Morgunblaðið - 06.02.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1987
55
Úrvalsdeild:
Fyrsta tap IBK
a heimavelli
Keftavfk.
HAUKAR gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu ÍBK f Keflavík í gærkvöldi
og hafa þar með enn mögulelka
á að komast í úrslitakeppnina um
íslandsmeistaratitilinn. Keflvfk-
ingar lóku án Jóns Kr. Gíslasonar,
sem meiddist á æfingu kvöldið
fyrir leikinn, og kom það greini-
lega fram á leik liðsins. Þetta var
fyrsti ósigur Keflvíkinga á heima-
velli sínum í vetur.
„Þetta var kærkominn sigur hjá
okkur, þó það skyggi nokkuð á að
Jón Kr. Gíslason léki ekki með,"
sagði Jón Sigurðsson, þjálfari
Hauka, eftir leikinn. „Við höfum
lengi verið við þennan þröskuld
en ekki komist yfir hann fyrr en
núna. Mér fannst margir leikmenn
Leikurinn
í tölum
íþróttahúsið í Keflvik 5. febrúar
1987. ÍBK—Haukar: 79:82 (35:39).
7:3,10:11,12:14,17:18,21:20,25:23,
27:27, 29:32, 35:39, 39:44, 44:50,
52:54, 56:56, 60:60, 68:65, 72:68,
77:73, 77:77, 79:77, 79:82.
Stig ÍBK: Hreinn Þorkelsson 22, In-
gólfur Haraldsson 14, Gylfi Þorkels-
son 11, Ólafur Gottskálksson 10,
Matti Ó. Stefánsson 8, Guðjón Skúla-
son 6, Sigurður Ingimundarson 6 og
Falur Harðarson 2.
Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 17,
Henning Henningsson 16, ivar Ás-
grímsson 15, Bogi Hjálmtýsson 13,
Olafur Rafnsson 12, Eyþór Arnason 5
og Ingimar Jónsson 4.
Bikarkeppni KKÍ:
Dregið í beinni
útsendingu
DREGIÐ verður í 8-liða úrslrtum
bikarkeppni KKÍ í beinni útsend-
ingu f íþróttaþætti ríkissjónvarps-
ins á morgun, laugardag.
Úrvalsdeildarliðin sex öðlast
sjálfkrafa rétt til að keppa í 8-liða
úrslitum. Eftirtalin átta lið eru eftir
í keppninni: Njarðvík, Keflavík,
Valur, KR, Haukar, Fram, ÍR og
Þór frá Akureyri.
í 8-liða úrslitum er leikið heima
og heiman og kemst þaö íið áfram
sem annað hvort vinnur báða leik-
ina, eða vinni annan leikinn og
hafi hagstæðari skor úr báðum
leikjunum samtals. Sé skor liðanna
jafnt kemst það lið áfram sem
skorað hefur fleiri stig á útivelli.
Hafi liðin skorað jafnmörg stig á
útivelli skal framlengja síðari leik-
inn þar til annað liðið hefur sigrað
og kemst þar með í næstu um-
ferð. Það gildir þó annað um
úrslitaleikinn því þá er aðeins einn
leikur og fer hann fram í Laugar-
dalshöllinni 10. apríl.
í 4-liða úrslitum í bikarkeppni
kvenna leika KR-stúlkur við ÍS og
Haukar leika við ÍBK. Leikin er tvö-
föld umferð.
ÍBK leika betur en oft áður, en í
kvöld vorum við betri.“
„Við höfðum alla burði til að
sigra, en stákarnir léku einfaldlega
ekki nógu vel í kvöld," sagði Gunn-
ar Þorvarðson, þjálfari ÍBK. Gunnar
sagði að enn væri ekki Ijóst hversu
alvarleg meiðsli Jón Kr. Gíslasonar
væru. Hann vonaðist eftir að hann
gæti leikið eftir tvær vikur, en svo
gæti farið að hann léki ekki meira
með í vetur.
