Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
FROSTHÖRKURNAR í EVRÓPU
Ekkert lát á vetrar-
hörkum í Danmörku
Tuttugu stiga frost 1 Kaupmanna-
höfn 1 gær
Kaupmannahofn, frá fréttaritara Morjyunblaðsins, Ib Björnbak og AP.
TVEIR starfsmenn við raforku-
ver í Aabenrá á Jótlandi biðu
bana í gær, er 50 tonna ketill
Benedikt Jóns-
son, sendiráðsrit-
ari í Moskvu:
Bagalegast að
bílarnir vilja
ekki í gang
„FROSTIÐ hér er nú um 33-34
gráður en þessum kulda má venj-
ast eins og öðru. Það var t.d.
álíka kalt hér í janúar 1985. Það
er kannski bagalegast, að það
er erfitt og stundum ógjörningur
að koma bílunum í gang,“ sagði
Benedikt Jónsson, sendiráðsrit-
ari i Moskvu í samtali við
Morgunblaðið.
„Rússar taka kuldatíðinni með
mestu ró enda eru þeir vanir henni
og segja gjama, að það sé kalt eins
vera ber á þessum árstíma. Þó eru
frosthörkumar famar að segja til
sín á ýmsum sviðum, bamaskólar
eru t.d. margir lokaðir eins og jafn-
an er gert þegar frostið fer niður
fyrir ákveðið stig og á götunum er
áberandi minni umferð en endra-
nær,“ sagði Benedikt. Það kom
fram hjá honum, að veðurglöggir
Rússar spáðu áframhaldandi kuld-
um og hefðu það til marks, að eftir
áramótin 1978 hefðu verið miklar
hörkur. Segðu þeir, að harður vetur
kæmi til jafnaðar á níu eða tíu ára
fresti.
sprakk. Gerðist þetta, er verið
var að auka raforkuframleiðsl-
una, sem var undir miklu álagi
sökum kuldanna að undanförnu.
Ekkert lát virðist vera á vetrar-
hörkunum í Danmörku. í gær var
20 stiga frost á Celsíus í Kaup-
mannahöfn og gekk á með
hvössum hríðaréljum. Svipaða
sögu var að segja annars staðar
að i landinu.
Hervagnar vom víða notaðir til
þess að koma nauðþurftum til fólks
á þeim svæðum, þar sem ástandið
er verst. A mörgum stöðum voru
vegir tepptir fyrir allri venjulegri
umferð sökum snjóa og lögreglan
ráðlagði ökumönnum að skílja bíla
sína eftir heima.
Miklar truflanir hafa orðið á
skipaferðum um dönsku sundin sök-
um kulda og ísa og er Borgundar-
hólmur nú algerlega einangraður
frá öðrum hlutum landsins af þeim
sökum. í gær voru sendar út aðvar-
anir til skipa bæði á Norðursjó og
Eystrasalti um hættu á ísingu, þar
sem búast mætti við áframhaldandi
stormi með miklu frosti.
Litlar horfur eru á batnandi
veðri. Búizt var við, að kuldabylgja
frá Póllandi gengi yfir Danmörku
í gærkvöldi með allt að 20 stiga
frosti og mikilli snjókomu, ekki sízt
á Sjálandi, þar á meðal Kaup-
mannahöfn og svæðinu í kring.
Mikil ísmyndun á sér nú stað á
dönsku sundunum og hafa ísbijótar
verið sendir á vettvang til þess að
halda þeim opnum, eftir því sem
unnt er.
Friðrik krónprins hefur mátt þola
sitt og kannski meira en sumir aðr-
ir Danir vegna kuldanna. Hann er
18 ára og gegnir nú herþjónustu.
Tvær nætur í röð varð krónprinsinn
að sofa úti á víðavangi ásamt félög-
um sínum í 25 stiga frosti. Heræf-
ingunni er ekki enn lokið, en í nótt
sem leið fékk prinsinn þó að kom-
ast undir þak og sofa í herskála
einum eftir að hafa gengið um 25
km þá um daginn. Á meðan prins-
inn og félagar hans gistu úti undir
beru lofti, urðu þeira að grafa sig
í fönn til þess að finna skjól fyrir
nístandi storminum.
-m 0 ^ « « jm 0 AF/bimamynd
Skip í klaka kropin
Sjómenn við Norðursjó eru nú margir hættir róðrum og liggja skipin bundin í höfn. Er það ekki verkfall, sem
veldur, heldur frostið, sem færir skipin í klakabrynju svo að þeim er stórhætta búin. Þessi mynd var tekin um
helgina í höfninni í Kristjánssandi í Noregi.
