Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
23
Streiti í Breiðdalshreppi áfram ríkiseyðibýli:
Einhver misskiln-
ingnr á þinginu
- segir Magnús Þorleifsson, áhugamaður um kaup ájörðinni
„ALLT þetta mál hefur verið
afskaplega sorglegt og slysalegt
og ég harma málalyktir. Það
hefur myndast einhver misskiln-
ingur á þinginu, aðallega hjá
Hjörleifi Guttormssyni, flokks-
félögum hans og alþýðuflokks-
mönnum nokkrum. Ég hef
fregnað að þeir hafi helst
áhyggjur af því að sjá á eftir
jprðinni til peningamanns úr
þéttbýlinu,“ sagði Magnús Þor-
leifsson, Mávanesi 21 í Garðabæ,
í samtali við Morgunblaðið, en
hann hefur sýnt mikinn áhuga á
kaupum á ríkiseyðibýlinu Streiti
í Breiðdalshreppi í Suður-Múla-
sýslu.
Alþingismennirnir Egill Jónsson
og Jón Kristjánsson fluttu tillögu á
þingi snemma á síðasta ári þess
efnis að jörðin skyldi seld Magnúsi
Þorleifssyni, en tillagan dagaði uppi
við þingslit sl. vor. Við fjárlagaaf-
greiðslu nú fyrir jólin kom mál þetta
aftur til kasta þingmanna, en þá í
fjárlagafrumvarpinu. Þar áttu
menn að greiða atkvæði um heimild
til fjármálaráðherra þess efnis að
hann gengi frá sölu jarðarinnar.
Heimildin var felld með jöfnum at-
kvæðum, 27 gegn 27.
Magnús sagði að áhugi sinn á
Streiti hefði fyrst komið upp árið
1983 er hann sá jörðina auglýsta á
nauðungaruppboði í Lögbirtinga-
blaðinu. „Amma mín og afi áttu
þarna heimili í tæp 40 ár og vildi
ég byggja jörðina upp og fegra,
nýta hana fyrir æðarrækt, angóra-
kanínur, garðrækt og fleira. Mér
var þá tilkynnt að ég gæti ekki
fengið jörðina keypta, heldur leigða
til eins árs. Að fengnum samþykkt-
um jarðanefndar og hreppsnefndar
Breiðdalshrepps, var mér leigð jörð-
in þann 18. maí 1983. Þá fór ég
austur til þess að skoða jörðina -
sú ferð varð til þess að ég afturkall-
aði umsókn mína, en samkvæmt
ábúðalögum er skylt að húsakostur
ísafjörður:
Minningar-
athöfn um
skipverjana
á Tjaldi ÍS
Minningarathöfn um sjómenn-
ina sem fórust með Tjaldi ÍS 116
í Jökulfjörðum þann 18. desem-
ber var haldin í Isafjarðarkirkju
á laugardag. Mennirnir hétu
Hermann Sigurðsson, Guðmund-
ur Víkingur Hermannsson og
Kolbeinn Sumarliði Gunnarsson.
Að sögn Sr. Jakobs Hjálmarsson-
ar sóknarprests kom samstaða
fólksins sem býr við sjó glögglega
í ljós. Fánar blöktu í hálfa stöng í
bænum og öll athafnasemi lá niðri
á meðan á athöfninni stóð. Kirkjan
var þétt setin og athöfninni sjón-
varpað í sal íshússfélagsins fyrir
þá sem ekki komust í kirkjuna.
Athöfninni var einnig útvarpað.
Beata Joó organisti kirkjunnar lék
við athöfnina ásamt Mariu Kyr-
iakou fiðluleikara.
Að athöfninni lokinni var blóm-
sveigur lagður að minnisvarða
sjómanna og stóðu björgunarmenn
úr deild Slysavarnafélags Islands á
ísafirði og Hjálparsveit skáta heið-
ursvörð.
Streiti í Breiðdalshreppi í Suður-Mýlasýslu
sé á landinu til að nytja jörðina.
Þarna er uppistandandi íbúðarhús,
en löngu óíbúðarhæft. Rafstrengur-
inn er á floti í vatni, engin rotþro
til staðar, hitinn í ólestri, gluggar
ónýtir og fúkkalyktin í öllum kimum
svo dæmi séu tekin. Útihús eru með
öllu ónýt. Þá var mér bent á að
falast eftir jörðinni til kaups. Það
erindi sendi ráðuneytið austur til
umsagnar hreppsnefndar og jarða-
nefndar og var það samþykkt um
haustið 1984, en samkvæmt jarða-
lögum þurfti ég ekki að afla
samþykkis þessara aðila,“ sagði
Magnús.
