Morgunblaðið - 24.01.1987, Qupperneq 64
skemmtun
fyrirháa semlága!
-J^L-
Viðlaga
þjónusta
LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Banaslys á
Garðveginum
. UNGUR maður lést í bílslysi á
vegamótum Garðvegar og
Helguvíkurvegar um hádegis-
bilið í gær, er fólksbifreið og
vörubifreið skullu saman.
Slysið bar að með þeim hætti að
fólksbifreiðin var á leið úr Garðinum
í suðurátt. Á krossgötunum þar sem
Helgurvíkurvegur sker Garðveginn
skall hann saman við vörubifreið,
sem var á leið til Helguvíkur, með
þeim afleiðingum að fólksbifreiðin
valt og ökumaðurinn kastaðist út
úr henni. Hann var fluttur á sjúkra-
hús, en lést þar síðar um daginn.
Ekki er hægt að birta nafn
mannsins að svo stöddu.
Sverrir norður
í næstu viku
Menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, hyggur á ferð til
Akureyrar í næstu viku til við-
ræðna við Norðlendinga um
skólamnál.
Á þriéyudaginn ræðir mennta-
málaráðherra við Sverri Thorsteins-
son, sem fræðsluráð hefur lagt til
að taki við starfi fræðslustjóra í
Norðurlandsumdæmi eystra.
Þráinn Þórisson, formaður
fræðsluráðs Norðurlandsumdæmis
eytsra, hefur beðið Morgunblaðið
að birta afsökunarbeiðni hans
vegna ummæla varðandi höfunda
húsaleigusamnings fræðsluskrif-
stofunnar.
Sjá samtöl blaðsíðu 37.
Ríkissjóður
Rekstrarhalli 1.876
milljónirkr. 1986
REKSTRARHALLI A-hluta
ríkissjóðs á síðasta ári var 1.876
milljónir króna. Á árinu 1985 var
hallinn 2.381 milljónir króna og
batnaði rekstrarafkoma ríkis-
sjóðs því um 505 milljónir króna.
Tekjur ríkissjóðs á liðnu ári námu
alls 38.235 milljónum króna og
hækkuðu um 42% á milli ára eða
"\tim 11.346 milljónir króna. Gjöld
A-hluta voru 37% hærri 1986 en
1985, námu alls 40.111 milljónum
króna á móti 29.260 milljónum
1985. I frétt frá fjármálaráðuneyt-
inu um afkomu ríkissjóðs kemur
fram að um mitt síðasta ár hafi
verið gert ráð fyn'r að heildarút-
gjöld yrðu 39.177 milljónir króna.
Reyndin varð hins vegar sú að gjöld
urðu 2% hærri, eða sem samsvarar
934 milljónum króna. Ástæður
hærri gjalda eru hærri vaxtagreiðsl-
ur, niðurgreiðslur, uppbætur á
lífeyrisgreiðslur og launagjöld.
Tekjur A-hluta urðu einnig hærri.
Um mitt ár voru þær áætlaðar
37.000 milljónir króna, en reyndust
1.235 milljónum króna hærri, eða
um 3%. Auknar tekjur er hægt að
rekja til hærri söluskatts, aðflutn-
ingsgjalda, skatta af launagreiðsl-
um og ýmissa tekna.
Ríkissjóður tók 3.762 milljónir
króna að láni innanlands á síðasta
ári, en áformað var að þessi lántaka
yrði 3.575 milljónir króna.
Sjá bls. 26.
v-; : ':J’- ■ xá.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Ufsahrognin söltuð
Grindavík.
Ufsinn er að glæðast hjá Grindavíkurbátum og rekur einn og
einn bátur í góðan róður. Ufsinn er stór og fallegur hrygningar-
fiskur sem er flakaður á Þýskalandsmarkað.
Þessi stúlka var að sykursalta hrognin fyrir Svíþjóðar- eða
Grikklandsmarkað hjá Hópsnesi hf. í Grindavík í gær.
Veðrið:
Hlýrra
a Dala-
tangaen
Mallorca
Spáð kólnandi
veðri á sunnudag
ÓVENJU mikil hlýindi
hafa verið um allt land
undanfarna daga en það
sama hefur ekki verið
hægt að segja um sumar-
leyfisstaði Islendinga við
Miðjarðarhaf.
