Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
Sjómannadeilan í kjaradóm
ALÞINGI hefur nú verið kallað saman til að finna lausn á kjara-
deilu sjómanna og útvegsmanna eftir að upp úr viðræðum deiluaðila
slitnaði aðfaranótt mánudagsins. Þá lá fyrir tilboð frá fulltrúum
sjómannasamtakanna og Farmanna- og fiskimannasambands íslands
um að 79% afla kæmu til skipta og skiptahlutfall miðaðist við olíu-
verð. Útgerðarmenn héldu þá fast við tilboð sitt um að 73% afla
kæmu til skipta, en voru sammála sjómönnum um tengingu olíu-
verðs og skiptahlutfalls. Fulltrúar deiluaðila eru allir óánægðir með
það, að rikisvaldið skuli með þessum hætti hafa áhrif á gang mála
og telja það óeðlilegt. í dag verður lagt fram stjórnarfrumvarp til
laga þess efnis að hæstiréttur skipi sérstakan kjaradóm, sem sem
skili úrskurði um þau deilumál, sem enn eru óleyst, þar á meðal
hlutfall afla til skipta við heimalöndun (kostnaðarhlutdeild) og hlut-
fall afla, sem komi til skipta við gámasölu erlendis. Jafnframt er
gert rað fyrir því, að frumvarpið feli í sér afnám verkfallsins. Bæði
þessi atriði eru bundin í lögum. Upp úr viðræðum deiluaðila slitnaði
eftir miklar umræður um þá tillögu sáttasemjara, að deilunni skyldi
vísað til fijáls kjaradóms, skipuðum af deiluaðilum. Um þá tillögu
náðist ekki samkomulag af ýmsum aðstæðum. Hér fara á eftir við-
töl við forystumenn deiluaðila:
Kristján Ragnarsson á fundi hjá
sáttasemjara.
Öskar Vigfússon:
Mótmælum af-
skiptum Alþing-
is af deilunni
Krislján Ragnarsson:
Oeðlilegt er að
kjaradeila sé leyst
með lagasetningu
„Á fundi með forsætisráð-
herra í morgun, þar sem okkur
var tilkynnt formlega, að ríkis-
stjórnin hafi ákveðið að kalla
saman Alþingi og leggja fram
frumvarp til lausnar á þessari
kjaradeilu, taldi ég mér skylt
fyrir hönd umbjóðenda minna
að koma á framfæri mótmælum
við afskipti Alþingis af kjaramál-
um sjómanna. Eg tel að þær
yfirlýsingar, sem verið hafa í
loftinu frá viðsemjendum okkar
núna síðastliðinn sólarhring, að
sjómenn hafi verið veikir fyrir
Iagasetningu eigi sér enga stoð
og vísa þeim alfarið til föður-
húsanna. Sjómenn hafa áður
staðið frammi fyrir lagasetningu
og hafa ekki riðið feitum hesti
frá því,“ sagði oskar Vigfússon,
formaður Sjómannasambands ís-
lands.
„Þess vegna er alveg fráleitt að
ætla sér, eftir að við höfum lagt til
að tengja olíuverð skiptahlutfalli,
sem hefur verið gegn stefnu okkar
undanfarin ár, að við viljum ekki
semja. Við höfum lagt áherzlu á
það, að allur aflinn komi til skipta,
en bijótum nú blað með þessari til-
lögu, það er að. hlutur okkar lækki
eða hækki með breytingu á olíu-
verði. Svarið var: „Við skulum láta
ykkur fá 2%.“ Síðan hefur ekkert
verið gert af hálfu útgerðarmanna
til að reyna að ná samningum. Við
gerðum okkar ítrasta til að ná lykt-
um með því að leggja fram nýtt
tilboð á miðnætti, sem var einfald-
lega svarað neitandi. þegar við
settumst að samningaborðinu,
fannst okkur að við þyrftum að
nota tengur til að draga út úr þeim
minnstu smáatriði í sambandi við
mannréttindi félaga okkar, svo sem
lengingu á hafnarfríum í heima-
höfn, úr 48 klukkustundum í 96 í
mánuði. Það tók óhemju tíma og
átök að ná þessum mannréttindum
fram og svo var um flest önnur
svipuð atriði, sem ekki kostuðu
nokkum hlut fyrir útgerðina.
