Morgunblaðið - 13.01.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
Prúðuleikaram-
ir og popparinn
STJÖRNUBÍÓ: VÖLUNDAR-
HÚS — Labyrinth.
Leikstjóri og brúðusmiður Jim
Henson. Handrit Terry Jones.
Kvikmyndataka Aiex Thompson.
Tónlist Trevor Jones. Aðalhlut-
verk Jennifer Jones, David
Bowie. Bresk. Columbia 1986.
U.þ.b. 100 mín.
Aumingja Söru (Jennifer Conn-
elly) verður það á, þegar hún er
að beijast við að koma væluskjóð-
unni bróður sínum í rúmið, að segja
áhrinsorð sem verða til þess að ill-
yrmið, gúbbakóngurinn David
Bowie, fær hremmt þann stutta.
Flytur hann með sér síðan heim í
höllina, sem er í miðju Völundar-
húsinu. Sara fær samt kost á því
að endurheimta litla bróður, en til
þess þarf hún að geta ráðið Völund-
arhúsið innan viss tíma. Og þegar
inn er komið leynast náttúrlega hin-
ar ógurlegustu hættur og kvikindi
við hvert fótmál.. .
Líkt og í prúðuleikaramyndunum
notast brúðusmiðurinn snjalli, Jim
Henson, við hvort tveggja, leikara
og leikbrúður. Það fer ekkert á
milli mála að senuþjófamir eru hin-
ar fjölbreytilegu og ólýsanlegu
fígúrur sem lífga uppá Völundar-
húsið og gera það áhugavert og
oft spennandi. En Jennifer Connelly
er svona rétt slarkfær í meginhlut-
verkinu og Bowie beinlínis leiðinleg-
ur og líflaus í ágætu gervi sem
gúbbakóngurinn grimmi.
Hugmyndaflugj Hensons virðast
engin takmörk sett hvað brúðu-
smíðina snertir — og sér til góðrar
hjálpar hefur hann litlu síðri leik-
tjaldasmiði. Mörg atriðin eru ekki
aðeins snilldarleg tæknilega heldur
jafnframt bráðfyndin, t.d. samtal
dyrahamranna, svo eitthvað sé
nefnt. En, því miður, þess á milli
dettur framvindan niður í fyrsta
gír og einkum eru það langdregin
söngatriði stórpopparans sem draga
myndina niður. í gamalkunna með-
alíagið.
Súperstjaman David Bowie hefur
oftast staðið sig betur sem kvik-
myndaleikari en í hlutverki gúbba-
kóngsins í Vöiundarhúsinu — þó
gervið sé gott.
NÁMSKEIÐ í SJÁLFSSTYRKINGU FYRIR K0NUR (assertiveness training) ■
í samskiptum manna á milli kemur óhjákvæmilega til vandamála og togstreitu. í slíkum tilvikum er aukió sjálfstraust. sjálfsvitund og þekking hverjum manni styrkur á sama hátt og það er undirstaða ánægjulegra samskipta. Námskeiðið er sniðið að handarískri fyrirmynd og lögð áhersla á að gera þátt- takendum grein fyrir hvaða rétt þeirog aðrir eiga í mannlegum samskiptum og hvernig þeir geta komið fram málum sínum af festu og kurteisi án þess að láta slá sig út af laginu með óþægilegum athugasemdum. Ennfremur að læra að líða vel meö sjálfum sérog hafa hemil á kvíða, sektarkennd og reiði með vöðvaslökun og breyttum hugsunarhætti. Upplýsingar í sima 12303 alla virka daga. Aínugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. ANNK NIMDIMkRSDÓTTIR sálfræðingur Bræðraborgarstig 7
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir BENGT JONSSON
Fæðingartalan skiptir heiminum
64,6
Fólksfjölgun
i prosentum
2,621
Fólksfjölgun
í milljónum
úyA
mMIihM 7 r
\ll nftlll
In ífilll
■/
Fólksfjöldi í milljónum
Skipt hefur í tvö horn í mann-
fjöldaþróun í heiminum.
Annars vegar hefur verið hæg
fólksfjölgun og batnandi
lífskjör, hins vegar hröð fólks-
fjöigun og hnignandi lifskjör.
Fátæku löndin sitja föst
í mannfjöldagildrunni
SKIPT hefur í tvö hom með mannfjöldaþróun síðasta áratug-
inn, og hefur það valdið skiptingu þjóða heims í tvo álíka
fjölmenna hluta.
að, sem einkennir annan
hlutann, er, að manníjolgun
er hæg eða engin, og lífskjör, sem
í flestum tilvikum voru góð fyrir,
hafa batnað enn meir. Einkenni
hins hlutans em hröð fólksfjölgun
og stöðnun eða hnignun lífskjara.
I fyrrtalda hlutanum eru 2,3
milljarðar manna og þar er mann-
fjölgun um 0,8% á ári, jafnvel
þótt íbúum sumra landa fjölgi alls
ekki. Til þessa hluta teljast Norð-
ur-Ameríka, Evrópa, Sovétríkin,
Ástralía, Nýja-Sjáland og Aust-
ur-Asía (þ.e. Japan, Kina og
nokkur smáríki í efnahagslegum
uppgangi).
