókn
hingað til lands en hann kom áður
árið 1975 í boði Kristjáns Eldjárn,
þáverandi forseta íslands. Sylvia
drottning hefur ekki komið áður til
fslands.
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti
íslands fór í opinbera heimsókn til
Svíþjóðar haustið 1981.
FIAT REGATA diesel ríkulega búinn aukahlutum, m.a. mjög spar-
neytinn 2,01 dieselvél, rafmagnsrúður og læsingar, luxus innréttingar.
FIAT RITMO rúmgóður fjölskyldubíll vel búinn aukahlutum með 1,3
eða 1,5 I sparneytnum bensínvélum.
Gerið verðsamanburð
aaaa UMBOÐIÐ,
Skeifunni8, Reykjavík Sími68 88 50