Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
© 1986 Univ«rMl Prsit Syndicale
>■
„ Anda&u -frcL. þér. "
Ast er ...
E'l'l
... hin rétta efna-
blanda.
TM Reg. U.S. Pat. Otf.—all rights resenred
01986 los Angeles Times Syndlcate
POLLUX
Ef þig dreymir stöðugt
heim í dalinn, því ferðu
bara ekki aftur?
Með
morgnnkafíinu
Fjölskyldan kemur til að
sjá Lilla þegar leiknum
er lokið vona ég ...
HÖGNI HREKKVlSI
„HAKJN ERAFTURAÐl=ARAFf?A OKKOR.. HANN ER
PÚINN AÐ TÆMA SKRlFBORÐIÐ SITT."
Skatturinn á að leggjast á bæði hjónin
Vegna yfirlýsingar Húsnæðis-
samtakanna nýlega um nauðsyn á
lagfæringum á álagningu tekju-
skatts hjóna, þar sem fordæmd er
sú dæmalausa háttsemi að mis-
muna útivinnandi konum og
húsmæðrum í skattaálagningu á
heimilin, er rétt að segja frá eftir-
farandi:
A síðasta landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins var samþykkt í 7. lið
álitsgerðar um skattamál svohljóð-
andi: „Tekjum hjóna verði skipt
jafnt á milli þeirra fyrir álagningu.“
Ennfremur var samþýkkt að það
skyldi gert á undan öllum öðrum
breytingum.
Hér var fyrst og fremst stefnt
að því að koma í veg fyrir þann
óheyrilega ójöfnuð í skattheimtu
þar sem annað hjóna er skattlagt
mun hærra en gert er þegar bæði
vinna úti. Ranglætið kemur þá líka
fram í því að vinna húsmóður er
einskis metin. Þannig borga hjón,
Velvakandi sæll.
Guðmundur Guðmundsson
minnist mín með nokkrum orðum
nýlega. Þar víkur hann að því er
Framsóknarflokkurinn klofnaði
1933.
Tveir þingmenn flokksins neituðu
að styðja stjórn Framsóknarflokks
og Alþýðuflokks undur forustu Sig-
urðar Kristjánssonar. Þeir voru
reknir úr flokknum og tveir þing-
menn aðrir og einn ráðherra
flokksins fylgdu þeim.
Guðmundi er þetta kunnugt og
það er í besta lagi. Hins vegar virð-
ist hann ekki skilja hvað sambæri-
legt er og hvað ekki. Ef flokkur
klofnar þá eiga menn um það að
velja hvorum hlutanum þeir fylgja.
þar sem einungis annað þeirra vinn-
ur úti, miklu hærri skatt en hjónin
í næstu íbúð, þar sem bæði vinna
úti. Hér þarf úrbóta strax.
í landsfundarsamþykktinni frá
25. Landsfundi Sjálfstæðisflokksins
segir orðrétt í 7. lið: „Tekjum hjóna
verði skipt jfnt á milli þeirra fyrir
álagningu skatta."
Svo afdráttarlaus var þessi
stefnulýsing að þetta átti að gera
strax, þ.e. áður en áfangar tekju-
skattslækkunar hæfust. En því
Heiðraði Velvakandi.
Með óskum um gleðilegt nýtt ár
og þökk fyrir margar góðar hug-
vekjur í Velvakanda langar mig til
að vekja athygli á hinu afskræmda
hugarfari innlendrar dagskrárgerð-
Tryggvi Þórhailsson gekk ekki úr
Framsóknarflokknum í neinn þeirra
flokka sem hann hafði boðið sig
fram á móti. Hann kaus að flytja
þeim flokksbræðrum sínum sem
voru í minnihluta. Þeir mynduðu
nýjan flokk.
Þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna gengu eins og kunnugt er
í flokka sem þeir höfðu boðið sig
fram á móti og lýst heldur óglæsi-
lega.
Það er hins vegar nær því sem
gerðist er Sjálfstæðisflokkurinn
varð til og Sigurður Eggerz innlim-
aði allan Ihaldsflokkinn á grundvelli
Sjálfstæðismálsins eins og Spegill-
inn orðaði það.
Halldór Kristjánsson
miður hefur þessu ekki verið sinnt.
Hefur það heyrst að einhvetjar
konur hafi eyðilagt að Matthías
Mathiesen þá fjármálaráðherra
kæmi þessari umbót fram. Ef það
er rétt er slíkt alveg dæmalaust
brask útivinnandi hálaunakvenna,
sem níðast á mæðrum og húsmæðr-
um, sem ekki geta unnið úti. Þær
eru margar. En skatturinn á að
leggja á bæði hjónin enda eiga þau
tekjurnar saman. Með því móti er
komið í veg fyrir að heimilin beri
misþungar byrðar.
Sjómannskona
ar í sjónvarpinu. Það er athyglisvert
hve sóðalegar klámmyndir, sem
eiga víst að heita list, hafa verið
fram bornar að undanförnu. Furðu-
legt er að menn, sem ráðnir hafa
verið til þess að sjá öllum landsins
börnum fyrir afþreyingarefni, skuli
ekki skilja, að klámsenur í sjón-
varpi eru óþolandi, þótt einstöku
menn hafi gaman af að sjá senur
af þessu tagi, en það eru þá venju-
lega menn sem hafa annarlegar
hvatir. A fyrsta kveldi hins nýja árs
gat að líta íslenska mynd, sem gekk
svo yfir og fram af þorra fólks, að
nægt hefði til að setja algjört met
hvað þetta varðar. Og svo var þessi
ógeðfelda mynd eftir kvenpersónu.