Um miðnætti aðfaranótt
föstudags var 13 stiga hiti á
Dalatanga, 9 stig á Akureyri
og 7 stig í Reykjavík.
Sömu nótt var ekki nema
um 10 stiga hiti á eyjunni
Mallorca í Miðjarðarhafi.
Á sunnudag er spáð hægri
breytilegri átt eða norðangolu
um allt land. Búist er við éli á
Norðausturlandi en víðast létt-
skýjuðu annars staðar á
landinu. Gert er ráð fyrir að
hiti verði um frostmark þegar
líða fer á sunnudaginn.
Loðnukvótmn auk-
inn um 100.000 tonn
ÁKVEÐIÐ hefur verið að auka
loðnukvóta yfirstandandi vertíð-
ar um 100.000 tonn. Þar af koma
85.000 tonn i hlut íslendinga, en
15.000 í hlut Norðmanna sam-
Nefhjól á Fokker snérist þvert
Morgunblaðid/RAX
Hópslysaáætlun almannavarna var sett af stað
þegar bilun kom upp í nefhjóli Fokkervélar Flug-
leiða í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli í gærmorg-
un. Hjólið fór ekki upp og snéri þvert fyrir. Fyrst
var nauðlending undirbúin á Reykjavíkurflugvelli
en síðan var ákveðið að lenda vélinni í Keflavík
og tókst Iendingin vel því nefhjólið small í rétta
stöðu þegar flugvélin lenti. Þessa mynd tók Ragn-
ar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins af
flugvélinni þegar hún sveimaði yfir Reykjavíkur-
flugvelli og sést greinilega á myndinni að ekki
er allt með felldu í hjólabúnaði flugvélarinnar.
Sjá frásögn á bls. 4.
kvæmt skiptingu loðnunnar milli
landanna. Heildarkvótinn hafði
áður verið ákveðinn 1.170.000
lestir.
Loðnukvótinn var upphaflega
ákveðinn fyrri hluta síðasta árs, en
aukinn talsvert síðar eftir að veiðum
Norðmanna í eigin lögsögu var lok-
ið. Eftir aukninguna áttu Norðmenn
inni hluta hennar og var því veitt
heimild til að taka hann innan
íslenskrar lögsögu. Samkvæmt þá-
verandi kvóta áttu þeir eftir 45.000
lestir, en við veitingu heimilda til
þeirra innan íslenskrar lögsögu
fengu þeir leyfi til veiða á 60.000
lestum með tilliti til væntanlegrar
aukningar.
Ákvörðun sjávarútvegsráðuneyt-
isins um hækkun loðnukvótans er
tekin í framhaldi af rannsóknum
sem fram hafa farið að undanförnu
undir stjórn Hjálmars Vilhjálmsson-
ar fiskifræðings varðandi stærð
loðnustofnsins. Niðurstaða þeirra
mælinga var sú að veiðiþol stofns-
ins væri meira en áður hafði verið
miðað við, eða um 100 þúsund tcnn-
um meira en fyrri mælingar höfðu
gefið tilefni til að ætla. Að þeim
upplýsingum fengnum, hafði sjáv-
arútvegsráðuneytið samband við
Norðménn í gær og að fengnu
þeirra samþykki var þessi ákvörðun
tekin.
Yiðræður Islands
og Grænlands í dag
VIÐRÆÐUR Islendinga og
Grænlendinga vegna ágreinings
um nýtingu sameiginlegra fiski-
stofna og löndunarheimildir
grænlenzkra rækjutogara, hefj-
ast í Reykjavík í dag. Fundurinn
verður í utanríkisráðuneytinu og
hefst hann klukkan 11 árdegis.
Formaður íslenzku viðræðu-
nefndarinnar er Ölafur Egilsson,
sendiherra, en aðrir í nefndinni eru
Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu, Jón B.
Jónasson, skrifstofustjóri á sama
stað, Kristinn Árnason frá utanrík-
isráðuneytinu og Jakob Jakobsson,
forstöðumaður Hafrannsóknastofn-
unar. Formaður grænlenzku við-
ræðunefndarinnar er Einar
Lemche, aðstoðarmaður Moses 01-
sens, sjávarútvegsráðherra græn-
lenzku landstjómarinnar.