Morgunblaðið - 13.01.1987, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
Dómur Hæstaréttar frá 19. desember 1986:
Vegna kæru um ólögmæta
vaxtatöku af láni til
Hermanns Björgvinssonar
Lagerhillur
oq rekkar
Eigum á lager og útvegum með
stuttum fyrirvara allar gerðir af
vörurekkum og lagerkerfum.
Veitum fúslega allar nánari
SSg&zaœsr
BÍLDSHÖFDA 16 SÍM!:6724 44
Hæstiréttur kvað hinn 19. des-
ember síðastliðinn upp dóm í
málinu Ákæruvaldið gegn Birni
Pálssyni. Hér er um fyrsta dóm
Hæstaréttar í svonefndu okur-
máli, er tengist nafni Hermanns
Björgvinssonar, að ræða. Hefur
niðurstaða Hæstaréttar vakið
mikla athygli og meðal annars
orðið tilefni árása forsætisráð-
herra á embættisfærslu Seðla-
banka íslands. Hér birtist dómur
Hæstaréttar í heild.
Mál þetta dæma hæstaréttar-
dómaramir Magnús Þ. Torfason,
Guðmundur Jónsson, Guðrún Er-
lendsdóttir, Halldór Þorbjömsson
og Þór Vilhjálmsson.
Héraðsdómi var með áfrýjunar-
stefnu 27. ágúst 1986 skotið af
hálfu ákæmvalds til Hæstaréttar
til þyngingar, en ákærði hafði viljað
hlíta héraðsdómi.
I
í ákæra máls þessa segir að hátt-
semi sú sem ákærða er gefín að
sök teljist varða við 2. mgr. 6. gr.
laga nr. 58/1960 sbr. auglýsingar
Seðlabanka íslands um vexti við
innlánsstofnanir 16. desember 1983
og 20. janúar 1984. Einnig er í
ákæranni vitnað í „bréf Seðlabanka
íslands, dagsett 7. janúar 1986,
vegna máls þessa".
Þar sem refsing fyrir ólöglega
vaxtatöku byggist á nefndu ákvæði
laga nr. 58/1960 í tengslum við 3.
gr. sömu laga og gildandi auglýs-
ingar um hámarksvexti hefði í
ákærunni átt að tilgreina þær aug-
lýsingar Seðlabanka sem í gildi
vora á þeim tíma sem hér er um
að ræða, en ákæran lýtur að ólög-
legri vaxtatöku af lánum veittum á
tímabilinu 16. júlí 1984 til 24. októ-
ber 1985. Auglýsingar Seðlabank-
ans, sem til er vitnað í ákæra, vora
eigi í gildi á þeim tíma sem hér
skiptir máli og bréf Seðlabankans
7. janúar 1986 er eigi refsiheimild,
svo sem réttilega er tekið fram í
héraðsdómi.
Þar sem háttsemi ákærða er
nægilega lýst í ákæranni þykir þó
hægt að komast hjá því að ómerkja
hinn áfrýjaða dóm og vísa ákær-
unni frá héraðsdómi vegna nefndra
galla á ákæra.
II
1. Staðfesta ber þá niðurstöðu
héraðsdóms að ákærði hafi á tíma-
bilinu frá 16. júlí 1984 til 13.
október 1985 látið Hermanni Björg-
vinssyni í té þær fjárhæðir sem
tilgreindar eru í ákæra, en hins
vegar eigi þær 300.000 krónur sem
hann er talinn hafa lánað Her-
manni 24. október 1985; ennfremur
að ákærði hafí tekið við eða áskilið
sér endurgjald fyrir lán svo sem
ákæra greinir, að öðra leyti en því
að ekki var um að ræða endurgjald
fyrir lán 24. október 1985 ogendur-
gjald fyrir lán 22. mars 1985 nam
30.000 krónum en eigi 80.000 krón-
um.