Mestu kuldar í
Svíþjóð í 120 ár
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
í SVÍÞJÓÐ eru nú mestu kuldar,
sem þar hafa verið í 120 ár.
Meðalsólarhringshitinn hefur
verið undir -i-20 gráðum vítt og
breitt um landið og hefur það
ekki gerst síðan 1867.
Á mánudagsmorgni var raf-
magnsnotkunin í Svíþjóð meiri en
nokkru sinni fyrr og litlu minni en
hámarksframleiðslugetan. Allir tólf
kjarnaofnarnir voru reknir á fullu
og svo var einnig með vatnsorku-
verin og þau, sem ganga fyrir olíu.
Var aðeins upp á nokkra gas-
hverfla að hlaupa. Ef eitthvað ber
út af verður að skammta raf-
magnið og þess vegna hefur
mörgum orðið hugsað til umræð-
unnar um að loka kjamorkuverun-
um. í ljósi þessa ástands þykir
flestum sú hugmynd með öllu frá-
leit.
Á stríðsárunum komst frostið
Morgunblaðsins.
einu sinni í 53 stig og stendur það
met enn. Víða í Norðurbotni hefur
það mælst 49 stig og í Stokkhólmi
30 og þegar þess er gætt, að nokk-
ur strekkingur hefur verið, má
segja, að kuldinn sé enn meiri en
lesa má af mælinum.
Kuldinn hefur valdið miklum
samgönguerfiðleikum og hefur lest-
arferðum verið fækkað víðast hvar.
Veldur það mestum vandræðum,
að snjór og hrím sest á rafkerfið
og síðan slær allt út. Þá hefur það
tafið fyrir snjóruðningi, að bílar,
sem gefist hafa upp í kuldunum,
hafa verið skildir eftir hér og þar
með vegunum. Segja má, að allar
áætlanir séu nú úr sögunni um sinn,
hvort sem í hlut á fólk eða farar-
tæki. Ef menn fara ekki ofan einum
eða tveimur tímum fyrr en vanalega
er eins víst, að þeir séu að tínast í
vinnuna fram undir hádegi.
í gær, mánudag, féll niður
kennsla í barnaskólum víða í
landinu enda var ekki hægt að koma
hitanum nema í 10 gráður í mörgum
skólum hvernig sem kynt var.
Danmörk:
Sjómönnum bjarg-
að í nístingskulda
Mesta frostí tæpa öld
Strætisvagn stendur kyrr á miðiu stræti í Varsjá, höfuðborg Póllands. Vélin stöðvaðist sökum kuldanna
og neitaði að fara í gang aftur. I Póllandi hefur frostið komzt niður fyrir 30 stig í Varsjá. Þannig var þar
31 stigs frost á fimmtudaginn var, sem er mesta frost sem mælzt hefur þar í borg allt frá árinu 1893.
Kaupmannahöfn, AP.
ÞREMUR dönskum sjómönnum
var bjargað á laugardag eftir
sólarhringsvist í björgunarbát á
Eystrasalti. Nístingskuldi var á
þessum slóðum og þykir ganga
kraftaverki næst að mennirnir
skuli hafa haldið lífi.
Mennimir fundust á reki 74 kíló-
metra suðaustur af Bomhólmi en
pólsk, norsk og dönsk skip höfðu
leitað mannanna frá því á föstu-
dagsmorguninn þegar fiskiskip nam
neyðarsendingar frá björgunar-
bátnum. Mennirnir höfðu verið á
veiðum á litlum fiskibát og lentu
þeir í ofsaveðri með fyrrgreindum
afleiðingum.
Svíþjóð:
Litlar veðurbreyt-
ingar sjáanlegar
Stokkhólmi. Frá Ásdfsi Haraldsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EKKI sér enn fynr endann á
veðurhörkunum, sem verið hafa
í Svíþjóð síðasta hálfa mánuðinn.
Hefur frostið komist í 30 stig í
Stokkhólmi og enn harðara hef-
ur það verið inn til landsins. Eru
ekki horfur á að mikil breyting
verði þessa vikuna a.m.k.
Um helgina vom Svíar hvattir
til að fara sparlega með rafmagnið
nú í vikunni enda eru ýmis iðnfyrir-
tæki fyrst nú að taka til fullra
starfa eftir jólafrí. Má því búast við
miklu álagi á rafmagnskerfið. I
mörgum húsum er mjög kalt og í
blöðunum hefur verið sagt frá því,
að á sumum bamaheimilum séu
bömin kappklædd innan dyra. Sam-
göngur eru meira eða minna úr
skorðum og erfitt að komast leiðar
sinnar hvort sem um er að ræða
bifreiðar eða lestir.