Reynsla okkar af kjaradómi sem
slíkum er því miður slæm og ég á
enga von á því að fijáls kjaradómur
hefði leitt til einhvers annars. Sátta-
semjari taldi, af einhveijum ástæð-
um, hentugustu leiðina til lausnar
þessari deilu, að leggja fram tillögu
um einhvern fijálsan kjaradóm.
Innanhússtilaga frá sáttasemjara lá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óskar Vigfússon kemur á fund
hjá sáttasemjara á sunnudags-
kvöldið
ekki fyrir, sáttatilaga hans ekki
heldur. Auðvitað kokgleyptu út-
gerðarmenn þessa tillögu, nema því
aðeins að hún hafi legið í huga
þeirra allan tímann. Við töldum
okkur ekki hafa neitt umboð til að
ávísa kjaramálum sjómanna út í bæ.
Það hefði verið fráleitt af okkar
hálfu að gefa kost á einhveiju slíku.
Ennfremur bendi ég á í sambandi
við fijálsan kjaradóm, að megin
deilan felur í sér lagabreytingu.
Getur Alþingi leyft það að ein-
hveijir úti í bæ séu að fjalla um
iagasetningu Alþingis og segja til
um hvernig hún eigi að vera?
Við höfum slæma reynslu af
lagasetningum, en hins vegar vil
ég benda á, sem smá ljósglætu, að
við fáum tækifæri til þess, þegar
Alþingi er kallað saman, til að koma
sjónarmiðum okkar á framfæri við
ALþingismenn," sagði Óskar Vig-
fússon.
„RÍKISSTJÓRNIN tilkynnti okkur
í morgun að þing yrði kallað saman
og þar yrði stefnt að því með sam-
komulagi við stjórnarandstöðuna
að ljúka afgreiðslu málsins á morg-
un, sem fælist í því að hæstarétti
yrði gert að skipa gerðardóm, sem
úrskurðaði um þau deiluatriði, sem
stóðu í vegi fyrir samkomulagi.
Mér finnst mjög óeðlilegt að til
þess þurfi að koma að kjaradeila
sem þessi sé leyst með lögum. Mér
finnst að þeim, sem stofna til deil-
unnar, beri skylda til að leita
úrlausnar og semja um niður-
stöðu,“ sagði Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ.
„Tilefni þessarar deilu var alltaf
mjög óraunhæft. Sjómenn höfðu feng-
ið launabætur í formi fiskverðsbreyt-
inga líkt og aðrir launþegar. Á
síðastliðnu ári voru tekjur þeirra hlut-
fallslega hærri en annarra atvinnu-
stétta og það hlutfall var það hæsta,
sem þeir hafa haft. Þess vegna voru
tekjur þeirra góðar og allt bendir til
þess, að þær muni verða góðar á þessu
ári miðað við hliðstæð aflabrögð. í
byijun formuðu sjómenn kröfur sínar
á þeim grundvelli að þeir ættu eitt-
hvað inni hjá okkur frá árinu 1983,
sem reyndist svo rangt og Þjóðhags-
stofnun taldi að þeir hefðu fengið
þetta bætt með ýmsum hætti. Staða
sjómanna, sem betur fer, var mjög
góð og þess vegna var með ólíkindum
að þeir skyldu stofna til svo harðvígu-
grar deilu, sem þessarar.
Svo virðist að forsvarsmenn sjó-
menna telji þetta einu leiðina til
lausnar málsins og við viljum ekki
leggjast gegn því því markmiðið sem
stjórnvöld setja sér með lausn deilunn-
ar vegna þessa alvarlega ástands, sem
nú ríkir bæði innan lands og á mörk-
uðum erlendis, svo sem í Bandaríkjun-
um, sem er einn mikilvægasti
markaður okkar. Þess hljótum við að
taka tillit til og sætta okkur við þær
niðurstöður, sem út úr þessu máli
koma.