2. Svo sem í héraðsdómi greinir
gilti auglýsing Seðlabanka Islands
9. maí 1984 um vexti o.fl. er
ákærði lánaði Hermanni Björgvins-
syni 300.000 krónur hinn 16. júlí
1984 (atriði XIII í ákæra). Endur-
gjald það er ákærði tók fyrir lán
þetta og svaraði til 80% ársvaxta
braut því í bága við 2. mgr. 6. gr.
sbr. 3. gr. laga nr. 58/1960 sbr.
áðumefnda auglýsingu Seðlabank-
ans. Ber að fallast á þá niðurstöðu
héraðsdómara að ákærði hafí í
þessu tilviki tekið ólöglega vexti að
fjárhæð 14.750 krónu en eigi
14.851 krónur eins og í ákæra
greinir, en þar er miðað við að leyfí-
legir hámarksvextir hafí verið
20,6% á ári, en samkvæmt 4. lið
II. kafla nefndrar auglýsingar 9.
maí 1984 námu þeir 21% á ári.
3. Á þeim tíma sem hér skiptir
máli giltu um Seðlabanka íslands
lög nr. 10/1961 sem nú hafa verið
afnumin við gildistöku laga nr.
36/1986 hinn 1. nóvember sl. Telja
verður að ákærði verði aðeins
dæmdur í refsingu samkvæmt 2.
mgr. 6. gr. laga nr. 58/1960 að því
leyti sem í gildi hafí verið ákveðnar
reglur um hámark útlánsvaxta,
settar af Seðlabankanum sam-
kvæmt 13. gr. laga nr. 10/1961
og birtar í Lögbirtingablaði. Slíkar
reglur er að fínna í auglýsingu
bankans_9. maí 1984 sem áður var
nefnd. I auglýsingu bankans 2.
ágúst 1984, sem felldi úr gildi aug-
lýsinguna 9. maí, vora ákvæði um
útlánsvexti, en viðskiptabönkum
jafnframt heimilað að ákveða aðra
vexti með samþykki Seðlabankans.
Auglýsingin 2. ágúst 1984 var felld
úr gildi með auglýsingu 20. desem-
ber 1984, birtri í Lögbirtingablaði
28. s.m., en hún skyldi taka gildi
1. janúar 1985. í II. kafla hennar
era ákvæði um útlánsvexti af ýms-
um tegundum lána sem hér skipta
ekki máli. í lok kaflans segir að
innlánsstofnun sé með vissum skil-
yrðum heimilt að ákveða vaxtakjör
af öðram útlánum en að framan
greini og að þeim sé skylt að aug-
lýsa vaxtakjör sín á áberandi og
skilmerkilegan hátt í afgreiðslum
sínum og tilgreina nafnvexti og
dæmi um ársvöxtun. í lok III. kafla
segir m.a. svo: „Ákvarðanir innláns-
stofnana um vexti á grundvelli
auglýsingar þessarar, svo og fram-
angreindar ákvarðanir Seðlabank-
ans um vexti og vanskilavexti gilda
sem hámarksvextir í hliðstæðum
og sambærilegum lánsviðskiptum
og skuldaskiptum utan innláns-
stofnana, sbr. lög nr. 58/1960 ..."
Seðlabankinn hvarf þannig frá því
að ákveða sjálfur hámark vaxta,
og breyttist það ekki við gildistöku
auglýsingar bankans 3. maí 1985
er leysti auglýsingu 20. desember
1984 af hólmi. Auglýsingar bank-
ans „um meðaltal vaxta nýrra,
almennra skuldabréfa hjá bönkum
og sparisjóðum og vanskilavexti",
sem grein er gerð fyrir í héraðs-
dómi, geyma ekki nægilega ákvörð-
un bankans um hæstu leyfilega
útlánsvexti.
Með skírskotun til raka héraðs-
dóms ber að staðfesta þá úrlausn
hans að engin gild fyrirmæli hafí
verið til um hámarksvexti frá gildis-
töku auglýsingarinnar 2. ágúst
1984 til ársloka og beri því að sýkna
ákærða af þeim ákæruatriðum sem
í ákæra era auðkennd XIV (24.
