Morgunblaðið - 06.02.1987, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
Heimsmeistaramótið í alpagreinum í Crans-Montana:
Sjöundu gullverðlaun
Svisslendinga
- Vreni Schneider sigraði ístórsvigi kvenna
Crans-Montans, frá önnu Bjarnadóttur, frdttarltara Morgunblaðalna.
SVISSLENDINGAR hrepptu sjö-
undu gullverðlaunin af átta á
heimsmelstaramótlnu f alpa-
greinum f Crans-Montana f gœr
þegar Vreni Schneider sigraði f
stórevigi kvenna. Hún var með
íangbesta tfmann eftir fyrri um-
ferð, 1:09,86, og tókst að halda
efsta sætinu þótt Júgóslavinn
Mateja Svet keyrði betur en hún
f seinni umferð. Svet hlaut silfur-
verðlaunin með tfmann 2:21,78
og Maria Walliser, heimsmeistar-
inn f bruni og risastórsvigi, varð
þriðja með tfmann 2:23,51. Sam-
anlagður tfmi Schneiders var
2:21.22.
„Eg hafði heppnina með mér í
dag og er mjög ánægð með sigur-
inn,“ sagði Schneider á blaða-
mannafundi eftir keppnina. „Ég var
vonsvikin yfir að verða fjórða bæði
f tvíkeppni kvenna og risastórsvigi
en i dag gekk allt Ijómandi vel.“
Hún sagðist vera í góðu formi fyr-
ir svigið á laugardag og hlakka til
keppninnar.
Walliser urðu á slæm mistök í
fyrri umferð og hún var áttunda
eftir ferðina. „Eg var mjög tauga-
óstyrk fyrir seinni umferðina,"
sagði hún „en ég vissi að ég get
staðið mig vel í stórsvigi og lagði
mig því alla fram í seinni ferðinni
og tókst að ná góðum tíma.“
Svet vann bronsverðlaunin í
risastórsvigi og var mjög ánægð
með viðbótarverðlaunin í gær. „Eg
vissi að ég átti sama og engan
möguleika á að sigra Schneider
eftir fyrri umferðina en ég gerði
mitt besta til að halda öðru sæt-
inu,“ sagði hún. Svet hefur staðið
sig mjög vel í heimsbikarkeppninni
í stórsvigi f vetur. Hún æfir oft
með karlaliði Júgóslavíu og gefur
• Sveinn Bjömsson forseti ÍSÍ og Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða undirrita samninginn.
Fiugleiðirog ÍSÍ:
Samningurinn
endurnýjaður
ÍÞRÓTTASAMBAND íslands og
Flugleiðir hafa endurnýjað sam-
starfsamning sinn frá sfðasta
ári. Samningurinn gildir til árs-
loka 1987.
Sammningurinn felur m.a. í
sér að íþrottafólk sem ferðast á
vegum (Sl njóti sérstakra kjara
varöandi fargjöld Flugleiða ,bæði
í millilandaflugi og innanlands-
flugi.íSI og Flugleiðir munu síðan
sameiginlega standa að auglýs-
ingum og kynningu vegna
íþróttaviðburða.
Samningurinn var undirritaður
af Sveini Björnssyni forseta ÍSI
og Sigurði Helgasyni forstjóra
Flugleiða. Eftir undirritun samn-
ingsins sagðist Sigurður Helga-
son fagna þessu samstarfi, og
sagði það einlægan hug Flug-
leiðamanna að styðja við íþrótta-
hreyfinguna í landinu.
Sveinn Björnsson þakkaði
Flugleiðum samstarfið og talaði
um hversu mikils virði þessi
stuðningur Flugleiðamanna væri
íþróttahreyfingunni. Við þetta
tækifæri afhenti hann Sigurði
Helgasyni og öðrum viðstöddum
afmælispening, sem steyptur var
sérstaklega í tilefni 75 ára
afmælis ISI.
Sund:
Ragnar Jótlands-
meistari í sundi
RAGNAR Guðmundsson sund-
maður varð um síðustu helgi
Jótlandsmeistari f 1500 metra
skriðsundi karla.
Hann synti vegalengdina á
16.03,38 mínútum og var töluvert
frá sínu besta. Islandsmet hans í
greininni er 15.49,00 mínútur.
Hann varð annar í 400 metra
skriðsundi og í sjötta sæti í 200 m
skriösundi. Þessir tímar Ragnars
lofa góðu þar sem hann er nú í
mjög þungu æfingaprógrami.
