Morgunblaðið - 13.01.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
PAIERO
MITSUBISHI
ABíII ffyrir þá, sem vilja komast
leiðar sinnar hvernig sem viðrar.
Færðin er aukaatríði, þegar ferðast er t Pajero.
Pajero Wagon Verð frá kr. 1.021.000. Á
Fæst með háþekju/lágþekju, bensínvél J
/dieselvél, sjálfskiptingu/handskiptingu.
Pajero Stuttur Verð frá kr. 787.000.
Fæst með bensínvél/dieselvél.
Staðlaður búnaður:
Handvirkar driflokur — Aflstýri — Snúningshraðamælir — Bíistjórastóll meö fjöörun
og hæöarstilli — Driflæsing að aftan — Veltistýri
— Aukamiöstöö undir aftursæti —
Rúllubílbelti í öllum sætum — Rafhituð framsæti.
HEKIAHF
UU Laugavegi 170-172 Simi 695500
MEÐEINU
SÍMTALI
Eftir það verða________
áskriftargjöldin skuld
færð á viðkomandi
greiðslukortareikning
SÍMINNER
691140-
691141
Pt:
Fjallið tók jóðsótt
eftir Sigurð A.
Magnússon
Einn af þremur fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins í útvarpsráði,
Magnús nokkur Erlendsson, ryðst
galvaskur framá ritvöllinn í Morg-
unblaðinu fimmtudaginn 8. janúar
og fimbulfambar um að ég hafi
gerst sekur um grófar lygar þegar
ég lét þess getið í blaðaviðtali, að
á nýbytjuðu ári verði fróðlegt að
fá úr því skorið hvernig viðureign
útvarpsstjóra og útvarpsráðs ljúki,
en þessir aðilar deildu um það á
liðnu ári, hvert væri raunverulegt
valdsvið útvarpsstjóra. Gengur
Magnús greinilega fram í þeirri
dul, að almenningur sé búinn að
steingleyma þeirri illvígu deilu, og
er reyndar mjög í samræmi við
málflutning hérlendra stjómmála-
manna og skósveina þeirra.
Eg talaði hvorki um grimmt né
heilagt stríð í þessu sambandi og á
satt að segja bágt með að koma
auga á öll þau stóru orð í viðtalinu
sem Magnús brigslar mér um. í
greinarstúfi sínum notar hann hins
vegar í þrígang orðið lygi, einu-
sinni ósannindi og öðrusinni
helber ósannindi, að ótöldum ýms-
um ókræsilegum einkunnum um
mig og ævibraut mína. Einsog oft
endranær verða orð Hallgríms til-
tæk: „Það sem helst hann varast
vann ...“
Magnús upplýsir að síðan Mark-
„Magnús upplýsir að
síðan Markús Orn Ant-
onsson tók við starf i
útvarpsstjóra hafi aldr-
ei komið upp „alvarleg-
ur ágreiningur“ milli
hans og útvarpsráðs.
Hér skiptir orðið „al-
varlegnr“ vissulega
sköpum, þó yfirlætis-
laust sé.“
ús Örn Antonsson tók við starfi
útvarpsstjóra hafi aldrei komið upp
„alvarlegur ágreiningur" milli hans
og útvarpsráðs. Hér skiptir orðið
„alvarlegur“ vissulega sköpum, þó
yfirlætislaust sé. Vitaskuld er ævin-
lega álitamál hvað menn eiga við
með þvílíkum varnagla, en að mínu
mati er það mjög alvarlegt mál,
þegar pólitískt ráð, sem lögum sam-
kvæmt er einungis ætlað að gegna
ráðgjafar- og eftirlitshlutverki, seil-
ist inná valdsvið stjórnskipaðs
embættismanns og gerir sig líklegt
til að segja honum fyrir verkum.
Mér vitanlega hefur til dæmis þjóð-
leikhúsráð aldrei haft uppi tilburði
í þá átt gagnvart þjóðleikhússtjóra,
þó kosið sé flokkspólitískrí kosn-
ingu.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í ræðupúlti á fundinum
hjá Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík.
Reykjaneskjördæmi:
Steingrímur Hermannsson
gestur Kiwanismanna
Keflavík.
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra var gestur hjá
Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík
í kvöldverðarboði á Glóðinni 5.
janúar sl. Að loknu borðhaldi flutti
forsætisráðherra framsöguerindi
og svaraði fyrirspurnum. Fundinn
sátu 68 manns, Kiwanisfélagar og
gestir þeirra.
Að sögn Vilhjálms Amgrímssonar
hjá Keili er ætlunin að fá efstu menn
á framboðslistum stóm flokkanna í
Iq'ördæminu á næstunni til að kynna
sig og sín sjónarmið og svara spum-
ingum frá fundarmönnum. Fyrir
bæjar- og sveitarstjómarkosningam-
ar á sl. ári vom svipaðir kynningar-
fundir á frambjóðendum í Keflavík
og þóttust þeir takast vel.
Geir Gunnarsson efsti maður á
lista Alþýðubandalagsins verður
næsti gestur þeirra Keilismanna.
- BB
Eigendurspariskírteina!
Innlausn á 1. fl. 1975 hófst
10. janúar sl.
Innlausnarverö pr. 10.000 gkr.
er kr. 8.565,53
Sjáum um innlausn spariskírteina
og endurkaup á veröbréfum.
ARGUS/SÍA
Ársávöxtun umfram
Höfum tíl SÖlu: verðbólgu, %
6,5%
Nv spariskírteim
Skuldabréf veðdeildar g 8_10 4o/o
Iðnaðarbankans 0’ 8_-i j ,4%
SkuldabréfGlltn'®. ^oað
Hjá okkur eru verðbréfaviðskiptin einföld og örugg
Helstu þjónustusvið:
* verðbréfamiðlun
* ráðgjöf vegna verðbréfaviðskipta
* aðstoð við skuldabréfaútgáfu fyrirtækja
* verðbréfavarsla
* innheimta skuldabréfa
* umsjón með eftirlaunasjóðum einkaaðila
Varðbréfamarkaður
1= Iðnaðarbankans hf.
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVlK
SlMI - 681040