Ég vil minna á það að lögin um
skiptaverðmæti voru sett í apríl
síðastliðið vor og tóku gildi í maí með
fullu samkomulagi allra deiluaðila og
breytingar, sem hafa átt sér stað síðan
eru nánast engar. Mér fmnst þetta
einkennilegt miðað við það víðtæka
samkomulag, sem tókst í vor um nið-
urfellingu sjóðakerfís sjávarútvegsins
og lögbindingu skiptahlutfalls að
beiðni allra aðila. Ég hef aldrei skilið
ástæðuna fyrir þeirri breytingu, sem
orðið hefur síðan þetta samkomulag
náðist,“ sagði Kristján Ragnarsson.
Guðjón A. Kristjánsson:
Fáum aldrei frið
fyrir lagasetningum
„SJÓMENN eru að verða anzi
langþeyttir á lagasetningum Al-
þingis í kjaradeilum okkar við
útgerðarmenn. Þegar við erum
farnir að ná þrýstingi á útvegs-
menn, gripa stjórnvöld til þess, að
setja á okkur lög og eyðileggja þar
með kjarabaráttuna fyrir okkur.
Við höfum alltaf komið illa út úr
lagasetningum Alþingis og það var
augljóst að útvegsmenn treystu
betur á ákvörðun Alþingis, því
þeir vildu ekki ræða við okkur,
þó við værum stöðugt að nálgast
þá. Öllum tillögum var svarað neit-
andi og hætt að ræða mál, sem
voru komin á góðan rekspöl. Við
teljum að útvegsmenn hafi beinlin-
is viljað að þetta færi svona,“ sagði
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, á blaðamannafundi
í gær.
A fundinum rakti Guðjón gang
mála og gat þess, að sjómenn hefðu
teygt sig svo langt að leggja til
ákveðna tengingu olíuverðs við hlut-
fall kostnaðarhlutdeildar af heildar-
aflaverðmæti miðað við að 79% aflans
kæmu til skipta. Útvegsmenn hefðu
hins vegar skellt skollaeryrum við því
og ekki viljað ræða málið. Á sunnu-
dagskvöldið hefðu útvegsmenn síðan
viljað leggja málið í gerðardóm skip-
aðan af deiluaðilum og eftir það
hætt að ræða um mál, sem komin
hefðu verið á góðan rekspöl. Tilboðið
um tengingu olíuverðs og skiptahlut-
falls hlyti að teljast mjög stórt skref
í átt til samkomulags, þar sem sjó-
menn hefðu til þessa talið að útgerðin
ætti að sjá sjálf um sinn kostnað.
Þrátt fyrir þetta hefðu útgerðarmenn
haldið sig við fyrra tilboð um 2%
hækkun á skiptahlut.
Guðjón benti einnig á það, að við
slðustu verðákvörðun á þorski, hefði
frádráttur fyrir hvem físk umfram
20 í 100 kílóum, aukizt þannig að í
raun kæmi lítil eða engin hækkun á
þorsk í afla togara og jafnvel lækk-
un. í ofanálag ætluðu útgerðarmenn
sér svo að lækka hlut sjómanna við
sölu fisks í gámum erlendis, en sam-
kvæmt tilboði þeirra, lækkaði hlutur
sjómanna, jafnvel þó verð erlendis
yrði 90 krónur á kfló.
Guðjón sagði, að á fundi ráðherra
á mánudagsmorgun hefði hann mót-
mælt því, að Alþingi gripi inn í
deiluna. Hann teldi að hægt hefði
verið að leyssa málin, hefðu menn
fengizt til að tala saman og þá ætti
hann sérstaklega við tregðu útgerð-
armanna til viðræðna við FFSÍ í
desember áður en verkfall var boðað.