Ragnar er í námi á Jótlandi og
stundar jafnframt sundiö af mikl-
um krafi.
köppum eins og Rok Petrovic ekk-
ert eftir.
Austurríkismaðurinn Marc Gir-
ardelli, sem keppir fyrir Lúxem-
borg, er eini útlendingurinn sem
hefur hreppt gullverðlaun á heims-
meistaramótinu hér í Sviss fram
til þessa. Hann vann tvíkeppnina
í bruni og svigi og Svisslendingar
urðu þá að sætta sig við silfurverð-
launin. Nú á aðeins eftir að keppa
í svigi. Svisslendingum verður þá
veitt harðari samkeppni um gull-
verðlaunin á heimsmeistaramót-
inu en til þessa.
Heimsmet í
hástökki
SVflNN Patrik Sjöberg stökk 2,41 m í
hástökki á alþjóðlegu mótl f frjálsum
fþróttum innanhúss f Aþenu á sunnu-
daginn og setti heimsmet.
Sjöberg, sem er 22 ára og vann
silfurverðlaunin í hástökki á ÓL í
Los Angeles 1984, setti metið í
annarri tilraun, en heimsmetið var
2,40 m.
• Vreni Schneider er hár á fullri ferð f stórsviginu f Crans-Montana
f gær. Svisslendingar hafa verið mjög sigursælir á mótinu.
íþróttamaður Norðurlanda
Ingrid Kristiansen
hlaut titilinn
f GÆR var greint frá kjöri fþrótta-
manns Norðurlanda 1986.
Norska hlaupadrottningin Ingrid
Kristiansen varð fyrir valinu að
þessu sinni, en handhafi titilsins
1985 var danski knattspyrnumað-
urinn Preben Elkjær.
Kristiansen sigraði í 10 km
hlaupi á Evrópumeistaramótinu í
frjálsum íþróttum, sem haldið var
í Stuttgart í ágúst, en áður hafði
hún sett heimsmet í greininni í
Osló.
íþróttamaður Norðurlanda hef-
ur verið valinn síðan 1962 og hafa
aöeins tveir íþróttamenn hlotið
nafnbótina tvisvar eða oftar —
Björn Borg, tennisleikari, sem var
valinn 1977 til 1979, og skíðakapp-
inn Ingemar Stenmark 1975 og
1980, en þeir eru báðir Svíar sem
flestum er kunnugt.
Kristiansen er fimmti Norðmaö-
urinn, sem hlýtur titilinn, en auk
hennar komu til greina frá hinum
Norðurlöndunum Eðvarð Þór Eð-
varösson, Morten Olsen, fyrirliði
danska landsliðsins í knattspyrnu,
Svíinn Gunde Svan og Finninn
Marjo Matikainen, en þeir eru báð-
ir skíðagöngumenn.
Ingrid Kristiansen.
6 Ragnar Guðmundsson.
Knattspyrna:
Atli áfram hjá
Uerdlngen
Frá Sigurði BJÖrnssyni í V-Þýskalandi.
MIKLAR tfkur eru á að Atli
Eðvaldsson skrifi f dag undir
tveggja ára samning við Uard-
ingen f Vestur-Þýskalandi en
félagið bauð honum fyrir
skömmu slfkan samning.
Atli tók sér nokkurn tíma til
umhugsunar en undirritar samn-
inginn líklega ídag. Forráðamenn
Uerdingen eru ánægðir með Atla
og vilja hafa hann ófram hjá fé-
laginu. Atli er síðasti fastaleik-
maður liðsins sem skrifar undir
áframhaldandi samning þannig
að Ijóst er að Uerdingen verður
með svipaðan mannsakap á
næsta ári.
Lárus Guðmundsson hefur
ekki enn endurnýjað samning
sinn en forráðamenn Uerdingen
sögðu á dögunum að hann yrði
aö sýna hvað hann gæti í seinni
umferðinni, en hann hefur verið
meiddur í vetur og ekkert getað
leikið.
Waas tii Ítalíu?
Herbert Waas, markahæsti
leikmaður Leverkusen, hefur
mikinn áhuga á að fara til Ítalíu
til að leika knattspyrnu. Hann
hefur ekki enn ritaö undir samn-
ing við Lever-
kusen og vill helst ekki gera það
fyrr en hann fær það inn í samn-
inginn að ef tilboð komi frá Ítalíu
geti hann farið. Bayern Munchen
hefur haft mikinn áhuga á að fá
Waas en ekki er vitað hvað þessi
mikli markaskorari gerir.