Haukarnir börðust vel í þessum
leik allir sem einn og fengu byr í
samræmi við það. Keflvíkingar
voru of hikandi í leik sínum og
komust oft í vandræði vegna þess.
Mikið var um mistök sérstaklega
í byrjun og athygli vakti að Pálmar
Sigurðsson skoraði aðeins eina
körfu í síðari hálfleik utan af velli.
En þá skoraði hann fallega körfu
og náði með því ei.ns stigs forystu
fyrir Hauka, 79:80, og það reyndist
vendipunkturinn að þessu sinni.
Hreinn, Ingólfur, Olafur og Gylfi
voru skástir hjá ÍBK, en liðið náði
sér ekki á strik og átti ekki sann-
færandi leik. Hjá Haukum voru
Henning, Pálmar, Ólafur Rafns-
son, ívar og Bogi bestir, Eyþór
skoraði mikilvægar körfur í fyrri
hálfleik og Ingimar Jónsson í þeim
síðari.
Leikinn dæmdu þeir Kristbjörn
Albertsson og Björn Scheving.
B.B
Knattspyrna:
Aizlewood
til Leeds
Derby keypti
Challaghan
Frá Bob Hennessy á Englandi.
BILLY Bremner framkvæmda-
stjórí Leeds tók upp veskið f
gær og keypti fyríriiöa Charí-
ton, Mark Aizlewood, fyrír 200
þúsund pund.
Aizlewood er 26 ára varnar-
maður og hefur leikið með
Charlton síðan 1982. Áður lék
hann með Luton. Hann hafur
leikið landsleiki fyrir Wales.
Nigel Callaghan, sem lék
hér á landi með Watford í jan-
úar, var í gær seldur til Derby
fyrir 140 þsund pund. Hann
hefur leikið með Watford allar
götur síðan 1980.
Newcastle keypti í gær mið-
vallarleikmanninn, Albert
Creag, sem lék með skoska lið-
inu Hamilton fyrir 100 þúsund
pund.
Gamla kempan, Joe Jordan,
fékk í gær frjálsa sölu frá Sout-
hampton til Bristol City. Jordan
er fyrrum leikmaður með Leeds
og Manchester United og lék
einnig á Ítalíu. Hann er nú 35
ára og hefur aöeins spilað 3
leiki með Southampton í vetur.
Léti hjá
UMFG
GRINDVÍKINGAR sigruðu ÍS,
75:52, í 1. deild karía f körfuknatt-
leik á heimavelli sfnum í gær-
kvöldi. Staðan í hálfleik var 42:25
fyrir UMFG.
Dagbjartur Willard var stiga-
hæstur Grindvíkinga með 21 stig.
Guðmundur Bragsons kom næstur
með 20 stig. Hegli Gústafsson var
stigahæstur stúdenta með 16 stig.
Sigrún Skarphéðinsdóttir skor-
aði 21 stig fyrir Hauka er þær
sigruðu ÍR, 52:31, í 1. deild kvenna
í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var
19:18 fyrir Hauka.
I kvöld
í kvöld fer fram einn leikur í
1, ds!!d karla f blaki. HK og
Fram leika í Digranesi og hefsi
viðureignin klukkan 20. AA
þeim leik loknum leika UBK
og ÍS í 1. deild kvenna.
í körfuboltanum verða tveir
leikir og hefjast báðir klukkan
20. í 1. deild karla leika UMFT
og UBK á Sauðárkróki, en í 2.
deild karla Reynir og UMFS í
Sandgerði.
Fjórir leikir verða í 2. deild
karla í handbolta. Þór og UMFA
leika á Akureyri, ÍBK og ÍA í
Keflavík og Fylkir og Grótta í
Seljaskóla. Þessir leikir hefjast
klukkan 20, en klukkan 21.15
byrjar leikur ÍR og ÍBV.
