Morgunblaðið - 13.01.1987, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
54
VR:
Ekkí kemur til greina að
hætta lánum til félaga
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt stjómar-
og trúnaðarmannaráðs Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur:
„Að gefnu tilefni, vegna fréttar
í Ríkisútvarpinu þann 29. desember
sl., þar sem sagt var að stefnt
væri að því, „að ná samkomulagi
allra lífeyrissjóða í landinu um
stöðvun lánveitinga til sjóðsfélaga
í áföngum á næstu tveimur árurn",
vill stjóm og trúnaðarmannaráð
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
lýsa yfir fullri andstöðu við slík
'áform. Stjóm og trúnaðarmannaráð
jjiglýsinga-
síminn er 2 24 80
VR telur að ekki koomi til greina,
að loka algjörlega fyrir lánveitingar
til sjóðsfélaga enda þótt hluti af
ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna renni
um stundarsakir til byggingarsjóðs
ríkisins samkvæmt sérstökum
samningi.
I þessu sambandi má benda á,
að eftirspum eftir lánum hjá Lífeyr-
issjóði verzlunarmanna síðustu
mánuði sýnir vel að sjóðsfélagar
leggja mikið upp úr þessum láns-
möguleika.
Stjóm og trúnaðarmannaráð VR
leggur því áherzlu á, að ekki verði
lokað fyrir lánveitingar til sjóðs-
félaga Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, enda bryti slíkt í bága við
grein 7.8. í reglugerð fyrir sjóðinn.
Því er beint til fulltrúa VR í stjóm
sjóðsins, að þeir fylgi stefnu stjóm-
ar og trúnaðarmannaráðs VR fast
eftir í þessu máli.“
Unnið við breytingar á Sóifara AK í Akraneshöfn.
Morgunblaðið/JG
Sólfari AK í yfirbyfferinffu
Akranesi. •/ •/
NÚ STANDA yfir breytingar á
vélskipinu Sólfara AK 170 í
Akraneshöfn. Verið er að yfir-
byggja dekk bátsins og setja í
hann nýja ljósavél. Verktaki við
þessa vinnu er fyrirtækið Stuðla-
stál hf. á Akranesi en þeir voru
með lægsta tilboðið i verkið.
Einar Guðleifsson hjá Stuðlastáli
hf. sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þetta væri frumraun
þeirra í að byggja yfir skip og hefði
Stjórnunarfélag Islands
HÓfww reymmm
Tölvuskóli Stjómunarfélags íslands hefur nú starfað í þrjú misseri. Mikíll áhugi hef-
ur veriö fyrir námi á þessu sviði. Á vormisseri 1987 tekur skólinn til starfa 19. janúar.
Kennt veröur I 4 klst. á dag í 14 vikur (samt. 280 klst.).
Námsefni:
□ Kynning á tölvum______________________________
□ Stýrikerfi og skráarkerfi_____________________
□ Kerfisgreining________________________________
Kerf ishönnun__________________________________
Forritun_______________________________________
□
□
□ Gagnasafnsfræói________
□ íslenski tölvumarkaðurinn
Til að uppfylla kröfur atvinnulífsins
Mióað er viö að nemendur hafi stúdentspróf eða sambærilega menntun eða starfs-
reynslu. Námið er byggt upp á fyrirlestrum og verklegum æfingum sem teknar eru
úr atvinnulífinu. Lokapróf er tekið i hverri grein. Nemendur sem útskrifast úr Tölvu-
skóla Stjórnunarfélags íslands geta að námi loknu unniö með tölvunar-, viðskipta-
og kerfisfræóingum við hugbúnaöarframleiðslu og rekstur tölvukerfa.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Tölvuskólans,
Magnús Ingi Óskarsson, i síma 62 10 66.
Stjúrnundrfélag íslands
TÖLVUSKÓU A
ggæwi Ánanauslum 15 ■ Siml: 6210 66 gHBWF
verkið gengið mjög vel. „Við byrjuð-
um á verkinu um 15. desember og
reiknum með að ljúka því í kringum
20. janúar. Þessi vinna hefur verið
skemmtileg og á margan hátt
öðruvísi en við höfum átt að venj-
ast, við höfum verið heppnir með
veður og starfsmenn okkar hafa
verið samtaka að láta verkið ganga
vel.“
Við spurðum Einar um næstu
verkefni fyrirtækisins og hvort næg
verkefni væru framundan. „Þau eru
aldrei næg, en í dag getum við vel
við unáð. Við höfiim nú um 20
manns í vinnu og til að halda úti
slíkum hóp þurfum við að hafa
mikið' af verkefnum. Við sinnum
töluvert mikið ýmsri þjónustu við
fiskveiðiskipin og eins verksmiðjuna
á Grundartanga og einnig höfum
við gert tilboð í verk á almennum
markaði. T.d. buðum við í verkefni
á vegum Reykjavíkurborgar nú fyr-
ir skemmstu og urðum þar lægstir
í B-hluta útboðsins. Við eigum von
á mönnum frá þeim í næstu viku
til viðræðna sem vonandi leiða til
þess að okkur verði falið verkið".