ágúst 1984), V (9. nóvember 1984),
IV (13. desember 1984) og X (28.
desember 1984). En að auki verð-
ur, með skírskotun til þess em áður
segir um nauðsyn á ótvíræðum
ákvæðum um hámark vaxta ef beita
eigi refísákvæði 2. mgr. 6. gr. sbr.
3. gr. laga nr. 58/1960, að telja
að um slík ákvæði hafi heldur eigi
verið að ræða frá ársbyijun 1985
til loka þess tímabils sem hér um
ræðir. Leiðir það til þess að ákærði
verður einnig sýknaður af ákæra
um ólöglega vaxtatöku í sambandi
Stjórnunarfélag Islands
HHP
TOLVUPJALFUN
ÞJALFUNARBRAUT TÖLVUSKOLANS
Þau notendahugbúnaðarkerfi (ritvinnsla), töflureiknar, gagnasafnskerfi sem notuð
eru í dag eru mjög öflug. Notendur nota hins vegar yfirleitt ekki nema hluta kerf-
anna, þaö sem á vantar eru yfirleitt þeir hlutar kerfanna sem mesta vinnu spara. Á
stuttum námskeiöum ná þátttakendur ekki aö tileinka sér þessa flóknu hluti. Nú er i
boöi námsbraut þar sem nemendur eru þjálfaðir í notkun þessara kerfa. Þessi
braut er ætluö fólki í atvinnulífinu sem vill ná færni á þessu sviði. Og meö færninni
margfaldast afköstin. Þessi braut er því tilvalin fyrir nýtt starfsfólk fyrirtækja.
Námiö er byggt upp sem 4 sjálfstæðir áfangar. Eftir aö hafa tekið fyrsta áfang-
ann, GRUNN, er hægt aö taka þá áfanga af hinum þremur sem henta.
ÁFANGAR: 1. GRUNNUR
Kynning á einkatölvum. Helstu skipanir stýrikerfisins MS-DOS og öll
helstu hjálparforrit þess. Kynning á ritvinnslukerfi, töflureikni og
gagnasafnskerfi. Þetta er sami áfangi og áfangi 1 i Forritunar- og
kerfisfræðibraut Tölvuskólans. Þetta er besta byrjendanámskeið um
einkatölvur sem völ er á. Þrisvar til fjórum sinnum lengra og ítarlegra
en önnur byrjendanámskeið. 40 klst.
2. RITVINNSLA
Nemendur fá þjálfun I notkun ritvinnslu. Fariö verður i uppsetningu
bréfa og skjala, helstu staðla, dreifibréf, samruna skjala og fleira.
Nemendur velja annað hvort ritvinnslukerfanna Word eða Orðsnilld
(WordPerfect). 32 klst.
3. TOFLUREIKNAR
Þjálfun í notkun töflureikna. Helstu notkunarsvið, s. s. uppsetning
líkana, áætlanagerð, bókhald og töluleg úrvinnsla. Myndræn fram-
setning gagna. Nemendur velja á milli kerfanna Lotus 1-2-3 og
Multiplan. 32 klst.
4. GAGNASAFNSKERFI
Þjálfun i notkun gagnasafnskerfisins dBase III + . Uppbygging gagna-
safna, fyrirspurnir, skýrslugerð og póstlistar. Forritun i dBase III + .
Einnig verður farið i flutning gagna milli kerfa t. d. úr dBase III + yfir í
töflureikni eða ritvinnslu. 36 klst.
m
Fyrsti GRUNN áfanginn hefst 16. febrúar 1987.
Kennt veröur á morgnana, frá kí. 8 til 12. Tveim hópum verður kennt samhliöa,
hvor hópur um sig verður 3 daga aðra hvora viku og 2 daga hina vikuna.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Tölvuskólans,
Magnús Ingi Óskarsson, í síma 62 10 66.
Stjórnunarfélag íslands
TÖLVUSKÓU
1 Ánanaustum 15 • Sími; 6210 66 ?
I
Ift
I
I
V'
S
V