Já, þær eru síst betri en karlarnir
þegar kemur að klámfengnu efni.
Hitt er svo annað mál, að forráða-
menn sjónvarpsins hefðu átt að taka
í taumana áður en svona mynd var
send inn á heimili fólksins í landinu.
Það er eins og það falli vel að smekk
þeirra, sem þarna sitja við stjórn.
Gaman væri að heyra frá þessum
mönnum og hvað þeim gengur til
að sýna klámmyndir í sjónvarpi, eru
þeir að skemmta fólkinu í landinu,
bömunum, eða em þeir að skemmta
sjálfum sér?
Hneykslaður borgari.
Hvað er sambæri-
legt og hvað ekki?
„Afbrigðilegt hugarfar“
Víkverji skrifar
Ibytjun nýs árs er það háttur
manna að reyna að rýna í fram-
tíðina og freista þess að sjá fyrir
þróun mála. Yfirleitt láta menn sér
nægja að geta sér til hvað nýtt ár
muni bera í skauti snu en oft nota
menn þó tækifærið við tímamót sem
þessi til að skyggnast lengra fram
í tímann.
Áramótin em þannig annatími
fyrir stjömuspekinga en til em
einnig annars konar framtíðarspá-
menn, sem treysta á hugmynda-
flugið með vísindalega þekkingu í
bakgrunninum. Oftast er meira að
marka spár slíkra manna en bless-
aðra stjörnuspekinganna.
xxx
Frægastur allra slíkra framtíð-
arspámanna er sennilega
Arthur C. Clarke, einn kunnasti
vísindaskáldsagnahöfundur nútím-
ans, og á hann meðal annars
heiðurinn af því að hafa séð fyrir
hvemig þjóöir heims gætu nýtt sér
sjónvarpshnetti yfir miðbaugi til að
dreifa sjónvarpsefni yfir stærra
svæði en áður var mögulegt. Þetta
var löngu áður en sjónvarpshnettir
urðu að vemleika.
Arthur C. Clarke hefur nýverið
sent frá sér nýja spásögn, sem hann
kallar 20. júlí 2019 og þar býður
hann lesendum í ferðalag inn í
framtíðina næstu 30 árin. Og eftir
því sem Clarke heldur fram, þarf
engum að leiðast þegar fram í sæk-
ir. Fjölmiðlar og listmiðlar munu
hafa á boðstólum marga nýlundu
sem em ekki einu sinni í sjónmáli
á þessari stundu. Innan listgrein-
anna verða þó breytingarnar
stórstígastar í kvikmyndunum, að
því er Clarke heldur fram. Meðal
nýrrar tækni á því sviði verður
Sýniskanninn eða Showscan, sem
mun spila á miðtaugakerfí áhorfan-
dans og umlykja hann þrívíðri mynd
án þess að hann þurfi á sérstökum
gleraugum að halda, eins og hingað
til hefur veerið nauðsynlegt. Tölvu-
grafík og tækni verður nýtt til að
endurskapa raddir og líkamna með
rafeindatækni frægustu stjörnu
fortíðarinnar, svo að nýjar kvik-
myndir með Gretu Garbo, John
Wayne og Valentino í aðalhlutverk-
um munu sjá dagsins ljós. Árið
2019 verður einkatölvan orðin svo
fullkomin að með tengingu við sjón-
varp framtíðarinnar, getur eigand-
inn sett sjálfan sig í hvert það
hlutverk í sjónvarpsþætti sem hann
kærir sig um. Þetta þýðir að venju-
legt fólk eins og ég og þú munum
geta lesið sjónvarpsfréttirnar í stað
Ingva Hrafns eða Páls Magnússon-
ar, og tekið við hlutverki Orson
Welles í Citizen Kane.
XXX
Iþróttum mun fleygja mikið fram
að því er Clarke segir, því að
með skipulögðum lyfjagjöfum og
sérstöku mataræði, verða íþrótta-
mennirnir hreinlega ræktaðir og
munu afreka ýmislegt sem talið er
óhugsandi að sé á mannlegu færi
um þessar mundir. Innan allra
íþróttagreina mun sjóndeildarhring-
urinn þenjast út — og í stað
maraþonshlaups verður keppt í
1000 mílna hlaupi og hjólreiða-
keppnin mikla Tour de France
verður Tour de l’Europe. Ástarlífið
mun einnig blómstra og boðið verð-
ur upp hveitibrauðsdagahótel á
sporbaug út geimnum með tilheyr-
andi þyngdarlausum ástarleikjum.
Vélmenni munu verða hluti af
daglegu lífi og Clarke segir að árið
2019 verði vélmenni orðin svo þróuð
að þau muni starfa sem neðansjáv-
arkönnuðir, sem byggingaverka-
menn, eftirlitsmenn í orkuverum,
og sem sjálfstýrð vinnuhjú á heimil-
um. Þeir munu sjá um að fjölga sér
sjálfir, svo að innan langrar sögu
vitsmunalífsins, verða það kannski
vélmennin sem munu að lokum erfa
jörðina, þegar vegferð mannsins á
þessari plánetu lýkur.
Þangað til ætti samt engum að
leiðast.