Til síðartalda hlutans teljast
Suður- og Suðaustur-Asía, Mið-
austurlönd, Afríka og Rómanska
Ameríka. Þar búa 2,6 milljarðar
manna og þeim flölgar um 2,5%
á ári. í tölum talið merkir það,
að árlega bætast við 64,6 milljón-
ir manna, sem þarfnast lífsviður-
væris. í betur setta hlutanum er
fólksfjölgunin 18,6 milljónir á ári.
Skörp skil
Þessi tvískipting þjóðanna eftir
fólksfjölgun er mjög skýr og vart
fínnanleg tilvik þar á milli. A þeim
svæðum, þar sem fólksfjölgun er
hröð, eru nokkur dæmi þess, að
fjölgunin hafi hægt verulega á
sér, t.d. í Argentínu og á Kúbu
(Rómanska Amerkíka), en þau
bregta engu um heildarmyndina.
I mannfjöldafræðinni hefur sú
kenning verið ríkjandi frá því í
heimsstyijöldinni síðari, að mann-
fjöldaþróun skiptist í þijú stig, og
hafa samfélög verið f.okk'úð sarrL
kværr.t pví.
Á fyrsta stiginu er há fæðingar-
tala og há dánartala. Fólksfjölgun
er þá hæg. A öðru stiginu er
fæðingartalan áfram há, en betri
lífskjör og heilbrigðisþjónusta
hafa í för með sér, að dánartalan
iækkar. Afleiðingin er mjög hröð
fólksfjöigun. Þriðja stigið ein-
kennist af því, að fæðingartalan
lækkar, fyrst og fremst vegna
þess að hátt lífskjarastig og lítill
bamadauði dregur úr hvötinni til
að eignast mörg böm. Foreldram-
ir eiga hvort eð er víst, að fyrir
þeim verður séð, þegar þeir geta
ekki lengur unnið fulla vinnu. Þar
sem dánartalan er jafnframt lág,
er fólksfjölgun hæg eða alls engin.
Hugmyndin á bak við fyrr-
nefnda skiptingu byggist á þeirri
reynslu, sem fékkst meðan iðn-
væðing Evrópu stóð yfir. í
nýútkominni skýrslu World-
watch-stofnunarinnar í Washing-
ton er þessi kenning rædd út frá
þeirri tvískiptingu, sem nú mótar
mannfjöldaþróunina í heiminum.
Það, sem virðist hafa gerst - eða
vera að gerast, - er, að ríflega
helmingur jarðarbúa situr fastur
á öðm stiginu.
íbúafjöldinn
tuttugufaldast
I sumum löndum, aðallega í
Afríku, eykst íbúafjöldinn um þijú
prósent á ári.
Svo hröð fólksfjölgun hefur
aldrei þekkst áður, og af henni
leiðir, að íbúafjöldinn tuttugufald-
ast á einni öld. Fólksfjölgun af
þessu tæi gerir einnig miklar kröf-
ur til náttúruauðlinda vegna
öflunar matvæla, orku og hús-
næðis, auk þess sem þjóðfélagið
verður að sjá þessum viðbótar-
milljónum fyrir menntun, vinnu
og heilbrigðisþjónustu.
Kiló
Dregið hefur í sundur í korn-
framleiðslu Afríku og Vestur-
Evrópu á tímabilinu 1950-86.
Jarðyrkja margfaldast, gras-
lendi er ofbeitt vegna fjölgunar
búsmala og skógar eru höggnir
niður. Þessi ofnýting náttúrunnar
getur gengið um hríð, en síðan
verður álagið of mikið. Jarðvegur
missir gróðurmátt sinn og upp-
blástur hefst, er skógamir hverfa.
Landbúnaðarframleiðsla á hvem
íbúa byijar að minnka og dregur
niður tekjur og lífskjör.
Afturkippur
Þegar efnahagslegt og þjóð-
félagslegt ástand batnar ekki,
hverfur hvatningin til að halda
bameignum í skefjum. Afleiðingin
verður sú, að viðkomandi sam-
félag kemst ekki upp á þriðja stig
þróunarinnar, en fæðingartalan
helst há. Sé ekkert að gert til að
snúa við á þessari óheillabraut,
rekur að því, að ekki er lengur
hægt að sjá þessum vaxandi fólks-
fjölda fyrir viðurværi. Dánartalan
eykst og samfélagið hrapar niður
á fyrsta stig þróunarinnar.
Kína vísar veginn
Samkvæmt áliti Worldwatch
Institute er eina færa leiðin, að
fyrmefnd samfélög bijótist út úr
þeirri sjálfheldu, sem þau hafa
lent í. Á sumum af þurrkasvæðum
Afríku er landnýtingin þegar við
hættumörk. En ekki er öll von
úti um, að úr geti ræst. Það sýn-
ir þróunin í Kína og fleiri löndum.
A aðeins einum áratug lækkaði
fæðingartala í Kína ur 3,4 í 2,0%.
Þau þróunarlönd, sem uregið
hafa veFuiéga úr fólksfjölgun,
hafa beitt ólíkum aðferðum, en á
nokkrum sviðum hafa þau þó orð-
ið samstiga. Þar má m.a. telja
viðleitni viðkomandi ríkisstjóma
til að lækka fæðingartöluna, um-
fangsmikla fjölskylduráðgjöf og
útvegun getnaðarvamameðala. I
fræðslustarfi hefur einnig verið
lögð áhersla á, að það sé sameig-
inlegur hagur ríkis og einstakra
fjölskyldna að takmarka bama-
fjöldann.
Höfundur er blaðamaður á
Svenska Dagbladet.