Þess má geta að Stuðlastál hf.
hefur nýverið ráðið til sín tækni-
fræðing, gamalkunnan Akumesing,
Helga Sigurðsson, og var hans
fyrsta verkefni fyrir fyrirtækið út-
reikningur á tilboði í breytingamar
á Sólfara AK. _ jg
Árni Bjarnason, skipstjóri á Snæfelli EA;
Sé enga kjarabót í
fiskverðshækkuninni
- hún er um 0,83% á megninu af þorskafla okkar
„AÐ meðaltali er þorskur í afla
togara frá Norðurlandi og reyndar
flestra togara um 2 kíló að þyngd.
Samkvæmt síðustu ákvörðun um
fiskverð hækkar verð til skipta á
þorski af þeirri stærð um 15 aura
alls eða um 0,83%. Þetta þýðir
tekjuaukningu upp á 288 krónur
fyrir 100 tonna túr og um 5.000
krónur á ári miðað við meðal
þorskafla. Þorskurinn er uppistað-
an í launum sjómanna og þvi
getum við ekki séð neina kjarabót
í þessari verðbreytingu. Við skilj-
um heldur ekki að þetta auki tap
frystingar, en þorskur af þessari
stærð er uppistaðan í vinnslunni,"
sagði Ami Bjamason, skipstjóri
og ritari í Skipstjórafélagi Norð-
lendinga, í samtali við Morgun-
Ekið utan
í mann
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir vitnum að því þegar ekið
var utan í fullorðinn mann i
Lönguhlíð á föstudag.
Maðurinn er ökklabrotinn eftir
slysið, sem varð með þeim hætti
að bíll keyrði utan í hann þegar
hann gekk yfir Lönguhlíð til móts
við Barmahlíð eða Mávahlíð um kl.
9 á föstudagsmorgun. Líklega hefur
ökumaður ekki orðið þess var að
bíllinn snerti manninn, því hann ók
á brott. Ungur maður um tvítugt
varð vitni að slysinu, en þar sem
maðurinn taldi í fyrstu að hann
væri ómeiddur þá fór ungi maðurinn
á brott. Hann er beðinn um að tala
við slysarannsóknardeild lögregl-
unnar, svo og ökumaðurínn.
blaðið.
Ámi sagðist vegna þessa ekki
skilja fullyrðingar um 7% verðhækk-
un á þorski að meðaltali. Hann sagði,
að fyrra verð hefði verið 18,05 krón-
ur fyrir tveggja kílóa þorsk, en nú
yrði það 18,20. Miðað við 100 tonn
af tveggja kílóa fiskinum á 18,05,
28,8% til skipta og 15 í áhöfn, hefði
hluturinn úr túmum orðið 34.656
krónur. Með sömu viðmiðun nú yrði
hluturinn 34.944 krónur eða 288
krónum meiri. Þetta væri að vísu án
orlofs, en það gerði ekki gæfuminn.
í nýja verðinu lækkaði verðið á þorsk-
inum mun hraðar en áður fyrir hvem
fisk umfram 20 í hveijum 100 kíló-
um. Það væri sú breyting, sem kæmi
mönnum við, ekki verð á einhverri
viðmiðunarstærð, sem væri ekki
nema brot af aflanum.
Þá gat Ámi þess, að fyrir siðustu
verðákvörðun hefðu flestir fiskkaup-
endur miðað verð á grálúðu við verð
á tveggja kílóa þorskinum, eða 18,20
til skipta. Eftir 25% verðhækkun á
grálúðu nú, yrði lágmarksverðið
13,94 krónur til skipta. Tækju kaup-
endur nú að greiða lágmarksverðið,
þýddi það 23,4% verðlækkun til sjó-
manna. „Svona virðist þetta vera allt
saman og svo halda menn að þetta
greiði fyrir kjarasamningum," sagði
Ami Bjamason.
Stofnfundur
Málfreyja
STOFNFUNDUR Málfreyjudeildar
verður haldinn miðvikudaginn 14.jan-
úar kl. 20.30 í Safnarðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ. Fundurinn er
öllum opinn segir í fréttatilkynningu
frá Upplýsinga- og kynningamefnd
H. ráðs Málfreyja.
Rúmgóð ífeúó óskast
Við leitum að íbúð fyrir einn af starfsmönnum
okkar. íbúðin þarf að vera í miðbæ, vesturbæ
eða á Seltjarnarnesi. Lágmarks leigutími 1 ár.
Upplýsingar gefnar í síma 20535 eftir kl. 17.00.
Slysavarnafélag íslands.