Hjörleifur Gottormsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að óeðli-
legt væri að smokra slíkum málum
inn í fjárlagaumræðuna og væri
andstaðan fyrst og fremst til komin
vegna þess hvernig staðið hefði
verið að málinu. Eðlilegra væri fyr-
ir þá sem sæktu þetta af kappi að
endurflytja frumvarpið á eðlilegan
hátt og láta á það reyna hvort fylgi
væri fyrir sölunni á þingi. Hjörleifur
sagði eðlilegt að heimamenn hefðu
forgang að kaupum á jörðinni þó
hann væri síst á móti því að borg-
arbúar flyttu út á land og tækju
þar upp atvinnurekstur. „Heima-
menn sýndu áhuga á jörðinni í fyrra
er málið var tekið upp á þingi, en
tillaga þeirra Egils Jónssonar og
Jóns Kristjánssonar gerði einungis
ráð fyrir sölu til Magnúsar Þorleifs-
sonar,"
Egill Jónsson sagði í samtali við
Morgunblaðið að ljóst væri að and-
staða ríkti á meðal alþýðubanda-
lags- og alþýðuflokksmanna gegn
sölu ríkisjarða, en í orði hefðu menn
borið fyrir sig að maður úr þétt-
býlinu vildi festa kaup á jörðinni.
Egill sagðist ekki vita til þess að
áhugi hafi verið á meðal heima-
manna fyrir jörðinni í fyrstu, en þó
hefði hann haft spurnir af bónda
nokkrum austan úr Breiðdal sem
falaðist eftir afnotum af jörðinni
fyrir kálfa sína. Bóndi þessi væri
hinsvegar ábúandi á annarri lög-
býlisjörð í hreppnum.
„Þegar við Jón fluttum tillöguna
á þingi í upphafi árs 1986 láu fyrir
öll tilskilin meðmæli, bæði frá jarð-
arnefnd og frá hreppsnefnd Breið-
dals. Auk þess hefði verið leitað
álits oddvitans í næsta hreppi, Beru-
neshreppi, og voru allar þessar
umsagnir jákvæðar. Þeir sem and-
stæðir voru sölunni, hafa einnig
talað um óeðlilega málsmeðferð nú
fyrir jólin þegar málið var tekið inn
í fjárlaga-umræðuna. Sá rökstuðn-
ingur gengur hinsvegar á skjön við
þá staðreynd að í sömu umræðu
var samþykkt að veita fjármálaráð-
herra heimild til að selja aðra
ríkisjörð, Rauðamýri í Nauteyrar-
hreppi,“ sagði Egill að lokum.
Ný kynslóð
íÖMifdmDDiuiir
Vesturgötu 16,
simi 13280.
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í eir.u tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
^ötmrflsacgjiuip
VESTURGOTU 16 — SÍMAR 14630 - 21480
Sérstakt tækifæri!
Skrifstofuhúsnæði
Til sölu er skrifstofuhúsnæði í nýju vönduðu húsi í Skipholti. Er hér
um að ræða skrifstofuhúsnæði í eftirfarandi stærðum:
★ 2. hæð 275 fm.
★ 3. hæð 325 fm + 325 fm = 650 fm.
★ 4. hæð („penthouse") 533 fm.
Húsnæði þetta er nú í smíðum og verður fokhelt 30. apríl 1987, en
verður afhent 31. október 1987 í eftirfarandi ástandi:
★ Tilbúið að innan til innréttinga og málningar.
★ Með fullfrágenginni sameign og vönduðum frágangi eftir hönnun Sturlu Más
Jónssonar innanhússarkitekts.
★ Húsið verður fullfrágengið að utan með vönduðum frágangi á lóð eftir hönn-
un Guðmundar Sigurðssonar landslagsarkitekts.
Verð og greiðsluskilmálar:
★ Verð pr. fm er kr. 32.950 miðað við eina greiðslu og byggingavísitölu 1. jan-
úar 1987, 293 stig.
★ Gert er ráð fyrir ýmsum möguleikum á greisluskilmálum, sem allir verða reikn-
aðir til núvirðis miðað við ofangreint verð.
Hér er um sérstakt tækifæri að ræða m.a. vegna þess, hve staður er góður
og allur frágangur sérlega vandaður. Nánari upplýsingar verða veittar alla
virka daga milli kl. 9 og 14 í símum 31965 eða 82659.