Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
53
Þessir hringdu . .
Jólahald og
fjölmiðlar
7074-4791 hringdi:
Leikrit Nínu Bjarkar Arnadótt-
ur, sem sjónvarpið flutti á nýárs-
kvöld, hefur mikið verið til
umfjöllunar að undanfömu. Ég
var svo heppin að vera í jólaboði
þetta kvöld þar sem slökkt var á
sjónvarpinu.
Aftur á móti langar mig til að
þakka sjónvarpinu sérstaklega
fyrir aðfangadagskvöldið. Eftir
hátíðarmessu í Skálholtskirkju
voru einhverjir þeir yndislegustu
söngtónleikar frá London sem ég
hef heyrt og komu þeir bæði mér
og öð’rum á heimilinu í sannakall-
að jólaskap. Svo opnuðum við
útvarpið og hlustuðum á ræðu
Sigurbjörns Einarssonar biskups,
sem hann flutti við miðnætur-
messu í Hallgrímskirkju. Ræða
þessi var svo góð að mér finnst
ástæða til að biðja Morgunblaðið
um að birta hana ef mögulegt er.
Hælt og kvartað
Sverrir Sverrisson hringdi:
Ég vil þakka þeim hjá Laugar-
vegsapóteki fyrir frábæra þjón-
ustu, sérstaklega kemur
heimsendingarþjónusta þeirra sér
vel fyrir marga.
I annan stað vil ég kvarta
vegna óáreiðanleika strætisvagn-
anna sem fara um Vesturbæinn.
Þeir eru sjaldan á réttum tíma,
sérstaklega er þetta áberandi á
milli 13 og 19.
Leikrit
Nínu gott
Erla hringdi:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til Nínu Bjarkar fyrir leikrit
Þeir eru fáir íslendingarnir
sem eru umtalaðri um þessar
mundir en Nína Björk Árna-
dóttir. Lesendabréfum rignir
og síminn hringir, allir vilja
segja sitt álit á leikriti hennar
sem sýnt var i ríkissjónvarpinu
á nýársdag.
hennar sem sýnt var í sjónvarpinu
að kvöldi 1. janúar. Einnig fínnst
mér Hrafn Gunnlaugsson góður
kvikmyndagerðarmaður. Mér
fínnst ómaklega að þeim vegið,
Hrafni og Nínu, þegar menn eru
að bollaleggja um að senda þau
í útleggð til Svíþjóðar.
Gulleyrnalokkur
tapaðist
Kona hringdi:
Ég tapaði gulleymalokki með
skrúfugangi líklega fyrir utan
ráðherrabústaðinn við Tjarnar-
götu. Þetta var ll.desember.
Hafi einhver fundið lokkinn þá
vinsamlegast hringdu í s. 32726
eða 25000 (vinnus.).
Ekkert klám
Einn að austan hringdi:
Ég vil þakka ríkissjónvarpinu
okkar fyrir nýársleikritið og höf-
undinum fyrir samninguna. Ég
sá ekkert klám í verkinu, að
minnsta kosti ekkert grófara en
sjá má í sundlaugum að sumri til
þegar hitinn stígur yfír 10 gráður.
Fyrirbyggjum
sjóslysin
M hringdi:
Eftir hin hörmulegu sjóslys nú
um hátíðarnar hefur verið rætt í
fjölmiðlum um óöryggi sjómanna
á hafí úti. Þar kemur í ljós að
ýmsu er ábótavant í þeim efnum.
Einhver minntist á peningaleysi
en íslenska þjóðin vill að ekkert
sé sparað til að tryggja líf sjó-
manna á hafinu. Það eru þeir sem
færa mesta björg í þjóðarbúið.
Allir eru harmi slegnir þegar frétt-
ist um hetjudauða sjómannanna
okkar í baráttunni við Ægi.
Það eru til peningar í landinu.
Var það ekki sjávarútvegsmála-
ráðherra sem sagði að til greina
kæmi að borga með hvaladrápinu
(útrýmingarvísindunum)? Væri
ekki nær að þeir peningar rynnu
til slysavama?
Það er þyngra en tárum taki
að frétta um sjóslys sem hefði
mátt fyrirbyggja með betri kunn-
áttu og öryggisbúnaði.
Hvítagulls-
hringur týndist
Kvenmaður hringdi:
Þann 2. desember glataðist
hvítagullshringur með grænum
upphækkuðum steini í miðjunni.