Að Hafþórsmálinu undanskildu hefðu
allar tilraunir til samkomulagt slitnað
á óbilgimi útgerðarmanna, en aug-
ljóst væri að með henni hefðu þeir
ætlað sér að láta ríkið leysa deiluna
í trausti þess, að þeir kæmu betur
út úr því. Guðjón sagði, að í ljósi
reynslunnar hefði það verið sjómönn-
um hagstæðara að beina málinu til
sérstaks gerðadóms en Alþingis, en
enginn samninganefndarmanna hefði
talið sig hafa umboð til að sam-
þykkja það. „Við fáum aldrei frið
fyrir stjómvöldum til að leysa okkar
mál, um leið og einhver þrýstingur
er kominn á útgerðina, grípa stjóm-
völd inni. Sjómenn fara því að verða
anzi langþreyttir á lagasetningum.
Við erum hins vegar löghlýðnir og
munum fara að lögum. Þessi aðferð
og mál allt verður hins vegar ekki
til þess, að menn verði ánægðir með
sinn hlut. Það verða hugsanlega þung
sporin hjá mörgum um borð, en við
munum ekki beita okkur fyrir upp-
sögnum.
Það hefði örugglega verið hægt
að ná saman með því að báðir gæfu
eftir, þannig ganga þess mál venju-
lega. Við getum bent á það, að
fyrirhugaður olíuskattur fjármálaráð-
herra hefði orðið um 400 milljónir
króna á útgerðina. 1% hækkun á
skiptahlutfalli þýðir 50 milljónir
króna tekjutap fyrir útgerð á ári.
Ráðherra hætti við skattinn til að
liðka fyrir samningum. Þar heldur
útgerðin þessum 400 milljónum, sem
samsvara kostnaði við að hækka
skiptaverðið um 8 prósentustig, úr
71% í 79%. Með þvf yrði hún skilin
eftir með 6% hagnað af tekjum miðað
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá blaðamannafundi Farmanna- og fiskimannasambands íslands.
Talið frá vinstri: Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ, Steingrímur
Þorvaldsson, skipstjórafélaginu Ægi, Ragnar G. D. Hermannsson,
formaður Skipstjórafélagsins Öldunnar, Helgi Laxdal, formaður
Vélstjórafélags Islands, Þórður Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri
Oldunnar, Gísli Skarphéðinsson, formaður Bylgjunnar á ísafirði,
Kristján Ingibergsson, formaður Vísis í Keflavík, Margrét Gísladótt-
ir, skrifstofustjóri Vélastjórafélags Islands, Ingvi Einarsson,
formaður Kára í Hafnarfirði og Skafti Skúlason, formaður Sindra
á Austurlandi.
við 6% ávöxtun fjármagns," sagði
Guðjón A. Kristjánsson.
Þórður Sveinbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Öldunnar, sagði, að
þegar verið væri að tala um fískskort
í vinnslunni og á erlendum mörkuð-
um, virtust menn gleyma því, að
nánast öll skip, sem nú væru að veið-
um, seldu aflann ferskann erlendis.
Þar sem fískvinnslan ætti í mörgum
tilfellum hlut í þessum skipum, fynd-
ist sér það skjóta skökku við, að
kvarta undan fískleysi, en selja fisk-
inn síðan ferskann erlendis.
Ragnar G. D. Hermannsson, for-
maður Öldunnar, sagði að þeir hefðu
vonazt til að ná samningum áður en
samningar yrðu lausir um áramótin.
Útgerðarmenn hefðu hins vegar
dregið lappimar, en hefði svo ekki
verið, væri óvíst að þessi deila stæði
nú,
Ingvi Einarsson, formaður Kára,
benti á það, að olíuskattur fíármála-
ráðherra hefði verið felldur niður og
það hefði átt að greiða fyrir lausn
deilunnar. Þessi fyrirhugaða skatt-
heimta sýndi, að fleiri en sjómenn
teldu útgerðina aflögufæra.
Kristján Ingibergsson, formaður
Vísis, sagði, að félagar sínir í Keflavík
tryðu því ekki, að núverandi og verð-
andi alþingismenn Suðumesja ætluðu
sér að setja lög á sjómenn.