I 2. deiid kvenna leika ÍBK
og UMFA og hefst viðureignin
klukkan 21.15 í Keflavík.
England:
QPR og Sheffield
Wednesday áfram
Enn jaf nt hjá Celtic og Aberdeen
TVEIR leikir fóru fram f ensku
bikarkeppninni f fyrrakvöld. QPR
vann Luton 2:1 og Sheffield Wed-
nesday vann Chester 3:1.
Luton og QPR skildu jöfn á laug-
ardaginn í 4. umferð bikarkeppn-
innar og því þurftu þau að leika
að nýju. Terry Fenwick og John
Byrne skoruðu fyrir heimamenn,
en Mick Harford skoraði eina mark
Luton. QPR leikur gegn Swindon
á útivelli í 5. umferð.
Sheffield Wednesday hefur ekki
tapað bikarleik 'a heimavelli síðan
1973 og á því varð ekki breyting
á miðvikudagskvöldið. Lee Chap-
mann skoraði fyrsta markið, en
Morgunblaðið/Einar Falur
• Hér eigast þeir við Henning Henningsson úr Haukum og Guðjón
Skúlason, ÍBK. Þeir stóðu sig báðir vel með liðum sfnum f gærkvöldi.
sima
ijónusia
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ÍSLENSKRA GETRAUNA
Hér eru leikirnir!
Leikir 7. febrúar 1987
1 Aston Villa - Q.P.R.
2 Charlton - Man. United
3 Chelsea - Sheffield Wed.
4 Leicester-Wimbledon
5 Newcastle - Lutcn
6 Brighton - Sunderland
7 Derby - Birmingham
8 Hull-Oldham
9 Ipswich - Portsmouth
10 Reading - Plymouth
11 Sheffield United - Leeds
12 Stoke - Crystal Palace
) The Football League
X
Hringdu strax!
688-322
föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardagakl. 9.00-13.30
Gary Bennett jafnaði fyrir Chester.
Graham Abel skoraði sjálfsmark
og Carl Bradshaw bætti þriðja
markinu við. Miðvöröur Sheffield,
lan Knight, fótbrotnaði í leiknum,
en liðið leikur gegn West Ham eða
Sheffield United í 5. umferð. Sig-
urður Jónsson kom inná sem
varamaður í seinni hálfleik.
I Skotlandi gerðu Celtic og
Aberdeen markalaust jafntefli að
viðstöddum 55 þúsund áhorfend-
um. Þetta var sjötta jafntefli
liðanna í deild og bikar á tímabil-
inu, en næsta viðureign fer fram
á hlutlausum velli.
KARLAR ATHUGIÐ
Leikfimi fyrir menn á besta aldri 35 ára og eldri. Nýtt 6
vikna námskeið 2 sinnum í viku hefst þriðjudaginn 10. febr-
úar í Skipholti 3, 2. hæð. Áhersla lögð á uppbyggingu
líkamans, slökun og liðkun.
Tími: Þriðjudaga 17.30—18.30 og 18.30—19.30.
Fimmtudaga 19.00—20.00 og 20.00—21.00.
Laugardaga 10.00—11.00 og 11.00—12.00.
Gufubað á staðnum.
Upplýsingar eftir kl. 18 f sfma 45194.
Mile íþróttakennari og íþróttaþjálfari.
Betri bolti í fyrirtækinu
Firmamót UMFA í knattspyrnu verður helgina 14.—
15. febrúar í hinu rúmgóða íþróttahúsi að Varmá.
Mörg lið munu mæta til leiks — margir leikir —
mikil skemmtun. Notast verðurvið riðlafyrirkomulag,
fjórir í liði og skiptimenn að vild. Þátttökugjald kr.
4.500,-
Tilkynningar berist sem fyrst í síma: 621177 —
Hörður (skrifstofutími), 641494 — Jóhann (skrifstofu-
tími), 666754 — íþróttahúsið að Varmá.
Knattspyrnudeild UMFA