Sitthvorum megin við hann eru
litlir steinar. Berandi hringsins fór
þennan dag í Fríkirkjuna, gekk
síðan þaðan að Tryggvagötu og
keyrði því næst að Domus Medica
þar sem hann fékk sér kaffí á
kaffistofunni. Síðan var haldið að
Flókagötu 63. Einhversstaðar á
þessari leið týndist hringurinn.
Finnandi hringi í s. 16274. Fund-
arlaun.
Eru Shadows til
á f ilmu?
Guðmundur hringdi:
Mig langar til að vita hvort
þeir hjá sjónvarpinu tóku upp
hljómleika The Shadows á Lista-
hátíðinni í sumar? Ef það var
gert af hveiju eru þeir þá ekki
sýndir í sjónvarpinu?
Sameining bankanna leysir engan vanda
Kæri Velvakandi.
Nú er stefnt að því að sameina
þijá banka. Verslunarbankann, Iðn-
aðarbankann og Útvegsbankann.
Mér fínnst þetta misráðið og vil
gera athugasemd við þessi áform.
Þá er fýrst að gera sér grein
fýrir því hvaðan þessi hugmynd er
upprunnin. Hún er runnin undan
rifjum þeirra alþýðubandalags-
manna og þá fyrst og fremst
Lúðvíks Jósefssonar, fyrrum al-
þingismanns og ráðherra. Lúðvík
var einu sinni spurður að því í sjón-
varpsþætti hvað hann vildi gera í
efnahagsmálum og svaraði hann
því þá til að hann vildi fækka bönk-
um, en allir heilvita menn sjá að
það leysir engan vanda.
Nú ætlar ríkið að hlaupa undan
ábyrgð sinni gagnvart Útvegs-
bankanum, en hann er ríkisbanki
eins og flestir vita. Þetta er slæmt
og skapar annan vanda, meðal ann-
ars stórkostlegar uppsagnir banka-
manna. Sumum fínnst það ef til
vill ekki saka, en mér og mörgum
öðrum finnst það fráleitt. Sam-
keppni milli bankanna verður minni
og kreppa kemur í öll bankavið-
skipti.
Ég hef ekki trú á því, að þessi
fyrirhugaða sameining bankanna
verði til farsældar, ef af henni verð-
ur, og ég skil ekki heldur að
Iðnaðarbankinn og Verslunarbank-
inn skuli taka þetta í mál. Þetta
eru góðar stofnanir sem margir
hafa sett traust sitt á.
Ríkið verður að axla sína ábyrgð
gagnvart Útvegsbankanum þó að
það muni kosta eitthvað. Betra er
að öll þjóðin taki á sig þau skakka-
föll sem orðið hafa hjá Útvegs-
bankanum, heldur en að einstakl-
ingar og stofnanir séu látin taka
þau á sínar herðar.
Það kostar stundum eitthvað að
Svar til Óðins Pálssonar.
Jesús sagði sjálfur: Mannssonur-
inn kom, át og drakk. Kristur át
og drakk vín í hófí hvenær sem
honum var boðið upp á það. Aðeins
hatursmenn hans gerðu úr honum
átvagl og vínsvelg.
Það er ekki neitt rangt við það
sem menn gera í hófi, og hefur aldr-
ei verið. Og þó Nói drykki sig
vera köllun sinni trúr, sjálfum sér
samkvæmur og að axla sína ábyrgð,
en ég vona að íslenska þjóðin beri
gæfu til þess, og þá um leið ráða-
menn hennar.
Vinsamlegast,
Eggert E. Laxdal,
Bláskógum 5,
Hveragerði
blindfullan eftir að hann kom loks-
ins úr örkinni fór Guð ekki að ásaka
hann fyrir það. Vínneyzla hefur
hvergi verið bönnuð í Biblíunni.
Ég er ein þeirra sem nota vín í
hófí, og hefur Guð ekki bannað mér
það ennþá, og ég geri ávallt vilja
hans í öllu.
S.R. Haralds
Hvað skyldi hafa verið i bikunun Krists og lærisveinanna þegar
þeir borðuðu síðast saman fyrir nálega tvö þúsund árum?
Kristur drakk vín í hófi
Sérstakt
janúartilboö
á MITSUBISHI
farsímum.
Bíleiningin kostar aðeins kr.
79.980,-
staðgreidd eða kr.
84.980,- með afborgunum.
SKIPHOLTI 19!
^SÍMI 29800
|VM> 1ÖKUM VEL Á MÓTIÞÉR